Fréttablaðið - 20.01.2017, Page 13

Fréttablaðið - 20.01.2017, Page 13
Nostalgía selur. Kannski aldrei meira en nú. Það er yndislegt að fara á Star Wars í bíó í nýju Air Jordan re-issue skónum sínum. Maður er í svo góðum málum. Maður getur verið viss um að búið sé að taka Star Wars hugmyndina og nútíma- væða hana hæfilega mikið. Það eru ekki lengur 70’s karlrembubrandarar í handritinu og Air Jordan skórnir eru heldur ekki löðrandi í tuttugu ára gamalli táfýlu. Þeir eru glænýir. Nýtt gúmmí eftir gömlum teikningum. En Disney og Nike eru ekki fyrstu fyrirtækin sem fatta að fólk vill ylja sér við gamlar hugmyndir. Þetta hefur alltaf verið svona. Ein þrautseigasta nostalgía okkar menningar er til dæmis ameríska dæner-hugmyndin. Ég er að tala um þá tilhneigingu að innrétta veitingastaði eins og árið sé 1955 og við séum stödd í miðríkjum Bandaríkjanna. Glymskratti í horninu, rokkabillí á fóninum, sjeik á matseðlinum, gullplötur á veggjum og bara almennt stuð. Svona veitingastaðir eru opnaðir á degi hverjum í hinum vestræna heimi, og ávallt sem vísun í liðinn tíma og horfið sakleysi. Hard Rock heimur Ameríski dænerinn var upprunalega keyrður áfram af bjartsýni um efna- hagslegar framfarir og samfélagslegan stöðugleika. Þetta var bjartsýni sem við gætum í dag nefnt sakleysi frekar en að ganga alla leið og kalla það barnaskap. Bjartsýnin gekk út á að fólk gæti vand- ræðalaust keyrt um á tveggja tonna stálflykkjum með sígarettur í munn- vikinu og borðað kólesteról-mettaðan mat með vanillusjeik og dillað sér svo fram eftir kvöldi við trumbuslátt „negratónlistar“ eins og hún var kölluð þá. Þetta var stemningin á árunum í kringum 1955-1960. Fólk var ekki hrætt við gróðurhúsaáhrif, kransæða- stíflur eða mótmæli gegn þjóðskipu- laginu og það hélt kannski í skamma stund að dæner-menningin myndi vara að eilífu. Bílarnir urðu allavega stærri með hverju árinu, hraðbrautirnar breiðari, franskarnar djúpsteiktari og tónlistin ágengari. Og stemningin hvarf aldrei alveg. Það er enn verið að reiða fram franskar og hamborgara á dænerum víðsvegar um hinn vestræna heim án þess að það sé hluti af þematengdum nostalgíu- leik. Bílar eru enn framleiddir og fólk hlustar á músík löðrandi í unglinga- greddu og rómantík. En fólk gerir það ekki eins. Bílarnir eru fastir í umferð (og bílstjórarnir vita að þeir ættu að vera annarstaðar). Allir eru meðvitaðir um ósonlagið, æðaþrengingar, sykur- sýki og kynbundið- og kynþáttatengt ofbeldi. Það er alveg hægt að bíta í hamborgara og láta bílinn sinn malla í hægagangi fyrir utan vegasjoppu án þess að vera handtekinn. En það krefst ákveðinnar ögunar, nánast sjálfsblekk- ingar, að telja sér trú um að í því felist stemning. Og nú, þegar maður getur varla klæðst leðurjakka lengur án þess að hugsa um afleiðingar þess má eigin- lega segja að síðasta vígið sé fallið. Sak- leysið er horfið. Og í því samhengi sem það er sett fram hér þá er það hvorki gott né slæmt. Samhengið sem ég er að reiða fram er annars eðlis. Það er alltaf gaman Horfum til dagsins í dag. Undanfarin ár hefur ríkt annars konar sakleysi. Það er sakleysi gagnvart upplýsinga- byltingunni. Við höfum sífellt fengið léttari og minni snjalltæki sem tengjast betur og hraðar en árið á undan. Þetta hefur verið frábært. Músík, myndir, matur, skutl, skoðanir, tilfinningar og húkköpp er allt komið í seilingarfjar- lægð. Þetta er allt í höndum okkar. Það er eiginlega ekki hægt að leiðast. Það er alltaf snilld kraumandi í eyrum manns. Það er alltaf ein lollandi góð athuga- semd einhvers staðar sem fær mann til að sjá hið skondna í nánast hvaða aðstæðum sem er. Það er hægt að tala við vini sem búa annarstaðar á hnett- inum. Það er hægt að eignast vini sem búa í næsta húsi og maður vissi ekki að maður ætti neitt sameiginlegt með fyrr en reiknilíkan benti manni á það. Það er hægt að tækla allt með upplýsingum og sítengingu. Ljót leyndarmál leka út, lýðræði eykst, vondu kallarnir komast ekki upp með neitt lengur. Fjarlægðir hverfa, aðskilnaður, erfiðleikar, sökn- uður og einmanaleiki heyra sögunni til. Eða þannig höfum við allavega stundum haldið að það sé. Og stundum hefur það verið einmitt þannig. Það hefur ríkt æðisgengin bjartsýni. Fólk hefur gúglað sig í gegnum ótrúlegustu hluti. Milljónir manna hafa öðlast vald og tilgang. Það fylgir því víma að fá upplýsingar um leið og allir hinir og vera hluti af einhverju risastóru og jákvæðu. Það fylgir því vald að nafn- birta ofbeldismenn og skrifa „Kæra Eygló“ bréf og hafa áhrif, og þetta vald er komið til að vera, en ábyrgðin sem því fylgir er það einnig. Síðustu ár hafa verið algjört „wipe the windows, check the oil, dollar gas“ og kveikt í rettu á bensínstöð, en sú stemning er óðum að klárast. Upplýsingabyltingin mun brátt hætta að vera ævintýraleg og verða hversdagsleg. Manstu eftir Instagram? Ég er ekki að segja að frá og með morgundeginum hætti snjallsímar að léttast og tengingar að aukast. Sú þróun á margt eftir. Rétt eins og bílar hafa þróast mikið frá árinu 1955. Ég er ekki heldur að segja að snjallsímar og sítenging leiði framvegis aðeins til kvíða og fráhvarfa. Ég er þvert á móti að segja að nú er heildarmyndin sýnileg. Nú vitum við hvernig hin hliðin á þróuninni er, og það er sak- leysismissir sem verður aldrei aftur- kallaður. Og hver veit. Kannski verður tímabilið, sem er rétt afstaðið, gírugu og hugmyndaríku viðskiptafólki til andagiftar. Eftir fimmtíu ár verður kannski sérlega mikil stemning fyrir því að dreifa ferningslaga myndum á gamaldags Instagram-forriti, til að rifja upp þá tíma þegar það var enn stuð og stemning, en ekki hversdagsleg og stundum óhugnanlega slítandi iðja. Dæner-sakleysi Bergur Ebbi Í dag Það fylgir því víma að fá upp- lýsingar um leið og allir hinir og vera hluti af einhverju risastóru og jákvæðu. Það fylgir því vald að nafnbirta ofbeldismenn og skrifa „Kæra Eygló“ bréf og hafa áhrif, og þetta vald er komið til að vera, en ábyrgðin sem því fylgir er það einnig. PI PA R\ TB W A -S ÍA Stærð: 370 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði Stærð: 648,5 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði Stærð: 1.501 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is Íslenska ríkið er eigandi þeirra fasteigna sem auglýstar eru. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar eftir tilboðum í þær. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun eignanna, s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum. Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is Stærð: 2.385 m2 Tegund: Skrifstofur/Vöruhús Stærð: 400 m2 Tegund: Atvinnuhúsnæði SUÐURBRAUT 890 VALHALLARBRAUT 891 Fasteignir til sölu á Ásbrú Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja, gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar. BOGATRÖÐ 17BOGATRÖÐ 2BOGATRÖÐ 1 s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö s T u d a g u R 2 0 . j a n ú a R 2 0 1 7 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 0 -2 1 A 0 1 C 0 0 -2 0 6 4 1 C 0 0 -1 F 2 8 1 C 0 0 -1 D E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.