Fréttablaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 20.01.2017, Blaðsíða 4
leiðrétting Í blaði gærdagsins kom fram að tónleikarnir Laddi 70 ára, færu fram í Eldborgarsal Hörpu 20. janúar. Rétt er hins vegar að tónleikarnir fara fram á morgun, laugardaginn 21. janúar. 500L VERÐ FRÁ 3.450.000 KR. 500x VERÐ FRÁ 3.990.000 KR. 500 VERÐ FRÁ 2.190.000 KR. ÍTALIRNIR ERU MÆTTIR TIL LEIKS. FAGRIR, SPORTLEGIR OG MEÐ FIMM ÁRA ÁBYRGÐ! KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM FIAT. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR, RJÚKANDI HEITT KAFFI Á KÖNNUNNI.  atisland.is ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF UMBOÐSAÐILI FIAT Á ÍSLANDI ÞVERHOLT 6 · 270 MOSFELLSBÆR · SÍMI: 534 4433 · WWW.ISBAND.IS orkumál Stækkun Búrfellsvirkjun- ar gengur ágætlega. Byggingafram- kvæmdir hafa undanfarið einkum verið neðanjarðar en neðanjarðar- greftri er að mestu lokið. Í frétt Landsvirkjunar segir að á síðasta ári fór fjöldi starfsmanna á verkstað upp í um 150 og voru þeir langflestir á vegum byggingaverk- takans ÍAV Marti. Þar af var um helmingur erlendir starfsmenn og voru Slóvakar þar fjölmennastir en þeir störfuðu einkum við jarðganga- vinnuna. Á næstu vikum bætast við starfsmenn á vegum framleiðanda vél- og rafbúnaðar, og er gert ráð fyrir að heildarfjöldi á verkstað fari upp í tæplega 200 manns með haustinu. Eftir það fer starfsmönn- um fækkandi á ný. Framkvæmdir við aðrennslis- skurð eru komnar í vetrarstopp, en þar er búið að moka út um 70% af áætluðu magni. Undirverktaki ÍAV Marti, Ístak, hefur séð um þennan verkþátt og mun hann aftur hefja þar störf í vor. Búið er að bora bæði kapal- og fallgöng en þau eru hvor um sig rúmlega 100 metrar á lengd. Aðkomu- og frárennslisgöng eru nú komin í fulla lengd en það eru sam- tals um 650 metrar. Í byrjun desember hélt ÍAV Marti upp á hátíð heilagrar Barböru en hún er verndari þeirra sem vinna við jarðvinnu ýmiss konar, svo sem jarðgangagerð, malargerð, vegagerð og jarðyrkju. Haldin var hátíðleg athöfn í aðkomugöngum þar sem lofgjörð var flutt og lík- neski heilagrar Barböru komið þar fyrir til verndar starfsmönnum við framkvæmd. Verkið er nokkurn veginn á áætl- un en áætlað er að gangsetja virkj- unina í lok maí 2018 en þá mun taka við frágangsvinna og landmótun á svæðinu. – shá Um 150 manns vinna að stækkun Búrfellsvirkjunar Haldin var hátíðleg athöfn í aðkomugöngum þar sem líkneski heilagrar Barböru var komið fyrir til verndar starfsmönnum. Mynd/Landsvirkjun garðabær María Grétarsdóttir, bæjar fulltrúi í Garðabæ, hefur sent inn kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna samninga Garða- bæjar við Klasa ehf. um uppbyggingu miðbæjar Garðabæjar. Óskar María eftir því að samning- ar bæjarins við Klasa verði teknir til athugunar af umboðsmanni. Telur hún að bærinn hafi gefið Klasa lóðir án endurgjalds sem síðan hafi selt þær þriðja aðila og hagnast gríðar- lega. Þetta sé að hennar mati slæm ráðstöfun á eigum Garðbæinga. „Ég er kosin til sveitarstjórnar til að gæta hagsmuna Garðbæinga og það er skylda mín að láta kanna þetta mál ofan í kjölinn,“ segir María. „Hér er um gríðarlega háar fjárhæðir að ræða. Málið á sér langa sögu en nú sé ég mig knúna til að fara með málið til umboðsmanns Alþingis.“ Samningar Klasa við Garðabæ um uppbyggingu miðbæjarins voru undirritaðir fyrst árið 2006. Í efna- hagshruninu árið 2008 er ákveðið að fresta framkvæmdum, breyta deili- skipulagi og minnka byggingarmagn á Garðatorgi. Klasi hafi þar með lóðakaupum greitt fyrir 25 þúsund fermetra byggingarrétt. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segist fagna því ef umboðsmaður ætli að skoða þetta mál. Ekkert í samningagerð Garða- bæjar eigi hins vegar að gefa tilefni til þess. „Þetta er dæmalaus málflutn- ingur og hefur margoft verið hrak- inn,“ segir Gunnar. „Samningarnir eru allir opinberir og því er þetta hið besta mál.“ „Hið rétta er að Klasi keypti árið 2006 tvær lóðir á Garðatorgi og uppkaupsverðið var 1,2 milljarðar króna. Með því greiddi Klasi fyrir byggingarrétt á öðrum lóðum. Við hrunið og frestun framkvæmda hafi byggingarmagnið verið minnkað og því hafi Klasi átt inni byggingar- rétt. Garðabær ráðstafaði þá bygg- ingarrétti upp á þann mismun með úthlutun á fimm einbýlishúsalóð- um sem var afar hagstæð ráðstöfun fyrir bæinn,“ bætir Gunnar við. sveinn@frettabladid.is Telur að Garðabær hafi gefið lóðir fyrir hundruð milljóna Bæjarfulltrúi í Garðabæ, telur bæinn hafa gefið lóðir fyrir hundruð milljóna króna til fyrirtækisins Klasa ehf. „Dæmalaus málflutningur sem margoft hefur verið hrakinn,“ segir bæjarstjórinn. Kvörtun send til um- boðsmanns Alþingis vegna málsins sem á sér langa sögu en skrifað var undir samningana árið 2006. Fara átti í miklar endurbætur á miðbæ Garðabæjar árið 2006. FréttaBLaðið/siGurjón Samningarnir eru allir opinberir og því er þetta hið besta mál Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garða- bæjar Ég er kosin til sveitarstjórnar til að gæta hagsmuna Garðbæinga og það er skylda mín að láta kanna þetta mál ofan í kjölinn María Grétarsdóttir bæjar fulltrúi Samfélag „Við erum að fara með 189 manns beint til Liverpool á meðan hin félögin fara til í Man- chester, Birmingham og London,“ segir Tómas  J. Gestsson, fram- kvæmdastjóri Heimsferða, en á þriðjudag var sagt frá því að mörg hundruð Íslendingar væru að fara á leik Liverpool og Swansea. Inn í þá tölu vantaði ferð Heimsferða og bætast því um 200 manns við. Úrval Útsýn, Vita ferðir, Gaman ferðir og TransAtlantic buðu upp á ferðir á þennan leik og seldust öll sæti upp. „Langstærstur hluti  Íslending- anna sem verða á Anfield um helg- ina er á okkar vegum. Við förum með heila vél á þennan leik sem er mjög sjaldgæft, því þetta er einn leikur. Ferðin var auglýst í septem- ber og var nánast uppselt á stuttum tíma. Síðustu sætin seldust í byrjun árs,“ segir Tómas, en  áhuginn á enska boltanum hefur sjaldan verið meiri. Þetta er önnur ferð Heimsferða beint til Liverpool og hefur selst upp í bæði skiptin. „Ég efast ekki um að það verði stórkostleg stemning þarna. “ – bb Íslendingar lita leik með Liverpool tómas j. Gestsson framkvæmda- stjóri Heimsferða 2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 f Ö S t u D a g u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 0 -3 0 7 0 1 C 0 0 -2 F 3 4 1 C 0 0 -2 D F 8 1 C 0 0 -2 C B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.