Víkurfréttir - 10.07.2003, Blaðsíða 14
Dagbók Suðurnesjamanna á heimshonaflakki
Hermann Helgason og Magnús Ólafsson úr Kefla-
vík eru nú komnirtil Indlands þar sem hitinn nær
rúmum 40 gráðum. Þeir félagar hafa nú sent
fyrsta pistilinn sinn af mörgum sem
eiga eftir að birtast á vf.is og í
Víkurfréttum. Á næstunni
mun lesendum vf.is gef-
ast kostur á því að senda
þeim félögum heillaóskir
í gegnum gestabók sem
sett verður upp á vefnum,
auk þess sem þar verða mynd-
ir og pistlar úr ferðalaginu. Hér að neðan er ferða-
saga Hermanns og A/lagnúsar.
Heimsreisufararnir komnir til Indlands
24 tíma flug
Eftir fínt flug með Iceland Ex-
press sem þó endaði með ein-
hverri harkalegustu lendingu sem
um getur við litinn fognuð kven-
manna í vélinni héldum við til
Heathrow-flugvallar í London
þar sem við þurftum að drepa
tímann,já24 tíma.
24 tímar virtust engin rosaleg
þolraun en eftir að hafa eytt
nokkrum klukkutímum sofandi á
gólfinu, étandi nesti sem við
smurðum sjálfir komumst við að
öðru. Loksins kom að fluginu og
við á leiðinni með Virgin Atlantic
til Delhi í fndlandi. Við vissum
að það var búið að vera mjög
heitt í Delhi áður en við komum.
Allt upp í 47 stiga hiti en ég held
að við höfum ekki gert okkur
grein fyrir hversu heitt það er í
raun og veru. Með menguninni
innifalinni er þetta verra en að
vera í gufubaði. Ef þú bætir svo
við fólki hlaupandi á eftir þér að
reyna að selja þér eitthvað og
öðru fólki svo bækluðu að það er
ofar öllum mannlegum skilningi
veltandi sér eftir götunni færðu
ágætis mynd af Delhi.
Leigubflstjórinn rataði ekki neitt
A flugvellinum í Delhi fengum
við leigubilstjóra sem rataði
minna um borgina heldur en við.
Hann þurfti að stoppa nokkrum
sinnum til að spyrja til vegar.
Hann endaði á því að láta okkur
út við torg sem átti að vera rétt
við staðinn sem við vildum kom-
ast á. Og það var alveg rétt hjá
honum því þessi staður var mjög
nálægt þeirri götu sem við ætluð-
um okkur að fara en sú einfalda
athöfn að spytja einhvem i Delhi
til vegar og fá hann til að vísa þér
þangað er ekki svo einfold. það
hangir eitthvað á spýtunni hjá
öllum og allir era tengdir ferða-
skrifstofum eða gistiheimilum á
einhvern hátt þannig að þeir
reyna að sjálfsögðu að vísa þér á
þann stað sem geftir þeim mestan
pening. Svona gekk Delhi eigin-
lega fyrir sig í þá 2 daga sem við
eyddum þar. Sem sagt hiti og
ónæði allan tímann. Þó getum
við samt sagt að Delhi heilli á
vissan hátt. Við heyrðum svo að
staðurinn sem við ætluðum til
næst væri enn heitari en Delhi
þannig að við ákváðum að ferð-
ast öðruvísi um landið en upp-
runalega var planað. I staðinn
fyrir að fara útí í eyðimörkina í
Rajasthan tókum við rútu til
Himalaya-fjallanna.
Fengum öftustu sætin
Við urðum okkur úti um tvo
rútumiða til Manali í Himachal
Pradesh-fylkinu í Indlandi sem er
fjallafylki í Himalaya-fjöllunum
mjög nálægt Kashmír. Rútuferð-
in tók 18 tíma með stoppum og
auðvitað vorum við settir í öft-
ustu sætin í rútunni sem eru líka
þau verstu því það er ekkert hægt
að halla þeim. þeir sem sátu í
hinum sætunum gátu nánast flatt
út sín sæti eins og Lazy Boy
stóla. Þetta var alls ekki þessi
hefðbundna rútuferð. Fólk mátti
I reykja og drekka að vild og skipti
engu máli hvað var reykt. Sami
maðurinn keyrði allan tímann án
þess að sofa upp þessa þröngu og
kröppu fjallavegi og manni varð
um að líta niður hliðamar. Hann
kom okkur þó heilum til Manali.
Við heyrðum seinna að hann
myndi keyra aftur til Delhi
nokkrum klukkutímum seinna.
Manali leit strax betur út en Del-
hi. Hitinn á daginn er í kringum
25-30 stig en á nóttinni dettur
14
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!