Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 1

Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 3. J Ú L Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  162. tölublað  104. árgangur  GEFUR ÚT STAFRÆNA BARNABÓK VÍKINGAR MUNU BERJAST HELGA OG MARÍA ERU VEGANISTUR MIÐALDADAGAR Á GÁSUM 31 GRÆNKERAR Á EINNI NÓTTU 12PÉTUR ÁSGEIRSSON 30 Morgunblaðið/RAX Neyðarbraut Þristurinn og fleiri flugvélar nota nú brautina sem flugstæði.  Isavia hefur lokað flugbraut 06/ 24 á Reykjavíkurflugvelli, neyðar- brautinni svokölluðu. Um þessa braut hefur verið hart deilt undan- farin misseri. Isavia hyggst breyta merkingum flugbrautarinnar og til stendur að hún verði nýtt sem akbraut að hluta og sem stæði fyrir flugför sem hafa hér tímabundna viðkomu. Jafnframt er hafinn undirbún- ingur að uppsetningu aðflugsljósa við vesturenda austur/vestur flug- brautar vallarins í samræmi við samkomulag sem ríki og Reykja- víkurborg gerðu í október 2013. Aðflugsljósin verða við Starhaga nálægt Skerjafirði. Aðflugsljós eru þegar til staðar við austurenda brautarinnar. Loks verður hafinn undirbúningur að því að fella tré í Öskjuhlíð en þau hafa haft trufl- andi áhrif á flugstarfsemi á vell- inum. Trén verða mögulega felld í haust. »14 Neyðarbraut breytt í flugvélastæði Bifreiðainnflutningur » Greinileg merki eru um að innflutningur bifreiða sé að aukast. » Hlutfallslega er meiri aukn- ing í dýrari bifreiðum. Jón Þórisson jonth@mbl.is Nýskráning bifreiða frá sjö þekktum lúxusbílaframleiðendum hefur auk- ist hér á landi samtals um 61% á fyrra árshelmingi miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta má lesa úr töl- um um innflutning bifreiða sem Samgöngustofa hefur tekið saman fyrir Morgunblaðið. Alls voru 755 nýskráningar bifreiða frá Audi, BMW, Land Rover, Lexus, Merce- des Benz, Porsche og Tesla á fyrstu sex mánuðum ársins. Nýskráningar bifreiða sömu framleiðenda í fyrra voru 471. Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL, sem er umboðsaðili fyrir BMW og Land Rover, segir niðurstöður mælinga á bjartsýni landsmanna góðan fyrirboða um sölu á nýjum bíl- um. „Það er meira um að menn fái fjármögnun í tengslum við bílakaup núna en var fyrst eftir hrun. Það er hins vegar langt frá því að menn séu að taka lán í þeim mæli sem sást á ár- unum fyrir hrun. Þetta eru miklu heilbrigðari kaup núna. Sala nýrra bifreiða er nú í takt við það sem var árið 2004-2005.“ Sala lúxusbíla á fullri ferð  Sala bíla sögð haldast í hendur við niðurstöður mælinga á bjartsýni landsmanna  Viðskipti með nýja bíla lík því sem var árin 2004 og 2005, segir umboðsaðili MVerulegur vöxtur í sölu »16 Morgunblaðið/Ófeigur Hverfisgata Dagbjört Norðfjörð hjá veitingahúsinu Kryddlegnum hjörtum segir framkvæmdir við Hverfisgötuna vera við það að ríða rekstrinum að fullu. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Götunni hefur verið lokað flesta daga síðan við fluttum hingað vegna kranabíla eða steypubíla. Stundum var lokað í nokkra daga í einu. Þetta hefur verið hryllingur,“ segir Dag- björt Norðfjörð, eigandi veitinga- hússins Kryddlegin hjörtu á Hverf- isgötu 33 í Reykjavík. Gatna- framkvæmdir við Hverfisgötu voru kornið sem fyllti mælinn. Þær hafa nú staðið hátt í tvo mánuði. Dagbjört segir að gestir veitingahússins þurfi að fara krókaleiðir til að komast á veitingastaðinn. Ófært er fyrir fólk í hjólastól. „Ég sé hópa útlendinga hinum megin við Klapparstíg á leið til mín. Svo snúa þeir bara við af því að aðgengið er ekkert,“ segir Dag- björt en hún hefur þurft að loka staðnum sumar helgar, lokað er yfir miðjan daginn og opið styttra á kvöldin vegna þess hve lítið er að gera. Mikið ónæði er vegna atsins. „Nú þyrlast upp skíturinn og við- bjóðurinn. Í gær [fyrradag] var ver- ið að saga lagnir og ekki með vatns- sög,“ segir Dagbjört. Þykkt rykský lá yfir öllu og þurfti að loka gluggum og dyrum til að halda rykinu úti. „Það er oft búið að taka af mér raf- magn og vatn fyrirvaralaust. Á tíma- bili gat ég ekki rukkað af því að þeir slitu símalínur.“ Dagbjört segir að borgin viti vel af aðstæðunum og að talað hafi verið við embættismenn en svo virðist sem allar dyr séu lokaðar. „Það er voða erfitt að ná í þessa kónga,“ seg- ir Dagbjört ennfremur. Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda, segir að finna þurfi fyrir- komulag til að bæta fyrirtækjum það tjón sem þau verða fyrir vegna framkvæmda borgarinnar. »10 „Þetta hefur verið hryllingur“  Veitingahúsið Kryddlegin hjörtu við Hverfisgötu líður fyrir gatnafram- kvæmdir  Illfært hefur verið fyrir gesti að veitingastaðnum og mikið ónæði  Um níu þúsund manns hafa nýtt sér myndbands- námskeið á veg- um Íslandsstofu þar sem kynnt eru fyrir ferða- mönnum ýmis nytsamleg atriði þegar þeir eru á ferð um Ísland. Taka þeir svo stutt krossapróf til þess að fara yfir meginatriði þess sem fram kemur í myndböndunum sem m.a. snúa að akstri og öryggi á Íslandi. Standist þeir prófin útskrifast þeir úr Ice- land Academy. »10 Níu þúsund hafa nýtt sér námskeið Ferðamenn fræðast um áningarstaðinn. Framkvæmdir eru hafnar við fyrstu jarðhitavirkjun Ungverja- lands. Íslensk-kínverska félagið Orka reisir virkjunina og kemur ásamt öðrum að fjármögnun henn- ar, auk þess sem verkfræðistofan Mannvit hannar mannvirkið. Sigurður Lárus Hólm, fram- kvæmdastjóri Mannvits í Ungverja- landi, segir í samtali við Morgun- blaðið að jarðhiti sé vel þekktur á svæðinu og því séu mikil tækifæri til frekari þróunar. Jarðhitavatnið nýtist fyrir gróðurhús sem á að reisa á svæðinu. Mannvit hefur starfrækt skrifstofu í Ungverja- landi í tæp tíu ár og hefur umfang hennar vaxið töluvert. »4 Reisa jarðhitavirkj- un í Ungverjalandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.