Fréttablaðið - 20.01.2017, Qupperneq 20
Dóttir okkar, móðir og tengdamóðir,
sambýliskona, systir og amma,
Sigurbjörg Steinþórudóttir
Tjarnargötu 40 í Reykjavík,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi
föstudaginn 6. janúar, verður jarðsungin
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag,
föstudaginn 20. janúar klukkan 13.00.
Steinþóra Þorsteinsdóttir Sigurður Þ. Arndal
Davíð A. Stefánsson Margrét G. Magnúsdóttir
Stefán J. Stefánsson Sara S. Ólafsdóttir
Ólafur E. Thoroddsen
Sædís Arndal Valur Jóhannsson
barnabörn og Sáma.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigrúnar Pálsdóttur
frá Húsavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk
hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir
frábæra umönnun, alúð og hlýju.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ásgeir Páll Sigtryggsson Heiða Th. Kristjánsdóttir
Brynjar Sigtryggsson Anna Margrét Guðmundsd.
Sigurveig Karólína Sigtryggsd. Pétur Steingrímsson
Faðir okkar, afi og bróðir,
Gunnar Magnús Jónsson
frá Hávarsstöðum,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd
laugardaginn 21. janúar næstkomandi
kl. 14.00.
Gísli Magnússon
Ingibjörg Skjoldager
Grétar Jónsson
Pétur Jónsson
og fjölskyldur.
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Auður Sigurðardóttir
Bergi á Seltjarnarnesi,
sem lést miðvikudaginn 11. janúar,
verður jarðsett frá Neskirkju við
Hagatorg mánudaginn 23. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vilja minnast
hinnar látnu láti Alþjóðastarf Rauða krossins njóta þess.
Guðmundur Hafsteinsson Hanna Guðrún Guðmundsd.
Sunneva Hafsteinsdóttir Gunnar Þórðarson
Einar Hafsteinsson Sigurborg Inga Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Magnússon
húsgagna- og húsasmíðameistari,
Vaðlaseli 10.
lést á Skógarbæ þriðjudaginn
10. janúar 2017. Hann verður jarðsunginn
frá Seljakirkju miðvikudaginn 25. janúar
kl. 13.00. Aðstandendur þakka starfsfólki
Skógarbæjar fyrir góða umönnun.
Anna Daníelsdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir Haraldur Svavarsson
Ásdís Sigurðardóttir Stefnir Páll Sigurðsson
Birna Sigurðardóttir
Daníel Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún Erla Skúladóttir
lést á Landspítalanum þann
11. janúar sl. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju föstudaginn 20. janúar
næstkomandi kl. 15.00.
Jóhannes Gíslason
Hulda Jóhannesdóttir Einar Guðmundsson
Guðrún Jóhannesdóttir Kristinn Sigvaldason
Sigrún Jóhannesdóttir Birgir Sigurðsson
barnabörn og fjölskyldur.
„Þetta eru sem sagt sketsa-þættir sem
Steindi, Sveppi og Auddi skrifa saman,“
segir leikkonan Saga Garðarsdóttir um
þættina Steypustöðina en hún fer með
hlutverk í þáttunum. „Og ég, Ágústa
Eva og María Guðmundsdóttir leikum
kvenhlutverkin. Þetta eru mjög fyndnir
og súrir sketsar,“ segir Saga spurð um
hvernig þætti sé að ræða.
„Ég myndi segja að ég sé með leiksigur
hvað varðar hissa-svip í þessum þáttum.
Ég er alltaf alveg rosalega hissa á því sem
strákarnir eru að gera. Uppáhaldsskets-
inn minn er þegar við Sveppi leikum par
sem er að lýsa sínum fyrsta kossi. Þá geri
ég líka alls konar svipbrigði sem ég held
að muni öll slá í gegn. En uppáhaldið
mitt í öllu ferlinu er þegar ég fæ að leika
afgreiðslukonu í Fjarðarkaupum. Það
er vissulega aukahlutverk en konan
sem ég leik er goth-ari. Það augnablik
endist kannski í fimm sekúndur, fimm
yndislegar sekúndur,“ segir Saga sem
gæti trúað að hún sé goth-ari inn við
beinið. Henni þykir þó of seint að taka
upp nýjan stíl núna. „Já, ég er komin á
þann aldur að það er eiginlega of seint
fyrir mig núna að prófa að vera goth-ari.
Ég þarf að hafa afsökun fyrir að setja á
mig svartan varalit og hleypa myrkrinu
í gegn. En ég dýrkaði þetta hlutverk! Mig
dreymir orðið um að sminka yfir frekn-
urnar og leika eitthvað dökkt og ógeðs-
legt.“
Saga segir hópinn á bak við Steypu-
stöðina hafa smollið vel saman og að
hún hafi skemmt sér vel við gerð þátt-
anna. „Ég vil meina að Steindi sé einn af
mínum bestu vinum. Ég vona að hann sé
sammála. Annað væri svo vandræðalegt.
Svo finnst mér Sveppi fyndnasti maður
Íslands. Ég reyni að hlæja ekki að öllu
sem hann segir svo honum líði ekki
óþægilega. En svo var ég bara að kynnast
Auðuni Blöndal og ég dýrka hann. Núna
vil ég bara fá hann yfir í minn vinahóp.
Draga hann af Austri og fara með hann á
erfitt gjörningakvöld í Mengi,“ segir Saga
og hlær.
Saga er vongóð um að þættirnir leggist
vel í landsmenn. „Sko, á forsýningunni
þá var ég svolítið stressuð. En Ágústa Eva
kom til mín og spurði mig af hverju og
þá áttaði ég mig. Ég meina, við skrifum
þetta ekki, þannig að ef þetta fokkast allt
upp þá segjum við: „Þeir sögðu mér að
segja þetta.“ Núna er ég ekkert stressuð,
bara spennt. Ég er fullviss um að þetta
mun leggjast vel í alla. Svo vona ég að ég
fái að vera með í skrifteyminu næst, til
að auka fjölbreytileikann þar.“
gudnyhronn@365.is
Of gömul til að ákveða
núna að verða goth
Leikkonan Saga Garðarsdóttir er ein þeirra sem fara með hlutverk í þáttunum Steypu-
stöðinni sem hefja göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Saga segir leikarateymið í þáttunum hafa
náð einstaklega vel saman og í ferlinu komst hún að því að hún dýrkar Auðun Blöndal.
Leikkonan Saga Garðarsdóttir er viss um að Steypustöðin muni leggjast vel í landsmenn. FréttabLaðið/Ernir
Mig dreymir orðið um
að sminka yfir frekn-
urnar og leika eitthvað dökkt og
ógeðslegt.
1921 Fyrsta stjórnarskrá Tyrklands
er samþykkt.
1957 Samtök íþróttafréttamanna
kjósa Vilhjálm Einarsson „Íþrótta-
mann ársins 1957“. Þetta er í
fyrsta sinn sem kjörið fer fram en
Vilhjálmur hlýtur titilinn alls sex
sinnum í röð.
1974 Snjódýpt á Hornbjargsvita
mælist 218 sentimetrar sem er það
mesta sem mælst hefur hér á landi.
1991 Skíðaskálinn í Hveradölum
brennur. Hann er byggður upp aftur
ári síðar.
2001 George W. Bush tekur við
embætti sem 43. forseti Banda-
ríkjanna.
Merkisviðburðir
2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r20 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
tíMaMót
2
0
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
0
-4
9
2
0
1
C
0
0
-4
7
E
4
1
C
0
0
-4
6
A
8
1
C
0
0
-4
5
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K