Fréttablaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is „Nýjasta og stærsta verkefnið mitt hingað til er að leika í sjónvarps­ þættinum Murder Among Friends. Það er ótrúlega spennandi að fá að leika í bandarísku sjónvarpi. Þetta er heilmikil framleiðsla og mjög virt fagfólk sem kemur að þáttunum,“ segir Unnur Eggertsdóttir, sem mun á næstu dögum leika í annarri syrpu þessara vinsælu þátta sem hafa vakið töluverða athygli vestanhafs. Tökur á þáttunum byrja á þriðju­ daginn. „Ég fæ örfáa daga til að læra handritið og vinna mína rann­ sóknar vinnu fyrir stelpuna sem ég leik,“ segir Unnur, og bætir við að það sé eins gott að standa sig. Á næstu vikum mun Unnur einn­ ig leika í kvikmynd sem heitir Casa Matusita og er framleidd af Prospect House Entertainment. „Það er mjög spennandi. Þar fæ ég að leika á móti stórstjörnum eins og Malcolm McDowell, og nokkrum öðrum sem ég má samt ekki nafn­ greina enn þá,“ segir hún. Unnur útskrifaðist frá The Amer­ ican Academy of Dramatic Arts í New York í apríl 2016 og fékk aðal­ verðlaun útskriftarinnar sem besta leikkona árgangsins en í honum voru rúmlega 100 nemendur. „Námið í New York gekk ein­ staklega vel, þetta voru mjög erfið ár bæði líkamlega og andlega en ég naut hverrar mínútu. Ég er ofboðs­ lega þakklát fyrir þjálfunina sem ég fékk. Kennararnir lögðu mikið upp úr því að maður gæti leikið hvaða hlutverk sem er og alltaf fundið sannleik í karakternum sínum,“ útskýrir hún. Leiklistarheimurinn getur verið flókinn frumskógur „Það var líka lögð mikil áhersla á hvernig maður ætti að bera sig í prufum, hvernig maður ætti að sækjast eftir ákveðnum hlutverk­ um,“ segir Unnur. Í nóvember ákvað Unnur að elta drauma sína til Los Angeles. „Ég ákvað að eltast við verkefni sem ég tók þátt í í sumar, sem er söngleikur um ævi Marilyn Monroe. Það er verið að setja sýninguna upp í mun stærri uppfærslu á næstu mánuðum, og ég fékk töluvert stærra hlutverk, svo það kom ekki annað til greina en að flytja mig hingað yfir,“ segir hún. „Á meðan undirbúningstímabilið stendur yfir fyrir söngleikinn hef ég reynt að vera dugleg að taka þátt í alls konar verkefnum hér. Til dæmis lék ég í stuttmynd um daginn fyrir mjög flottan bandarískan leikstjóra þar sem ég lék á móti íslensku leik­ urunum Atla Óskari og Elíasi Helga. Eftirvinnslan á þeirri mynd er að klárast, og svo verður hún send á nokkrar kvikmyndahátíðir. Myndin heitir Gilded og ég er mjög spennt að fylgja henni eftir,“ segir hún. Óhætt er að segja að nóg sé um að vera hjá Unni, og fram undan séu spennandi tímar hjá henni. „Nú, þegar ég er búin að bóka nokkur verkefni og orðin töluvert öruggari í prufum, get ég einbeitt mér frekar að því að sækja um hlut­ verk sem ég veit að henta mér. Ég er ótrúlega spennt fyrir næstu vikum og mánuðum. Mér finnst fátt jafn mikil snilld og að fá að leika, svo ég vona innilega að ég haldi áfram að vera heppin með verkefni,“ segir Unnur. gudrunjona@frettabladid.is Eltir drauma sína Unnur Eggertsdóttir leikkona útskrifaðist frá The American Academy of Dramatic Arts í New York í apríl 2016. Hún er flutt til Los Angeles og fer með hlutverk í nýjustu syrpu spennuþáttanna Murder Among Friends. Unnur Eggertsdóttir gerir það gott í Hollywood. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI. Malcolm McDowell, mótleikari Unnar í kvikmyndinni Casa Matusita. intellecta.is RÁÐNINGAR Símaveski, heyrnartól, snúrur og allt fyrir símann. Símaveski.is, S. 517 0150 – 2. hæð Smáralind Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is FITUMÆLINGAVOGIR Við erum með gífurlegt úrval af öllum gerðum af vogum GOTT VERÐ Tanita BC-587 fitumælingavog Áður 32.860,- NÚ 18.749,- FÆRIBANDAVOGIR - RANNSÓKNAVOGIR - IÐNAÐARVOGIR - SMÁVOGIR VERÐÚTREIKNINGSVOGIR - TALNINGAVOGIR - KRÓKAVOGIR BAÐVOGIR - BARNAVOGIR - GÓLFVOGIR - LÍMMIÐAVOGIR gæði – þekking – þjónusta ... fæst í næsta apóteki og helstu stórmörkuðum Mundir þú eftir að bursta og skola í morgun? GUM eru hágæða tannvörur – allar upplýsingar á www.icecare.is tannlæ knar mæla m eð GUM tannvö rum 2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r36 L í F i ð ∙ F r É T T a B L a ð i ð 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 0 -3 F 4 0 1 C 0 0 -3 E 0 4 1 C 0 0 -3 C C 8 1 C 0 0 -3 B 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.