Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.07.2003, Side 9

Víkurfréttir - 24.07.2003, Side 9
Pistill #2 \\ meira efni frá þeim félögum á www.vf.is/heimsreisa ir eru fullar því við höfðum lent í vandræðum áður við að panta miða. Maður þarf að fylla út eyðublað og allt voða formlegt. Bíða svo i „röð” sem er rneira eins og Rugby-leikur. Hann fór með okkur á bakvið lestarstöð- ina. Benti okkur að fara inn á skrifstofu „The Big Man” eins og hann orðaði það. Feitur maður með túrban þar inni tók niður nöfnin okkar og kom okkur í lestina sem átti að fara daginn eftir. Þessa þjónustu geta víst bara túristar og ríkir Indverjar notið. Amritsar er 30 km austan við Pakistan og þar er eini staðurinn sem mögulegt er að fara milli þessara tveggja ríkja landleiðis. Tvisvar á dag taka hennenn Ind- lands og Pakistan þátt í athöfn sem felst í því að sýna yfirburði sýna yfir hinu landinu. Þessi at- höfh er í einu orði sagt fýndin og stemmningin sem myndast minn- ir á enskan fótboltaleik eða eitt- hvað. 5000 manns safnast þama saman og hvetja sinn her. Her- mennimir marsera og sýna alls- konar karlrembutakta. Opna svo hlið sem er meira táknrænt fýrir- bæri vegna þess að engin girðing skilur þessi tvö lönd að. Hvort land notar sína stærstu menn, helst ekki undir 2 metmm og at- höfnin tekur um 40 mínútur. Eftir athöfnina er hliðunum skellt og fólk úr hvoru liðinu safhast sam- an til að steyta hnefa að hvoru öðm. Mjög fýndið. Eftir athöfii- ina þegar við vomm að labba til baka að leigubílnum okkar feng- um mikla athygli Indveija. Jafn- vel meiri en í Amritsar sjálfri. Hópur fólks kom upp að okkur, strauk á okkur kinnamar og vildi bara snerta okkur. Hemmi var spurður hvemig hann hefði látið setja tattooin á sig. Sennilega höfðu þau aldrei séð svona áður. Okkur finnst eins og við höfum fengið smá innsýn inn í daglegt líf kvikmyndastjörnu. Það vant- aði bara að við værum beðnir urn eiginhandaráritanir..... Nei, það vantaði nefnilega ekki! Fólk bað okkur í alvöru talað um eigin- handaráritanir! Það fannst okkur nú toppa allt saman. Daginn eftir var kominn tími til kominn að kveðja Amritsar. Kvöddum ekki beint með sorg í hjarta, aðallega vegna hita, en þó reyndist þessi borg hafa upp á margt að bjóða sem okkur gmn- aði ekki að við ættum eftir að lenda í. Við stukkum upp i lest og allt leit bara vel út. Lestin átti að vera full en því var sko fjarri. Þannig að við fundum okkur bara bestu kojurnar þó að við ættum ekki einu sinni miða í svefnpláss. Þessi ferð lagðist yndislega vel í okkur fyrstu 8 tímana og um tíma héldum við að þessar kojur væru okkar alla ferðina. „Þvílíkur draumur” hugsuðum við og glottum að hvorum öðrum. En þegar lestin svo stoppaði í Delhi og fýlltist á 2 mínútum var okkur vísað úr kojunum og sagt að við ættum pláss í öðmm vagni. Við löbbuð- um yfir í þann vagn og hann leit ennþá betur út. Lofkæling, teppi, Sátum í þessu hræi í 6 tíma án þess að geta hreyft okkur múkk. koddar, mjúkar dýnur, nánast tómur. Komum okkur vel íýrir og orðið „Himnariki” barst meira að segja í tal. En eins fljótt og hinn vagninn fýlltist af fólki breyttist himnaríki okkar í helvíti. Miða- eftirlitsmaðurinn kom til okkar og sagði að okkar vagn væri enn- þá Iengra í hina áttina. Röltum svekktir yfir og þegar við sáum að sá vagn var meira troðinn af fólki en sá íýrsti og ekkert pláss laust, sáum við okkur knúna til að eyða restinni af ferðinni(16 tímum) inni í skáp. Til að gera langa sögu stutta var restin af ferðinni ekkert annað en mann- réttindabrot. Við vældum eins og litlir krakkar yfir hlutum sem meðal Indverji upplifir nánast dag hvem. Lestarferð „dauðans” var nú lok- ið og við komnir yfir landamærin til Nepal. Aldrei hefði manni dottið í hug að maður skyldi finna svona mikinn mun á því að fara yfir eina línu. Indlandsmeg- in við línuna=ringulreið og Nepalmegin=ffiður. Þá var kom- ið að síðasta farartækinu okkar í nokkurn tíma. 8 tíma rútuferð til Pokhara með einu stórbrotnasta landslagi sem maður hefur séð. Þetta var eins og að keyra í gegn- um frumskóg. Stefnan var að eyða viku í Pokhara og þar emm við þegar þetta er skrifað. Aldrei í ferðinni hingað til höfum við fundið eins afslappaðan stað. Lít- ið af túristum og skemmtistaðir mega ekki hafa framhurðina opna eftir kl 23:00 en þó er hægt að laumast inn á bakvið hús. Við fórum bara snemma að sofa fyrsta kvöldið og ætlum okkur bara að halda blóðþrýstingnum fyrir neðan eðlileg rnörk allan tímann héma. Okkur finnst við eiga það skilið eftir að hafa ferð- ast alla þessa leið. Vonandi líður ekki eins langur timi að næsta pistli svo að hægt sé að hafa þá styttri, en í Asíu getur maður ekki treyst á það. Til dæmis sló raf- magninu tvisvar út á meðan við skrifuðum þessar línur. Heyrumst seinna!! Kveöja frá Nepal. Hemmi & Maggi Skoðið einnig: www.vf.is/heimsreisa 1 I SSSHf ning í feröina er hjá SBK, umboásaðila Úrvals Útsýnar. Sími 420 6000 www.sbk.is FERÐIR tJ ij'j'ÍliJ/'fJSijUJJJ narí í febrúar 2004 Úrval Útsýn hefur tekið frá sæti fyrir eldri borgara á Suðurnesjum 7. febrúar til 6. mars 2004 og gistingu á Teneguia íbúbahótelinu og nokkrar íbúðir á Roque Nublo. hópferðir • bílaleiga ferðaskrifstofa Grófin 2-4 Fararstjóri fyrir hópinn er Birna Zopnaníasdóttir. Verb f. mann á Teneguia m.v. 2 í íbúb kr. 114.430,- Verö f. mann á Roque Nublo m.v. 2 í íbúð kr. 113.830,- Innifaliö: Flug, gistina í 4 vikur, flugvallarskattar og fararstjórn. ±rll/ VÍKURFRÉTTIR I 30.TÖLUBLAÐ I FIMMTUDACURINN24.JÚU 2003 19

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.