Fréttablaðið - 20.01.2017, Síða 26

Fréttablaðið - 20.01.2017, Síða 26
„Ég fór fyrst til Parísar rúmlega tvítug eftir að hafa legið í bókum um líf Hemingways, Fitzgeralds og þeirra allra í París á 3. og 4. áratug síðustu aldar. Sú heimsókn var sjokk lífs míns: allt var hræði- lega skítugt, Signa var drullupoll- ur og fólkið ótrúlega fjandsam- legt,“ segir Friðrika sem var lengi að jafna sig á því sjokki. Eftir að hafa lesið Minningabók Sigurðar Pálssonar og Parísarhjólið hans ákvað hún þó að gefa borginni annan séns árið 2009. „Það var eins og við manninn mælt, ég varð ástfangin af París á augabragði og hef síðan farið þangað á hverju ári – stundum tvisvar.“ Sleppir túriStaStöðum Friðrika segir París hafa allt sem nokkurn gæti dreymt um að finna í einni borg. „Söguleg minn- ismerki, fagrar byggingar, rót- gróna menningu, glæsileg lista- söfn og dásamlegt mannlíf.“ Hún bendir á að þó flestir vilji sjá Eif- felturninn, Louvre, Sacré Coeur og Notre Dame, séu túristaraðirn- ar við þau kennileiti mjög óáhuga- verðar. „Þannig að ég mæli frek- ar með því að fólk fari á Musée d’Orsay, Picasso-safnið, í graf- hvelfingu Napóleons eða, það sem ég geri alltaf, sleppi öllum túrista- stöðum og gangi meðfram Signu eða slaki á í Lúxemborgargarðin- um og þó allra helst á einhverju af þeim dásamlegu kaffihúsum sem borgin hefur upp á að bjóða. Það jafnast ekkert á við að sitja á gang- stétt kaffihúss í París og fylgjast með mannlífinu.“ Kom henni eitthvað á óvart við borgina? „Hafandi legið í bókum sem gerast í París allt mitt líf kom kannski ekki margt beinlín- is á óvart, nema þá helst hvað fólk var almennt kurteist og yndislegt þrátt fyrir orðspor um hið gagn- stæða. Franskir þjónar eru úthróp- aðir fyrir skort á þjónustulund, hroka og dónaskap en mín reynsla er sú að ef þú býður góðan dag – á frönsku auðvitað – og biður um að vera vísað til sætis, í stað þess að hlamma þér niður og byrja að veifa öllum skönkum, eru þeir ekk- ert nema ljúfmennskan.“ Ódýrara í 20. hverfi Friðrika er þekkt fyrir góðan tískusmekk. Hvernig er að versla í París? „París er stórborg sem býður verslunarþyrstum allt sem hugurinn girnist, allt frá hátísku- fatnaði til drasls og djönks svo það fer eftir því eftir hverju fólk sækist hvar best er að bera niður. Rue de Rivoli er þekkt verslunar- gata með öllum keðjunum sem við þekkjum og líka Rue de Rennes uppi í 14. hverfi. Í Mýrinni úir og grúir af ungum hönnuðum og alls kyns dásemd og að þar er virki- lega skemmtilegt að versla. Ef fólk vill spara sirka helming fer það út í 20. hverfi eða upp í 18. þar sem allt er undantekningalaust nærri helmingi ódýrara en niðri í bæ.“ aldrei vondur matur Franska eldhúsið er heimsþekkt en hvar er best að borða í París? „Aftur snýst það bara um eftir hverju þú sækist. Ég hef aldrei fengið vondan mat í París. Sleppið samt stöðum sem bjóða upp á túr- istamatseðla á slikk, þeir eru yfir- leitt ekki góðir. Finnið staðinn sem er fullur af Parísarbúum úr hverf- inu og þið eruð örugg um góða upp- lifun.“ Friðrika er að lokum beðin um að rifja upp sína bestu minningu úr borginni. „Úff, þær eru allt- of margar. Allt frá frönskum ka- barett þar sem áttræður Amer- íkani og átján ára japönsk snót voru borðfélagarnir til dásam- legs dinners á Clos erie des Lilas, að ógleymdri andaktugri upplif- un af impressjónistunum í Musée d‘Orsay. Þetta er nú bara það sem mér dettur fyrst í hug en í raun og veru eru eiginlega bara allar minning- ar frá París góðar. Annað er ekki hægt.“ Það var eins og við manninn mælt, ég varð ástfangin af París á augabragði og hef síðan farið þangað á hverju ári – stundum tvisvar. Friðrika Benónýsdóttir Sólveig Gísladóttir solveig@365.is allar minningar frá paríS gÓðar Friðriku Benónýsdóttur blaðamanni leist alls ekki á París þegar hún kom þangað fyrst. Í dag er París hennar uppáhaldsborg sem hún heimsækir að minnsta kosti einu sinni og jafnvel tvisvar á ári. Friðrika Benónýsdóttir. Í stað þess að þræða hina týpísku túristastaði mælir Friðrika með rölti meðfram Signu eða slökun í Lúxemborgargarðinum. Í dag er fyrsti dagur þorra og bóndadagur. Margir karlmenn hafa væntanlega verið vakt- ir í morgun með morgunverði í rúmið og fallegri gjöf sem er sniðin að þeim. Þeir makar sem hafa hins vegar ekki verið jafn fyrirhyggjusamir og eiga eftir að græja eitthvað fyrir bónd- ann hafa enn tækifæri til að slá í gegn. Hér eru nokkrar hugmynd- ir að góðum gjöfum sem hægt er að færa hinum heittelskaða síðar í dag eða kvöld. Fyrir heilsuáhugamanninn: góðir æfingaskór, heilsuúr, mann- broddar undir hlaupaskóna. Fyrir útivistarmanninn: ullar- nærföt, bakpoki, eiturefnafrír vatnsbrúsi. Fyrir nautnasegginn: gómsæt steik í matinn, koníak, gjafabréf í nudd. Fyrir snyrtipinnann: rakspíri, slaufa, skrautlegir sokkar. Fyrir tækjagúrúinn: nýr tölvu- leikur, linsa á myndavélina, verkfærasett eða borvél. Að auki er alltaf klassískt að kaupa þorrabakka og bjór eða bjóða kallinum út að borða á góðan veitingastað. Dekrað við bónDann Uppáhaldsborgin Nýjar vörur 2 0 . j a n ú a r 2 0 1 7 F Ö S T U D a G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 2 0 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :3 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 0 0 -2 6 9 0 1 C 0 0 -2 5 5 4 1 C 0 0 -2 4 1 8 1 C 0 0 -2 2 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.