Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.07.2003, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 10.07.2003, Blaðsíða 16
BUMENN AFHENDA 10 ÍBÚÐIR f VOGUM Ibyrjun mánaðarins afbenti I húsnæðissamvinnufélagið Búmenn tíu nýjar íbúðir í Vogum á Vatnsleysuströnd. Þar | er um að ræða fimm parhús, en húsin eru ýmist með sól- stofu eð bílskúr. Stærðir íbúð- anna eru 77 og 93 fermetrar. Það var Guðrún Jónsdóttir arkitekt og formaður Bú- manna sem afhenti kaupend- um lyklana af nýju íbúðunum. Auglýsing um starfsleyfistillögu Auglýsing um starfsleyfistillögu fyrir AL, Álvinnslu, Stakksbraut 5 í Helguvík, Reykjanesbæ, 230 Keflavík. í samræmi við 6. gr. í I. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, liggja starfleyfistillögur fyrir AL, Álvinnslu, Stakksbraut 5 í Helguvík, Reykjanesbæ, 230 Keflavík, frammi til kynningar á tímabilinu frá 11. júlí til 6. september 2003, á afgreiðslutíma á bæjarskrifstofunni Tjamargötu 12,230 Keflavík. Skriflegar athugasemdir við starfsleyfistillögurnar skulu hafa borist Umhverfisstofnun fyrir 6. september 2003. Einnig má nálgast starfsleyfistillögurnar á heimasíðu Umhverfisstofnunar http://www.ust.is/ Umhverfisstofnun Stjórnsýslusvið Suðurlandsbraut 24 108 Reykjavík Gokart til sölu Fyrirtækið Reis bílar ehf. er til sölu en fyrirtækið rekur Gokart brautir við Reykjanesbraut og í Garðabæ. í auglýsingu í Fréttablaðinu í þar síðustu viku kemur fram að um 10 hektara land sé að ræða ásamt 600 metra Gokart braut sem staðsett er við Innri- Njarðvík. Einnig kemur þar fram að á svæðinu sé nýbyggt 540 fermetra þjónustu- og veitingahús, auk 2000 fermetra leiguhúsnæðis í Garðabæ. Stefán Guðmundsson eigandi Reis Bíla segir í samtali við Víkurfréttir að rekstur Reis bíla hafi gengið samkvæmt áætl- unum. „Þegar við settum Gokart- ið af stað þann 8. júlí árið 2000 settum við okkur ákveðin mark- mið sem við ætluðum okkur að ná á 3 árum. Við ætluðum okkur að ná ákveðnum seldum eining- um til þess að starfsemin gæti þrifist eðlilega og að fá fjárfesta að félaginu eða langtímalán. Sölutölur hafa allar gengið eftir. Smíði brautarinnar kostaði sitt og hefixr ekki fengist langtímalán til að greiða startkostnaðinn og er það meginorsök þess að við fór- um út í það að auglýsa fyrirtækið til sölu,“ segir Stefán og bætir við að hann hafi fundið fyrir miklum áhuga fólks á fyrirtæk- inu. „Menn hafa verið að koma að máli við mig ffá því ég aug- lýsti hvort ég væri orðinn þreytt- ur á þessu, en það er langt frá því. Við erum að kaupa nýja bíla sem eru 270 cc, en bílarnir eru væntanlegir á brautina fyrir helgi. Nýju bílamir em með mun meiri snerpu, en gömlu bílarnir eru 200 cc og em þeir búnir að keyra vegalengd sem samsvarar vega- lengdinni til tunglsins og hálfa leiðina til baka.“ 16 VfKURFRÉTTIRÁNETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.