Fréttablaðið - 20.01.2017, Qupperneq 13
Nostalgía selur. Kannski aldrei meira en nú. Það er yndislegt að fara á Star Wars í bíó í nýju
Air Jordan re-issue skónum sínum.
Maður er í svo góðum málum. Maður
getur verið viss um að búið sé að taka
Star Wars hugmyndina og nútíma-
væða hana hæfilega mikið. Það eru
ekki lengur 70’s karlrembubrandarar
í handritinu og Air Jordan skórnir
eru heldur ekki löðrandi í tuttugu ára
gamalli táfýlu. Þeir eru glænýir. Nýtt
gúmmí eftir gömlum teikningum.
En Disney og Nike eru ekki fyrstu
fyrirtækin sem fatta að fólk vill ylja sér
við gamlar hugmyndir. Þetta hefur alltaf
verið svona. Ein þrautseigasta nostalgía
okkar menningar er til dæmis ameríska
dæner-hugmyndin. Ég er að tala um þá
tilhneigingu að innrétta veitingastaði
eins og árið sé 1955 og við séum stödd í
miðríkjum Bandaríkjanna. Glymskratti
í horninu, rokkabillí á fóninum, sjeik á
matseðlinum, gullplötur á veggjum og
bara almennt stuð. Svona veitingastaðir
eru opnaðir á degi hverjum í hinum
vestræna heimi, og ávallt sem vísun í
liðinn tíma og horfið sakleysi.
Hard Rock heimur
Ameríski dænerinn var upprunalega
keyrður áfram af bjartsýni um efna-
hagslegar framfarir og samfélagslegan
stöðugleika. Þetta var bjartsýni sem við
gætum í dag nefnt sakleysi frekar en að
ganga alla leið og kalla það barnaskap.
Bjartsýnin gekk út á að fólk gæti vand-
ræðalaust keyrt um á tveggja tonna
stálflykkjum með sígarettur í munn-
vikinu og borðað kólesteról-mettaðan
mat með vanillusjeik og dillað sér
svo fram eftir kvöldi við trumbuslátt
„negratónlistar“ eins og hún var kölluð
þá. Þetta var stemningin á árunum
í kringum 1955-1960. Fólk var ekki
hrætt við gróðurhúsaáhrif, kransæða-
stíflur eða mótmæli gegn þjóðskipu-
laginu og það hélt kannski í skamma
stund að dæner-menningin myndi vara
að eilífu. Bílarnir urðu allavega stærri
með hverju árinu, hraðbrautirnar
breiðari, franskarnar djúpsteiktari og
tónlistin ágengari.
Og stemningin hvarf aldrei alveg.
Það er enn verið að reiða fram franskar
og hamborgara á dænerum víðsvegar
um hinn vestræna heim án þess að það
sé hluti af þematengdum nostalgíu-
leik. Bílar eru enn framleiddir og fólk
hlustar á músík löðrandi í unglinga-
greddu og rómantík. En fólk gerir það
ekki eins. Bílarnir eru fastir í umferð
(og bílstjórarnir vita að þeir ættu að
vera annarstaðar). Allir eru meðvitaðir
um ósonlagið, æðaþrengingar, sykur-
sýki og kynbundið- og kynþáttatengt
ofbeldi. Það er alveg hægt að bíta í
hamborgara og láta bílinn sinn malla
í hægagangi fyrir utan vegasjoppu án
þess að vera handtekinn. En það krefst
ákveðinnar ögunar, nánast sjálfsblekk-
ingar, að telja sér trú um að í því felist
stemning. Og nú, þegar maður getur
varla klæðst leðurjakka lengur án þess
að hugsa um afleiðingar þess má eigin-
lega segja að síðasta vígið sé fallið. Sak-
leysið er horfið. Og í því samhengi sem
það er sett fram hér þá er það hvorki
gott né slæmt. Samhengið sem ég er að
reiða fram er annars eðlis.
Það er alltaf gaman
Horfum til dagsins í dag. Undanfarin
ár hefur ríkt annars konar sakleysi.
Það er sakleysi gagnvart upplýsinga-
byltingunni. Við höfum sífellt fengið
léttari og minni snjalltæki sem tengjast
betur og hraðar en árið á undan. Þetta
hefur verið frábært. Músík, myndir,
matur, skutl, skoðanir, tilfinningar og
húkköpp er allt komið í seilingarfjar-
lægð. Þetta er allt í höndum okkar. Það
er eiginlega ekki hægt að leiðast. Það er
alltaf snilld kraumandi í eyrum manns.
Það er alltaf ein lollandi góð athuga-
semd einhvers staðar sem fær mann
til að sjá hið skondna í nánast hvaða
aðstæðum sem er. Það er hægt að tala
við vini sem búa annarstaðar á hnett-
inum. Það er hægt að eignast vini sem
búa í næsta húsi og maður vissi ekki að
maður ætti neitt sameiginlegt með fyrr
en reiknilíkan benti manni á það. Það
er hægt að tækla allt með upplýsingum
og sítengingu. Ljót leyndarmál leka út,
lýðræði eykst, vondu kallarnir komast
ekki upp með neitt lengur. Fjarlægðir
hverfa, aðskilnaður, erfiðleikar, sökn-
uður og einmanaleiki heyra sögunni
til. Eða þannig höfum við allavega
stundum haldið að það sé. Og stundum
hefur það verið einmitt þannig. Það
hefur ríkt æðisgengin bjartsýni. Fólk
hefur gúglað sig í gegnum ótrúlegustu
hluti. Milljónir manna hafa öðlast
vald og tilgang. Það fylgir því víma að
fá upplýsingar um leið og allir hinir
og vera hluti af einhverju risastóru og
jákvæðu. Það fylgir því vald að nafn-
birta ofbeldismenn og skrifa „Kæra
Eygló“ bréf og hafa áhrif, og þetta vald
er komið til að vera, en ábyrgðin sem
því fylgir er það einnig. Síðustu ár hafa
verið algjört „wipe the windows, check
the oil, dollar gas“ og kveikt í rettu á
bensínstöð, en sú stemning er óðum að
klárast. Upplýsingabyltingin mun brátt
hætta að vera ævintýraleg og verða
hversdagsleg.
Manstu eftir Instagram?
Ég er ekki að segja að frá og með
morgundeginum hætti snjallsímar
að léttast og tengingar að aukast. Sú
þróun á margt eftir. Rétt eins og bílar
hafa þróast mikið frá árinu 1955. Ég
er ekki heldur að segja að snjallsímar
og sítenging leiði framvegis aðeins
til kvíða og fráhvarfa. Ég er þvert á
móti að segja að nú er heildarmyndin
sýnileg. Nú vitum við hvernig hin
hliðin á þróuninni er, og það er sak-
leysismissir sem verður aldrei aftur-
kallaður. Og hver veit. Kannski verður
tímabilið, sem er rétt afstaðið, gírugu
og hugmyndaríku viðskiptafólki til
andagiftar. Eftir fimmtíu ár verður
kannski sérlega mikil stemning fyrir
því að dreifa ferningslaga myndum á
gamaldags Instagram-forriti, til að rifja
upp þá tíma þegar það var enn stuð
og stemning, en ekki hversdagsleg og
stundum óhugnanlega slítandi iðja.
Dæner-sakleysi
Bergur Ebbi
Í dag
Það fylgir því víma að fá upp-
lýsingar um leið og allir hinir og
vera hluti af einhverju risastóru
og jákvæðu. Það fylgir því vald
að nafnbirta ofbeldismenn og
skrifa „Kæra Eygló“ bréf og hafa
áhrif, og þetta vald er komið til
að vera, en ábyrgðin sem því
fylgir er það einnig.
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Stærð: 370 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 648,5 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Stærð: 1.501 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar | Sími 425 2100 | www.kadeco.is
Íslenska ríkið er eigandi þeirra fasteigna sem auglýstar eru. Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, sem fer með umsjón og þróun svæðisins, óskar
eftir tilboðum í þær. Við mat á tilboðum verður einkum horft til kaupverðs. Þó er áskilinn réttur til að meta hugmyndir bjóðenda um nýtingu og ráðstöfun
eignanna, s.s. áhrif á eftirspurn eftir öðrum eignum á svæðinu og almennt á nærsamfélagið. Ekki er um útboð á eignunum að ræða heldur sölu. Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar áskilur sér rétt til að taka því tilboði sem það telur hagstæðast, m.a. út frá ofangreindum þáttum, eða hafna þeim öllum.
Þú getur skoðað eignirnar nánar á kadeco.is
Stærð: 2.385 m2
Tegund: Skrifstofur/Vöruhús
Stærð: 400 m2
Tegund: Atvinnuhúsnæði
SUÐURBRAUT 890 VALHALLARBRAUT 891
Fasteignir til sölu á Ásbrú
Á innan við áratug hefur byggst upp á Ásbrú, fyrrum varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll, þróttmikið og litríkt samfélag með öfluga menntastofnun, fjölda spennandi fyrirtækja,
gróskumikla nýsköpun og blómstrandi mannlíf. Hröð uppbygging í gagnaveraiðnaði og örþörungarækt, ásamt nálægð við Keflavíkurflugvöll gera Ásbrú að sönnu vaxtarsvæði til framtíðar.
BOGATRÖÐ 17BOGATRÖÐ 2BOGATRÖÐ 1
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F Ö s T u d a g u R 2 0 . j a n ú a R 2 0 1 7
2
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
0
-2
1
A
0
1
C
0
0
-2
0
6
4
1
C
0
0
-1
F
2
8
1
C
0
0
-1
D
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K