Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 29

Morgunblaðið - 13.07.2016, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þig grunar að þú sért að verða eftir á á einhvern hátt. Haltu þig eins fjarri þeim og þú frekast getur, því til þín verður leitað til að lægja öldurnar. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er mikil ásókn í þig, svo mikil að þér er nauðugur einn kostur að verja þig. Láttu það samt ekki draga úr þér kjarkinn heldur taktu þig saman í andlitinu og haltu áfram. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hættu að vorkenna sjálfum þér og líttu á björtu hliðarnar og það sem þú ert og hefur. Notaðu samstöðuna til að koma sem flestu í framkvæmd. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að láta ekki alla skapaða hluti hafa svona mikil áhrif á þig. Kannski hefur þú nú þegar allt sem þú þarft.Þú þarft á sjálfs- skoðun að halda, það er ekkert að því. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Stuðið er ekki að sýna heiminum hvað þú getur gert. Heilbrigð sál í hraustum líkama er takmarkið og því má ná ef viljinn er fyrir hendi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er eitt og annað sem þú hefur látið sitja á hakanum, en nú skaltu bretta upp erm- arnar og hefjast handa. Vitsmunir þínir og lík- ami eiga mesta hrós skilið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki hafa áhyggjur þótt yfirmaðurinn rugli þig í ríminu. Njóttu ávaxta erfiðis þíns en deildu leyndarmálinu með öðrum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Málefni tengd útgáfu, lækn- isfræði, lögum og menntun eru vafasöm í dag. Rausnarskapur þinn eykur sveiflutíðni alls mannkynsins. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Alheimurinn er að þenjast út og þú líka. Við höfum ekki óþrjótandi orku heldur þurfum við að endurnýja hana annað slagið. Láttu þér ekki bregða þótt margt í fari mak- ans sé þér framandi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur verið varasamt að fara um ókunnar slóðir án nokkurs undirbúnings. Fólk hefur ólíkar skoðanir á þeim rétt eins og mat. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Taktu það ekki nærri þér þótt þér takist ekki að gera svo öllum líki. Unaðslegar tilfinningar hvetja þig til að gera allt til að geðjast þeim sem þú elskar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hættir til þess að sanka að þér of mörgum verkefnum í einu. Hugsanlega leng- ist lífið með þessari ráðstöfun, hlátri og léttúð er lagið að bæta heilsufarið. Á dögunum rifjaði Helgi Zim-sen upp limru á Leirnum sem hann snaraði á íslensku fyr- ir löngu af því tilefni að tíminn hafði orðið hagyrðingum yrkis- efni. Hún Lína í langhlaupi er fær og ljóshraða hæglega nær. Á morgun hún æðir um afstæðar hæðir uns brunar til baka í gær. Þessi limra varð til þess að ég greip Limrubókina Péturs sonar míns, en þar stendur í formála: „“There was a“ er langalgeng- asta upphafið á limrum á enska tungu. Arthur Reginald Bullet lagði rækt við þá hefð með kunn- ri limru: There was a young lady named Bright, Who travelled much faster than light. She set out one day In a relative way And returned on the previous night. Í meðförum Þorsteins Valdi- marssonar fékk limran yfir- skriftina Hugð 1001, sem hann kallaði tvífara ensku limrunnar, en hún er einnig til í annarri út- gáfu með upphafslínunni „A rocket explorer named Wright“: Mín flaug er léttari en ljósgeislinn. Hún leið í dag út um gluggann minn fjær en afstæðið nær, fjær og fjær – og flutti mig aftur heim í gær. Hann bætti við: Óbein skuld við enskar limrur verður mér hins vegar seingoldin. Hef ég einkum reynt að grynna á henni með því að sýna fram á, að óþarft sé að yrkja þennan fimmt- arhátt með einstrengingslegri fábreytni. Afbrigði eru nærtæk og mega að ósekju verða fjar- skyld, ef betur hentar ákveðnu efni. Halldór Blöndal er á þeim nót- um: Fjóla á Þingeyri fær þennan flýti sem ljós ekki nær. Hún kveður og fer og frameftir er og fyrst kemur aftur í gær. Þá Hrólfur Sveinsson: Hún Dagbjört, sú dyggðuga mær, í dag reyndist ferðafær og hljóp upp í Kjós hraðar en ljós og hingað aftur í gær. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hinn afstæði tími í ljósi limrunnar Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ÉG ÓTTAST ENGAR ÁSKORANIR SVO LENGI SEM ÞÆR HALDA SIG UTANDYRA VIÐ MUNUM FÁ GEST Í KVÖLDMATINN! Í ALVÖRUNNI? HVERN? MAMMA ÞÍN ER AÐ KOMA! HVERNIG VISSIRÐU? TALBLÖÐRUÞJÁLFUN. „GJÖRÐU SVO VEL! ÉG FALSAÐI UNDIR- SKRIFTINA ÞÍNA. ÞÚ ERT KOMINN Í HERINN.“ ENN OF HÁTT ... óviðjafnanleg Víkverji setti bik undir barða umhelgina og fór í bíltúr út fyrir höfuðborgina. Hann átti ákveðið er- indi, en ákvað í leiðinni að líta við á garðyrkjubúinu Friðheimum í Reyk- holti. Víkverji hafði heyrt vel talað um þetta bú og reyndist ekkert of- sagt. Andrúmsloftið og stemmingin komu skemmtilega á óvart. x x x Ylrækt hefur verið stunduð á bæn-um frá 1946 eins og kemur fram á heimasíðu Friðheima. Hjónin Knútur Rafn Ármann og Helena Hermundardóttir keyptu búið árið 1995 og hafa byggt það upp af mikl- um krafti. Þar eru nú ræktaðir tóm- atar allan ársins hring, rekin hesta- miðstöð og haldið úti ferðaþjónustu. Boðið er upp á hestasýningu á 14 tungumálum. x x x Í Friðheimum er gestastofa og boð-ið upp á veitingar. Vinsælust er tómatsúpan, sem boðið er upp á ásamt heimabökuðu brauði og er skorað á gesti að borða eins og þeir geta í sig látið. x x x Ungur maður þjónaði til borðs ogfullur áhuga lét hann fylgja kynningu á búskapnum á Frið- heimum. Lýsti hann því hvernig gnótt vatns og rafmagns gerir kleift að rækta tómata við fullkomnari skilyrði en gerist í suðrænni löndum. Hjá honum kom einnig fram hversu vistvæn ræktunin er. Á Íslandi er lít- ið af skordýrum og því þarf ekki að úða eitri á tómatana. Rántítan Macrolophus pygmaeus kemur í staðinn. Hún étur öll helstu mein- dýr, sem leggjast á tómataplöntur. Í kynningunni kom einnig fram að fyr- ir vikið þyrfti ekki að þvo tómatana þegar þeir væru tíndir. Hægt væri að pakka þeim og flytja beint í versl- anir. Uppskera morgunsins væri því iðulega komin í grænmetisborðið á hádegi og væri óvíða í heiminum að finna dæmi um að vara kæmist svo fljótt frá býli til neytenda. x x x Víkverji kvaddi Friðheima saddurog sæll og hugsaði með sér að þangað ætti hann eftir að koma aft- ur. víkverji@mbl.is Víkverji Fel Drottni vegu þína og treyst hon- um, hann mun vel fyrir sjá. (Sálm. 37:5) PERFECTING CREAM MEÐ BÓNDARÓSARSEYÐI FLAUELSMJÚKT BLÓM SEM FEGRAR HÚÐINA Bóndarósin sem vex á Drôme svæðinu í Frakklandi er dáð fyrir þokka sinn og fegurð en hún býr yfir einstökum eiginleikum: fullkomnun. Rannsóknarteymi L’OCCITANE afhjúpar eiginleika hennar með kremi sem gefur húðinni fullkomna áferð. Kremið gefur hámarks raka fyrir allar húðgerðir og umbreytir yfirborðsáferð húðarinnar um leið og það eykur ljóma. Húðin verður flauelsmjúk og ljómar af fullkomnun. L’OCCITANE, sönn saga. Kringlan 4-12 | s. 577-7040 L’Occitane en Provence - Ísland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.