Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.07.2003, Side 18

Víkurfréttir - 10.07.2003, Side 18
! I ÞórðurRúnar með Gunnari narkmannsljjáifara. Til hliðar kastar hann sér á eftir boltanum. Að neðan má sjá Elías Már Ómarsson með Gunnari Jónssyni þjálfara. Okkar menn í öldungalandsliðinu í golfi: Hófu leik í Slóveníu í gær Sigurður Albertsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja hóf leik í gær með félögum sínum í Öldunga- landsliði íslands í goltl i Bled í Slóveníu þar sem hann leikur á Evrópumóti Iandsliða með a- liðinu í ijórtánda sinn í röð. Auk Sigurðar eru þrír GS- kylfingar í tveimur landsliðum íslands en a-liðið leikur án for- gjafar en b-liðið með forgjöf. í a- liðinu er frá GS auk Sigurðar, Þorsteinn Geirharðsson og í b- liðinu þeir Einar Guðberg Gunn- arsson og Jón Ólafur Jónsson. Þorsteinn og Einar eru nýliðar í landsliðinu. Það má til gamans geta að Sigurður og Jón Ólafur voru lengi saman í Kefla- víkurliðinu í knattspymu og voru ma.í Islandsmeistaraliði þess 1964 og 1969. Fyrsti keppnisdagur okkar manna í Bled var í gær og höfðu þeir ekki lokið leik þegar blaðið fór í prentun. A forsíðu Víkurfrétta í síðustu viku kom frétt um landsliðsafrek Sigurðar en fyrir mistök rataði röng mynd með fréttinni þar sem textinn sagði Sigurð vera með eiginkonu sinni, en glöggir lesendur sáu að hún var víðs jarri. Hér er hins vegar rétt mynd með þessari ffétt með Erlendsinu Siguijónsdóttur brosandi við hlið Sigurðar. Keflvíkingar að stinga af? Keflvíkingar eru komnir með sex stiga forskot í 1. deild karla í knatt- spyrnu eftir öruggan 5-1 sigur gegn HK á Kópavogsvelli sl. föstudag í fyrri viku. Keflvíkingar halda sex stiga forystu eftir leikinn við Njarðvík á sunnudagskvöld, en Víkingar fylgja Keflavík og skipa annað sæti deildarin- nar, sex stigum neðar. Gestirnir úr Keflavík byrjuðu leikinn gegn HK betur og skor- uðu tvö mörk á fyrstu 13 mínút- unum en þar voru að verki Magnús Þorsteinsson og Hólm- ar Örn Rúnarsson. Eftir það hægðist aðeins á leiknum. Síð- asta hálftímann var mikið fjör og náðu Keflvíkingar að setja þijú mörk en þau skoruðu Þór- arinn Kristjánsson, Hörður Sveinsson og Scott Ramsey, þeir tveir síðastnefndu komu inn á seint í síðari hálfleik. Eins og áður sagði eru Keflvík- ingar með sex stiga forskot í deildinni með 21 stig að lokn- um átta umferðum. Magníis Þorsteinsson 2 boltar Hólmar Örn Rúnarsson 2 boltar Þómrinn Kristjánsson 1 bolti Hamldur Guðmundsson 1 bolti Kristján Jóhannsson 1 bolti Brynjar Guðmundsson 1 bolti Ólafiir ívar Jónsson 1 bolti Jónas Sævarsson 1 bolti Stefán Gíslason 1 bolti Tap á heima- velli hjá Njarðvík Njarðvíkingar hafa byrjað tímabilið í 1. deildinni ágætlega. Liðið hefur komið nokkuð á óvart með skemmtilegum og vel skipulögðum leik. Þeir töpuðu hins vegar fyrir Breiðabliki á heimavelli í frekar bragðdaufum leik þar sem gestimir áttu hættulegri færi. Njarðvíkingar skoruðu mark í seinni hálfleik sem dæmt var af og var það mál manna á pöllun- um (grashólnum) að þar hefði dómari leiksins gert mistök. Njarðvík er í 7. sæti deildarinn- ar eftir átta umferðir með 8 stig. Snorri Már Jónsson 1 bolti Högni Þórðarson 1 bolti Guðni Erlendsson 1 bolti Óskar Örn Hauksson 1 bolti KEFLAVIKURSTRAKAR GERÐUÞAÐGOTTÁ YNGRIFLOKKAMÓTUM Síðustu tvær helgar hafa farið fram mót fyrir yngri flokka drengja í knattspyrnu. Um síðustu helgi fór fram pollamót á Akureyri fyrir fimmta flokk og viku fyrr fór fram mót í Vestmannaeyj- um fyrir 6. flokk. Tveir leikmenn Keflavíkur gerðu það gott á þessum mótum. í Vest- mannaeyjum varð Elías Már Ómarsson markahæstur í flokki D-liða með 16 mörk. Það verður að teljast töluvert affek, sérstak- lega í ljósi þess að Elias er í 7. flokki og var því að spila bæði með og á móti sér eldri strákum. A Akureyri varð svo Þórður Rúnar Friðjónsson kosinn besti markvörðurinn í flokki B-liða. Fróðlegt verður að íylgjast með þessum ungu og efiiilegu drengj- um í fJamtíðinni. Keflvíkingar skora mest Þrír Keflvíkingar eru meðal fimm marka- hæstu manna 1. deildar karla í knattspyrnu. Keflavík hefur skorað flest mörkin í deildinni, eða 24 í átta leikjum. Magnús Sverrir Þorsteinsson er með sjö mörk í 2. sæti og Þórarinn Kristjánsson með sex mörk og þar á eftir Hólmar Örn Rúnarsson með 4 mörk. Markahæstu leikmenn Njarðvík- inga eru Högni Þórðarson og Óskar Örn Hauksson með sín þijú mörkin. 18 ViKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.