Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.08.2003, Page 18

Víkurfréttir - 14.08.2003, Page 18
Blaut fjölskylduhátíð í Vogum Árleg flölskylduhátíð í Vogum var haldin í rigningunni um síðustu helgi. Leiktækjum var komið fyrir við Aragerði. Hreppsbúar létu hins vegar ekki á sig fá þó svo „nokkrir" dropar kæmu af himnum. Meðfylgjandi myndir tók Hilmar Bragi, ljósmyndari blaðsins, í tilefhi dagsins. Hljómsveitin Flugan sendi frá sér nýverið hljóm- diskinn Háaloftið. Á honum er að finna 10 lög af ýmsum toga. Fluguna skipa: Guðmundur Skúlason, Kristinn H. Einarsson, Ólafur Þór Ólafsson og Sindri Guðmundsson. Auk þeirra koma við sögu Guðmundur Freyr Jónsson, Ágúst Þór Benediktsson, Heiðmundur B. Clausen, Karl Óttar Geirsson, Ragn- heiður Gröndai, Viiberg Ólafsson og Guðmundur Kristinn Jónsson sem einnig sá um upptökur og viðvik því tengd. Umslagið er smekklega hannað í grunge-art stíl og kemur sterkt inn. Það var Guðmundur Freyr Jónsson sem hannaði allt útlitið. Ég hafði fengið í hendur disk með 2 lögum af plötunni og verð ég að segja að mér leist eiginlega ekkert á blik- una. En þegar ég fékk sjálfan diskinn í hendurnar þá urðu lögin allt önnur. Þau fengu ein- hvers konar samhengi við hin lögin. Lögin á plötunni eru af ýmsum toga eins og áður segir. STILLIMYND, er prýðilegt lag með einfaldri aðallaglínu. En viðlagið sem sungið er „na na na na na na” greip mig strax og fékk ég það á heilann undir eins. Fínt stuðlag sem virkar vel. Reyndar fannst mér svolítið fyndið að heyra upphafssetningamar „Hvai ert þú? Kaffið er orðið kalt”. Þetfc vekur athygli og gæti orðið sveit- inni til framdráttar. DRAMA er ágætis poppballaða sem rokkast á kafla og skemmir það ekkert fýrir. Lagið byggist upp á flnni lag- línu, flottum undirleik og er fullt af góðum hugmyndum. Lagið er ágætis sunnudagslag (svona eins og þegar rás 1 var eina stöðin og alltaf rigning), svolítið þungt og jafhvel sorglegt. Mér finnst söngur Ragnheiðar Gröndal gefa lag- inu smá keim af Spilverki þjóðanna og er þar ekki leiðum að líkjast. HÁALOFTIÐ, titillag plötunnar, byijar á einfoldu stefi en mjög vel útfærðu. Þetta stef er notað sem millistef í laginu og kemur alltaf sterkt inn. Það er skemmtileg stemmning í laginu og svolítið dularfull og prýðileg út- færsla við ljóð Guðrúnar Lám Baldursdóttur sem er ekki rimljóð, en það er einhvers konar óskrifuð regla í íslensku poppi að það þurfi allt að ríma - hversu illa sem það er gert. Hresst og skemmtilegt lag við skemmtilegan texta. í DRAUMI er annað af þeim lögum sem ég hafði áður fengið á diski. Sem eitt og sér er það hálf aumingjalegt en í tengslum við lögin sem á und- an koma þá er það alveg prýðis- ballaða. Lagið er ákaflega ein- falt og er haldið uppi á einfold- um undirleik. En á kafla virðist sem eigi að djassa lagið svolit- ið og kemur Ragnheiður Grön- dal þar með einhverja tóna sem sumir passa vel við en aðrir eins og hálf kjánaleg til- raun. Það er jafnvel eins og undirröddin hafi verið samin á meðan hún var tekin upp. HERÓÍN er eins og titillinn gefur til kynna lag um heróín. Þarna er á ferðinni prýðilegur popp-rokk-funk bræðingur jöar sem ég hefði reyndar kosið að heyra texta um annað því að lög um eiturlyf eru að mínu mati orðin þreytt og komin á stall með væmnum ástarlögum. Að syngja um eiturlyf má eiginlega segja að (svo ég vitni í lagið sjálft) „Jafnvel þó þú þurfir þess þá er það hættulegt”. Frekar vil ég heyra ástartexta. En hvað um það, lagið er skemmtileg blanda og með áhugaverðum pælingum. Hönnuður umslagsins á fantagóða spretti á bassa í þessu lagi, bassinn verður að mikilvægari taktgjafa en trommumar í þessu lagi. FULLKOMINN er stutt hljómborðspæling sem er inn- gangur að laginu sem á eftir kemur. Þetta virkar á mig eins og þunglyndisleg pæling í sunnudagsskapi - eins og ég nefhdi áðan. Án samhengis við lagið á eftir hugsaði ég með mér hvort ekki hefði verið gáfulegra að splæsa þessu Plötudómur: Tekið til á háaloftinu í eitt lag en þegar þau eru sett í samhengi þá var það bara ágætt að svo varð ekki. VELLIÐAN er rokklag sem minnir mig pínulítið á hljómsveitina Rauða Fleti og örlítið á Stuðkompaníið, sem voru upp á sitt besta í kringum 1986. Lagið hefur að geyma svipaða pælingu og Stillimynd þ.e.a.s. grípandi viðlag. Og ég verð að segja þetta er stuðrokklag sem renn- ur beint í æð án nokkurra milliliða. Hér skiptir textinn reyndar engu máli nema í viðlaginu „Mér líður svo vel” þó svo að pælingin sé fln. Hammondinn í laginu og gítar- sólóið gera þetta lag að bombu. Ég verð eiginlega hissa ef þetta lag fær ekki spilun í útvarpi sem eitt af stuðlögum ársins. FLUGAN heitir lag sem er svolítið Skítamóralslegt og með viðlagi sem er þokkalega grípandi. Ágætis útileg- usmellur, auðvelt að læra og gaman að syngja. Það má jafnvel búa til svona leikskólahreyfingar / -dans við þetta. KONUKVALARINN er hitt lagið sem ég hafði heyrt áður. Satt best að segja þá finnst mér hér komið það lag sem mér finnst hvað síst á þessari plötu. Ekki vegna und- irleiks heldur vegna þess hversu textinn er óþjáll og þetta orð „Konukvalarinn” er eitthvað svo ljótt. Söngurinn er allt of rembingslegur. Laglínan einfaldlega fellur ekki vel að þessari rödd. Undirleikurinn er hinsvegar prýðilegur. ÁVALLT er enn ein ballaðan á þessari plötu. Þetta er eig- inlega dæmigert lokalag plötu, rólegt og skilur mann eftir í smá tómarúmi þegar það er búið. Ágætis raularalag en þó ekkert allt of gripandi við fyrstu hlustun. Platan er frekar heilsteypt og skemmtileg að hlusta á ef undan eru skilin nokkur atriði sem ég hef þegar tíundað og í langflestum tilvikum eru það smáatriði. Mér fannst ég heyra áhrif frá nokkrum tónlistarmönnum og hljómsveit- um á borð við David Sylvian, Robert Fripp, Yes, Maus, Hljóma og einhverja fleiri en hvort Flugu-menn kannist við þá veit ég ekki. Hér eru á ferð ágætis lagasmiðir og engir aukvisar í hljóðfæraleik. Textana má aðeins fln- pússa. Eins og áður sagði er titillag plötunnar „Háaloftið” prýðilega heppnað hvað varðar samspil lags og texta. Ég held að Flugan eigi sér bjarta framtíð ef þeir halda áfram á sömu braut og ég hlakka til þegar þeir taka til í kjallaranum. hallur@vf.is 18 VÍKURFRÉTTIRÁ NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.