Víkurfréttir - 10.07.2003, Síða 8
Vtkurfr é ttavi ðta 1 i ð
HEIMSÓKN í SAIMDGERÐI
Texti og myndir: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Unglingavinnan,
bæjarmálin og
Það er í mörg horn að líta hjá Ólafi Þór Olafssyni bæjarfulltrúa
Sandgerðislistans í Sandgerði. Jafnhliða því sem Ólafur situr í bæjarstjórn er
hann umsjónarmaður unglingavinnunnar í bænum, er félagsmálafulltrúi og
spilar í hljómsveitinni Flugan sem um þessar mundir er að gefa út tveggja
laga geisladisk. Ólafur gaf sér tíma í annríkinu og settist niður til að svara
nokkrum spurningum Víkurfrétta um atvinnuástandið, lífið í Sandgerði,
unglingavinnuna ogtónlistina.
Nú hefur hvert áfallið rekið
annað í atvinnumálum Sand-
gerðinga. Hvernig meturþú
ástandið?
Það er rétt að staðan gæti verið
betri í atvinnulífmu hér í Sand-
gerði. Það er af sem áður var
þegar unnin var fískur í næstum
hvetju einasta húsi við Strand-
götuna og starf var fyrir hvem
vinnufæran mann. I dag em fyr-
irtækin færri og smærri og því
miður höfum við farið illa út úr
fiskveiðistjómunarkerfinu eins
og fleiri. Það þýðir þó ekkert að
vera að gráta það sem orðið er.
Staðreyndin er að Sandgerði er
orðið eitt af kvótalausu útgerðar-
plássum landsins og það er fátt
sem við getum gert til að breyta
því. Við Sandgerðingar verðum
því að sækja á ný mið. Þámá
heldur ekki gleyma því að þrátt
fyrir mikla umræðu um slæma
stöðu í atvinnumálum í Sand-
gerði em í bænum nokkur ágæt-
lega sett fyrirtæki með öfluga
starfsemi og ný lítil fyrirtæki
hafa verið að skjóta rótum. Það
em því ekki allar fréttir neikvæð-
ar úr atvinnulífinu í Sandgerði.
Hvaða hljóð finnst þér vera í
íbúunum?
Mér fannst hljóðið í fólki vera
mjög þungt í vetur en það virðist
hafa lagast nokkuð með hækk-
andi sól. Þó hafa nýlegar fréttir
um samdrátt á Keflavíkurflug-
velli greinilega hreyft við mörg-
um. Eg verð þó að viðurkenna
að það kom mér ekkert sérstak-
lega á óvart að Bandarikjamenn
vilji draga úr umsvifum sínum
hér á Islandi. Það hefur legið
ljóst fyrir að vera hersins á Kefla-
víkurflugvelli hefur á síðustu
árum byggst meira á efhahags-
legum hagsmunum Islendinga
en herfræðilegri þörf. Ég hef þó
á tilfinningunni að breytingar á
atvinnulífmu á Suðumesjum í
tengslum við samdrátt hjá hem-
um verði ekki eins miklar og
margir vilja láta. Efmiðað er við
framkvæmdagleði í húshygging-
um em Sandgerðingar a.m.k.
ágætlega bjartsýnir i dag.
Er bæjarstjóm með einhverjar
hugmyndir á borðinu varðandi
nýsköpun í atvinnulífinu í
bænum?
Það hafa svo sem engar töffa-
lausnir komið fram í starfi bæjar-
stjómarinnar í tengslum við ný-
sköpun í atvinnulífinu. Að visu
er atvinnuátaksverkefni í gangi á
vegum Sandgerðisbæjar, en það
getur vart talist til nýsköpunar
heldur er það frekar til að veita
þeim einstaklingum sem hafa
verið á atvinnuleysisskrá tæki-
færi til atvinnu. Þá var ákveðið í
upphafi árs að fara í markvissa
markaðssetningu á bæjarfélag-
inu, en lítið hefur bólað á henni
enn sem komið er. Þá verður for-
vitnilegt að sjá hvemig kvóta-
verkefnið, sem fór af stað í
tengslum við byggðakvótann
sem var úthlutað í vetur, þróast.
Við hjá Sandgerðislistanum
höföu reynt að leggja okkar til
málanna, bæði með tillögum í
bæjarstjóminni sem og fimdum
til að vekja athygli á stöðu bæjar-
félagsins og umræður um hana.
Við emm í minnihluta en viljum
þó leggja okkar lóð á vogarskál-
amar, það þýðir ekkert að nöldra
bara út í homi og leggja ekkert til
málanna. Það em ótal tækifæri
sem er hægt að grípa s.s. í sjávar-
útvegi, ferðaþjónustu, iðnaði,
listum, menningu og jafnvel
skólastarfi. Helsti styrkur Sand-
gerðis er staðsetningin og út á
það verður að gera.
Blákalt mat þitt: hvernig sérðu
framtíðina fyrir þér á staðn-
um?
Ef rétt er haldið á spilunum er
framtíð Sandgerðis björt. Ég trúi
því að öllum breytingum fylgi ný
tækifæri og þessi tækifæri verð-
um við að grípa. Vissulega em
ýmsar blikur á lofti. Rekstur
bæjarfélagsins er dýr en við höf-
um náð að standa undir því með
miklum tekjum bæjarsjóðs. Það
sem ég óttast mest er að bæjarfé-
lagið missi tekjustofha sem til
þessa hafa verið taldir ömggir.
Gerist það er staðan allt annað en
glæsileg. Þá held ég að á næstu
Hressir krakkar í ungling|vinnunni í Sandgerði.
Tómas, Herluf, Valgeir, Dirt,
Sólrún, Sveinhjörg, Heiðrúj;
8
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!