Víkurfréttir - 10.07.2003, Blaðsíða 10
Ferskasta hlaðið á Suðurnesjum í sumar!
Skemmdarverk unnin á gæsluvelli
Síðustu daga hafa verið unnin
skemmdarverk á Miðtúnsróló, en
þar eru þær Magnea Grétarsdótt-
ir og Anna Andrésardóttir með barna-
gæslu. Svo virðist sem að unglingar geri
sér það að leik að skemma hiuti á
gæsluvellinum en þar hefur grindverk
verið skemmt og kofi sem þar stóð er al-
gjörlega ónýtur. Magnea segir að á
morgnana þurfi hún yfirleitt að týna
upp sígarettustubba af lóðinni. „Um síð-
ustu helgi var brotin rúða hjá okkur og
spreyjað á veggi. Eftir helgarnar þurf-
um við að týna upp glerbrot og sígar-
ettustubba af lóðinni,” segir Magnea og
bætir við að kofinn sem eyðilagður var
hafi verið mikið notaður af börnunum.
„Okkur finnst þetta ömurlegt og bömun- I
um auðvitað líka. Það em um 3 vikur síð-
an við löguðum grindverkið, en það virðist
ekki þýða neitt því það er skemmt strax
aftur,” sagði Magnea í samtali við Víkur-
fréttir.
Hamrar og sagir á lofti
hjá ungu kynslóðinni
Ahverju sumri breytist
malarvöllurinn í Kefla-
vík í stórt smíðaverk-
stæði þegar ungir krakkar
taka til við að smíða sín eigin
hús. Þegar litið er yfir völlinn
má sjá kofa af ýmsum gerðum
og stærðum og greinilegt er að
margir ungir upprennandi
smiðir taka sín fýrstu hamars-
högg þarna. Metnaður hinna
ungu smiða er mikill og áhug-
inn skín úr andlitum þeirra
sem þama standa og saga,
negla og naglhreinsa.
Það var nóg að gera hjá Eyrúnu, Laufeyju og Sigríði þegar Víkurfréttir tóku hús á þeim á malarvellinum í Keflavík þar
sem nú rís kofabyggð. Þær stöllur sögðu að það gengi vel hjá þeim að byggja kofann, en þær voru ekki alveg vissar um
hvort þær vildu leggja smíðina fyrir sig.
Þrjá daga að byggja
Vinirnir Konráð, Kristján, Arnór og Sigurjón eru búnir að
vera 3 daga að byggja þennan glæsilega kofa. Þeir sögðust
hafa mjög gaman af smíðinni og gætu alveg hugsað sér að
leggja smíðina fyrir sig.
10
VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!