Fréttablaðið - 20.01.2017, Page 2

Fréttablaðið - 20.01.2017, Page 2
Polar Nanoq enn kyrrsett í Hafnarfjarðarhöfn Töluvert magn af hassi fannst í grænlenska togaranum Polar Nanoq í fyrrinótt. Fíkniefnin fundust við leit í skipinu. Samkvæmt heimildum Frétta- stofu 365 er magn fíkniefnanna í kílóum talið. Lögreglan telur að fíkniefnafundurinn tengist ekki hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Fréttablaðið/Jóhann Veður Suðaustan 8-15 m/s. Þurrt norð- austanlands, annars súld eða rigning. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig, en svalara í fyrstu norðaustan til á landinu. sjá síðu 22 Frá kr. 111.195 m/morgunmat MADEIRA 23. apríl í 11 nætur Netverð á mann frá kr. 111.195 m.v. 2 fullorðna í herbergi. Hotel Orquidea Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Allt að 25.000 kr. afsláttur á mann í janúar HEILBRIGðIsMáL Meira  er neytt af sælgæti, kökum og gosdrykkjum á Íslandi en annars staðar á Norður­ löndum. Neyslan hefur ekki minnkað frá árinu 2011 eins og gerst hefur hjá öðrum Norðurlandaþjóðum að Sví­ þjóð undanskilinni þar sem neyslan hefur staðið í stað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um heilsuhegðun Norðurlandabúa sem greint er frá á vef landlæknis. Embættið stóð fyrir könnun á matar æði, hreyfingu og holdafari hér á landi og var könnunin í samstarfi við rannsakendur frá Danmörku, Noregi, Finnlandi og Svíþjóð. Önnur umferð fór fram haustið 2014 en fyrri umferð haustið 2011. Íslendingar borða minnst af græn­ meti og ávöxtum miðað við önnur norræn ríki og hefur neyslan ekkert breyst á tímabilinu. Sömuleiðis borða Íslendingar minnst af heilkornabrauði og hefur neyslan minnkað milli ára. Fiskneysla er aftur á móti mest á Íslandi og er óbreytt milli kannana. Hlutfall Íslendinga sem borða óhollan mat hefur hækkað úr 19 prósentum í 25 prósent en meðal Norðurlandabúa í heild hefur hlutfallið hækkað úr 18 prósentum í 22. Þrátt fyrir jákvæða þróun í matar­ æði barna hefur félagslegur ójöfnuður í mataræði aukist, að því er segir í frétt á vef landlæknis. Þar kemur fram að niðurstöður varðandi mataræði barna á Norðurlöndum séu jákvæðari en hjá fullorðnum. Tæplega 15 pró­ sent norrænna barna neyta mataræð­ is sem telst óhollt og hefur það ekki breyst frá 2011. Hlutfallið á Íslandi er sambærilegt við önnur norræn ríki. Tvöfalt fleiri börn foreldra með minnstu menntun teljast hins vegar Íslendingar borða mest af sætindum Hlutfall Íslendinga sem borða óhollan mat hefur aukist samkvæmt könnun landlæknis. Fleiri of feitir hér en annars staðar á Norðurlöndunum. Félagslegur ójöfnuður í mataræði hefur aukist. Lægst tíðni áfengisneyslu á Íslandi. Íslensk og finnsk börn borða mest af sykri. Fréttablaðið/StEFÁn FjaRskIptI Hlutfall línulegs áhorfs á íslenskar sjónvarpsstöðvar stendur í stað á milli áranna 2015 og 2016 og mælist 86,7 prósent alls áhorfs á dag­ skrá íslenskra sjónvarpsstöðva. Hliðrað áhorf, sem fram fer innan sólarhrings frá útsendingu, eykst úr 8,7 prósentum í 9,3 prósent og hliðr­ að áhorf, sem fer fram eftir sýningar­ dag, mælist fjögur prósent. Línulegt áhorf mældist 95,6 pró­ sent alls áhorfs árið 2012. Mest mælist línulegt áhorf á Sjónvarp Símans, 88,3 prósent. Línulegt áhorf á RÚV og Stöð 2 mælist 81,2 prósent. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir Póst­ og fjarskiptastofnun og birt var í vikunni. Heildaráhorf á íslenskar sjón­ varpsstöðvar minnkaði úr 120 mín­ útum á dag að meðaltali og í 110 mínútur sé miðað við desember­ mánuði 2015 og 2016. Árið 2012 var meðaláhorf 140 mínútur á dag. – þea Línulegt áhorf stendur í stað stjóRnMáL „Geir H. Haarde, sendi­ herra okkar í Washington, verður viðstaddur embættistöku Donalds Trump,“ segir Andri Lúthersson, deildarstjóri upplýsingamála hjá utanríkisráðuneytinu. Í dag mun Donald Trump sverja embættiseið og taka við völdum sem 45. forseti Bandaríkjanna. Öllum sendiherrum erlendra ríkja í Washington­borg er boðið til embættistökunnar og er það bandaríska utanríkisráðuneytið sem heldur utan um skipulag þess. Geir H. Haarde mun sitja á sérsvæði, ásamt erindrekum erlendra ríkja, fyrir framan þinghúsið á Capitol­ hæð þar sem embættistakan fer fram. Búist er við að nokkur hundruð þúsund manns muni koma saman fyrir framan þinghúsið í dag til þess að fylgjast með embættistökunni. – þh Geir H. Haarde verður viðstaddur Donald trump sver embættiseið í dag í Washington. norDicPhotoS/GEtty borða óhollt 2014 heldur en 2011, það er 25 prósent miðað við 12 pró­ sent 2011. Færri börn foreldra með mestu menntun teljast borða óhollt 2014 en 2011. Hlutfall þeirra sem hreyfa sig ekk­ ert er hæst á Íslandi og í Noregi árið 2014. Hefur það hækkað hér á landi úr 14 prósentum í 17 prósent á tíma­ bilinu. Hlutfall 18 til 24 ára Norður­ landabúa sem hreyfa sig ekkert hefur nær tvöfaldast og er nú sambærilegt við eldri aldurshópa eða um 12 pró­ sent 2014. Á Íslandi er hærra hlutfall fullorð­ inna sem teljast of feitir en annars staðar á Norðurlöndunum en í heild­ ina flokkast fleiri fullorðnir of feitir á Norðurlöndunum 2014  heldur en 2011. Lægst tíðni áfengisneyslu og ölvunar drykkju er á Íslandi. Danir drekka oftast en Norðmenn drekka sig oftast ölvaða. Í könnununum var safnað gögnum um samtals 4.949 börn á aldrinum 7­12 ára og 17.775 fullorðna á aldr­ inum 18­65 ára á Norðurlöndunum. ibs@frettabladid.is 17% Íslendinga hreyfa sig ekkert sem er aukning um þrjú pró- sent frá árinu 2012 25% barna sem eiga lítið mennt- aða foreldra borða óhollt 2 0 . j a n ú a R 2 0 1 7 F Ö s t u D a G u R2 F R é t t I R ∙ F R é t t a B L a ð I ð 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 0 -1 C B 0 1 C 0 0 -1 B 7 4 1 C 0 0 -1 A 3 8 1 C 0 0 -1 8 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.