Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 4

Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hlutfall yfirlagningar vega, með bundnu slitlagi, af heildarlengd þeirra er meira en tvöfalt lægra en það viðmið sem Vegagerðin hefur sett svo vegirnir séu í viðunandi horfi. Að sögn G. Péturs Matthías- sonar, upplýsingafulltrúa Vegagerð- arinnar, er fjársvelti málaflokksins um að kenna. G. Pétur segir endingu hins bundna slitlags misjafna, allt frá sjö árum og upp í tíu. Að meðaltali sé endingin um átta ár og miðað við það þurfi að endurnýja bundna slit- lagið sem nemur 12,5 prósentum þess á ári. Á síðasta ári voru um fimm pró- sent slitlagsins endurnýjuð, 4,8 pró- sent árið þar á undan og 5,5 prósent árið 2013. Fram til ársins 2015 hafði hlutfallið farið lækkandi, allt frá árinu 2008, en mesta dýfan var milli áranna 2010 og 2011, úr tíu prósent- um og niður í 7,2 prósent. G. Pétur segir hækkun um 0,2 prósent sem varð í fyrra ekki gefa tóninn fyrir fjárveitinguna í ár. Meiri yfirlagning í fyrra skýrist af sérstakri fjárveitingu vegna göt- óttra gatna á höfuðborgarsvæðinu eftir erfiðan vetur. „Það er í raun minnkun árið 2016 af því að þarna kom aukafjárveiting árið 2015. Miðað við samgönguáætl- un má ekki búast við aukningu í þessu. Þó að einhverjum peningum sé bætt í viðhaldið er það ekkert sem fer upp í 12,5%,“ segir hann. Þörf á fjórum til sex milljörðum Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri hefur nefnt að einn til tveir milljarðar til viðbótar við þá fjár- muni sem Vegagerðin hefur til við- halds á ári hverju myndu „hjálpa töluvert“. Vegna niðurskurðar síð- ustu ára sé þó þörf á frekari fjár- veitingu til að vegirnir verði við- unandi og til dæmis verði haldið áfram vinnu við að styrkja og breikka helstu flutningaleiðir á Ís- landi. Að hans mati þarf nánast að tvö- falda fjárveitingu til viðhalds mal- arvega og vega með bundnu slitlagi, til að svo geti orðið. Nú fær hún um 5,9 milljarða á ári hverju, en þörf er á um fjórum til sex milljörðum í við- bót. Viðhaldi vega er ábótavant Morgunblaðið/Þórður Viðhald Þörf er á um fjórum til sex milljörðum til að vegum landsins verði komið í viðunandi horf. Yfirlagning í fyrra var um tvöfalt minni en viðmið.  Þörf á fjárveitingu eftir niðurskurð Skúli Halldórsson sh@mbl.is Hornsteinn hefur verið lagður að byggingu jarðhitavirkjunar í bæn- um Tura í Ungverjalandi, rétt fyrir austan höfuðborgina Búdapest. Markar þetta upphaf framkvæmda við þessa fyrstu jarðhitavirkjun landsins, en íslensk-kínverska fé- lagið Orka reisir virkjunina og kemur ásamt öðrum að fjármögn- un hennar, auk þess sem verk- fræðistofan Mannvit hannar mann- virkið. Sigurður Lárus Hólm, fram- kvæmdastjóri Mannvits í Ung- verjalandi, segir í samtali við Morgunblaðið að jarðhiti sé vel þekktur á svæðinu og því séu mikil tækifæri til frekari þróunar. „Það er hefð fyrir nýtingu jarð- hita hér og hann er einnig þekktur í löndunum í kring,“ segir Sigurður og bætir við að fyrst um sinn sé gert ráð fyrir að virkjunin fram- leiði þrjú megavött af rafmagni. „En það er ljóst að verulegir stækkunarmöguleikar eru fyrir hendi.“ Nýtt tíu hektara gróðurhús Virkjunin nýtist þó ekki aðeins til framleiðslu rafmagns, heldur verður jarðhitinn sömuleiðis not- aður til upphitunar. „Vökvinn nýtist til varmafram- leiðslu fyrir gróðurhús sem á að reisa á svæðinu,“ segir Sigurður, en gert er ráð fyrir að gróðurhúsið verði einir tíu hektarar, þar sem ræktuð verða rúm sex þúsund tonn af kirsuberjatómötum á ári. Mannvit hefur lengi haft það að leiðarljósi að taka þátt í uppbygg- ingu jarðhitavirkjana innan Evr- ópusambandsins. Til dæmis fékk verkfræðistofan nærri 6,5 millj- arða króna styrk frá sambandinu árið 2012 vegna rannsóknar- og þróunarverkefnis um raforkufram- leiðslu í Ungverjalandi. Þar hefur Mannvit starfrækt skrifstofu í tæp tíu ár og hefur um- fang hennar vaxið töluvert á þeim tíma. Byggt er meðal annars á þeirri reynslu sem fyrirtækið hefur aflað sér við framkvæmdir hér á landi og hafa erlendir starfsmenn komið til Íslands til þjálfunar. „Við höfum starfað hér síðan ár- ið 2007,“ segir Sigurður en þá var aðeins einn starfsmaður á skrif- stofunni. Nú eru starfsmennirnir átján, en allir eru þeir ungverskir nema Sigurður. Ljósmyndir/Mannvit Athöfn Hornsteinninn svokallaði var látinn síga með hólki ofan í jörðina, þar sem borað verður fyrir jarðhitavatni. Reisa jarðhitavirkjun að íslenskri fyrirmynd  Orka og Mannvit sameina krafta sína í Ungverjalandi Orka Eiríkur Bragason, framkvæmdastjóri Orku, er hér fyrir miðju, ásamt bæjarstjóranum í Tura og aðstoðarmanni forsætisráðherra Ungverjalands. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Úthlutun aflaheimilda til einstakra svæða á strandveiðum verður ekki endurskoðuð í sumar, að sögn Gunn- ars Braga Sveinssonar sjávarútvegs- ráðherra. „Það er búið að úthluta öllu sem hægt er að úthluta til strand- veiða á þessu ári. Það er hins vegar eðlilegast að end- urskoða úthlut- unina á hverju ári og það verður væntanlega gert í vet- ur,“ segir ráðherra. Smábátasjómenn í Hrollaugi á Hornafirði og víðar á suðursvæði hafa gagnrýnt að viðmiðunarafli á svæðinu hafi verið minnkaður um 200 tonn á sama tíma og heildarafli á strandveiðum var aukinn um 400 tonn. Ójafnræði á milli svæða Gunnar Bragi segir að þegar unnið var að úthlutun til strandveiða síðasta vetur hafi verið farið yfir reynslu síðustu ára. Þá hafi komið í ljós að ójafnræði var á milli svæða þegar litið var til meðaltals afla á hvern bát. „Á suðursvæði, svæði D, höfðu menn í tvö ár ekki nýtt þær afla- heimildir sem voru í boði, annað árið munaði 200 tonnum og tæplega 100 tonnum hitt árið. Þar af leiðandi tók- um við ekki þá áhættu í ár að heim- ildir yrðu ekki nýttar eins og gert er ráð fyrir,“ segir Gunnar Bragi. Hann segir að ekki verði bætt í strandveiðipottinn í sumar. Ekki verði heldur tekið af öðrum það sem þegar er búið að úthluta til að mæta kröfum manna á suðursvæði. Ætti ekki að kasta steinum úr glerhúsi Í hádegisfréttum RÚV í gær gagnrýndi Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, sjávarútvegs- ráðherra harðlega. Ásmundur sagði m.a. að sér fyndist það „afskaplega óréttlátt af nýsettum sjávarútvegs- ráðherra að hafa þetta sem sitt fyrsta verkefni, að færa þennan kvóta héðan inn í sitt kjördæmi,“ en Gunnar Bragi er þingmaður Norð- vesturkjördæmis. Spurður um þessi ummæli Ás- mundar sagði sjávarútvegs- ráðherra: „Ég held að Ásmundur ætti ekki að kasta steinum úr gler- húsi þegar kemur að umræðu um kjördæmi.“ Úthlutun á strandveiðum ekki breytt  Úthlutun endurskoðuð næsta vetur Morgunblaðið/Ómar Strandveiðar Aflabrögð hafa verið góð í sumar og gæftir sömuleiðis.Gunnar Bragi Sveinsson Strandveiðar í júlí hafa nú verið stöðvaðar á tveimur svæðum þar sem viðmiðunarafla er náð. Síðasti dagur á A-svæði, frá Arnarstapa að Súða- vík, var í gær og urðu veiðidagarnir sex á A-svæði í júlí. Landssamband smábátaeigenda fór reyndar fram á það við Fiskistofu að einnig yrði leyft að veiða á A-svæði í dag þar sem annars yrði talsvert óveitt og flyttist að ástæðulausu yfir í ágústmánuð. Síðasti veiðidagur á svæði D frá Hornafirði í Borgarnes var á fimmtu- dag í síðustu viku og þar var því aðeins veitt í fjóra daga í júlí. Áfram má stunda veiðar á svæði B frá Norðurfirði í Grenivík og svæði C frá Húsavík að Djúpavogi. Nú hafa 656 strandveiðibátar landað afla í sumar. Viðmiðun náð á tveimur svæðum ALLS HAFA 656 STRANDVEIÐIBÁTAR LANDAÐ AFLA Í SUMAR Eiríkur Bragason, fram- kvæmdastjóri íslensk- kínverska félagsins Orku, segir félagið hafa frekari framkvæmdir í huga í þess- um hluta álfunnar. „Við áformum að reisa fleiri virkjanir á þessu lág- hitasvæði sem nær frá Suð- ur-Þýskalandi inn í Serbíu,“ segir Eiríkur og bætir við að þegar sé hafin vinna við nokkur verkefni á þessu víð- feðma svæði. Vilja reisa fleiri virkjanir FREKARI ÁFORM UPPI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.