Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Einn helsti núlifandi lagahöfundur heims, Burt Bacharach, hélt tónleika í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi við mikinn fögnuð gesta. Hafði hann góða söngvara og hljóðfæraleikara sér til halds og trausts. Hann er 88 ára og hefur á 60 ára ferli sínum samið yfir 500 lög. Burt Bacharach vel tekið í Hörpu Morgunblaðið/Ófeigur Einn helsti núlifandi lagahöfundur heims með tónleika í gærkvöldi Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Stjórn Sambands íslenskra sveitar- félaga hefur sent öllum sveitar- stjórnum í landinu „leiðbeinandi við- mið“ um kjör sveitarstjórnarmanna, þar sem miðað er við að þeir sem eru í fullu starfi sem sveitarstjórnar- menn, fái 78% þingfararkaups. Þing- fararkaup er nú 763 þúsund krónur og 78% þeirrar upphæðar er 595 þúsund krónur. „Það eru einungis 15 sveitar- stjórnarmenn sem eru í fullu starfi, en það eru borgarfulltrúarnir í Reykjavík,“ sagði Halldór Halldórs- son, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og oddviti Sjálfstæðis- flokksins í borginni, í samtali við Morgunblaðið í gær. Karl Björns- son, fram- kvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfé- laga, skrifaði grein á heimasíðu sambandsins í fyrradag, undir fyrirsögninni Starfsumhverfi sveitarstjórnar- manna. Í grein Karls kom fram að ofangreind leiðbeinandi viðmið, sem öll sveitarfélög í landinu ráða hvort þau fara eftir, eru m.a. gerð vegna þess að sambandið hefur áhyggjur af því hversu mikil endurnýjun verði í sveitarstjórnum í sveitarstjórnar- kosningum og skýrir það m.a. með því að kjör sveitarstjórnarmanna séu líklega aðalástæðan. „Oftast hef- ur komið fram að lágar þóknanir og greiðslur miðað við þann mikla tíma sem kjörnir fulltrúar verja í þessi trúnaðarstörf sé aðalskýring mikill- ar endurnýjunar,“ skrifar Karl. Halldór segir að laun sveitar- stjórnarmanna séu ákveðin af hverju sveitarfélagi fyrir sig og einnig hversu hátt starfshlutfallið er. „Það hefur oft verið þrýstingur á sam- bandið að setja upp einhver viðmið. Við í stjórninni höfum í gegnum tíð- ina reifað einhverjar hugmyndir að leiðbeinandi viðmiðum, en höfum yf- irleitt verið skotin í kaf með hug- myndirnar,“ sagði Halldór. Er þetta fullt starf? Halldór segir að mörg sveitarfélög í landinu miði kjör sveitarstjórnar- manna ekki við eitthvert hlutfall af þingfararkaupi, heldur ákveði til- tekna upphæð sem greidd sé fyrir hvern fund. Halldór segir að öðru hverju komi upp umræða í stærri sveitarfélögun- um um það hvort gera eigi starf sveitarstjórnarmanna að fullu starfi. „Ég hef alltaf svarað slíkri umræðu á sama veg, að ég hafi velt því fyrir mér hvort það sé endilega rétt og nauðsynlegt að starf borgarfulltrú- anna 15 í Reykjavík sé fullt starf, og hef þá vísað til þess hvernig málum er háttað á hinum löndunum á Norð- urlöndunum. Það eru um 50 borg- arfulltrúar í Kaupmannahöfn, en bara hluti þeirra er í fullu starfi, því margir borgarfulltrúanna vinna jafnframt önnur störf,“ sagði Hall- dór. Leggja til 78% fyrir fullt starf  Samband íslenskra sveitarfélaga leggur til leiðbeinandi viðmið um kjör sveitar- stjórnarmanna  Formaðurinn efast um að starf borgarfulltrúa sé fullt starf Halldór Halldórsson Alls skrifuðu 202 íbúar í Mývatns- sveit, eða 66% undir yfirlýsingu um að leggjast gegn fyrirhugaðri við- byggingu við Hótel Reykjahlíð sem Icelandair Hotels áforma. Yngvi Ragnar Kristjánsson, oddviti hrepps- nefndar, tók við undirskriftalistunum en tveir þriðju hlutar íbúa sem höfðu náð 18 ára aldri í sveitinni skrifuðu undir. Einn af forsvarsmönnum söfn- unarinnar var Stefán Jakobsson, íbúi í sveitinni. „Það er verið að rannsaka vatnið og hvaða áhrif mannfólkið hefur á líf- ríki þess. Enn hefur engin lausn verið fundin eða ástæða. Þá finnst mér heimskulegt að fara í þessa risafram- kvæmd. Sveitarfélagið vantar fjár- stuðning til að takast á við vandann eins og hann er núna og þá á að auka á áhættuna og vandann,“ segir Stef- án. Eftir upplýsingafund með skipu- lagsnefnd sveitarinnar og fulltrúum Icelandair Hotels, sem haldinn var í sveitinni fyrr í sumar, fór af stað um- ræða meðal íbúa um hvort rétt væri að heimila byggingu svo nærri vatn- inu enda gilda lög um verndun Mý- vatns og Laxár. Er fyrirhuguð við- bygging öll innan 200 metra verndarlínu laganna en við hönnun viðbyggingarinnar hefur hótelkeðjan leitast við að fella hótelið sem best að náttúru svæðisins þannig að sjónræn áhrif þess frá vegi verði sem minnst. „Það eru fáir á móti því að Ice- landair Hotels komi í sveitina. Hótel- keðjan er velkomin í sveitina, en að byggja yfir 3.000 fermetra viðbygg- ingu við 544 fermetra hótel, innan 200 metra bakkans sem er friðaður sam- kvæmt lögum, er galið. Leyfum nátt- úrunni að njóta vafans í þetta sinn og færum hótelið lengra frá. Það eru nægir staðir hér sem reisa má hótel á án þess að taka óþarfa áhættu eða skerða útsýni. Það er ekki of seint að hætta við,“ segir Stefán. benedikt@mbl.is Tveir þriðju á móti viðbyggingu hótels Morgunblaðið/Birkir Fanndal Afhent Ásdís Illugadóttir afhendir Yngva Ragnari undirskriftalistana.  Vilja ekki við- byggingu á vernd- arsvæði Mývatns Maður féll í á við Sveinsgil, norðan Torfajökuls, um kl. 18 í gær. Tveir menn voru á göngu á svæðinu þeg- ar þeir fóru yfir ísbrú sem brotnaði og annar þeirra féll ofan í ána. Maðurinn var ófundinn á tólfta tím- anum í gærkvöldi þegar blaðið fór í prentun. Félagi hans slapp yfir ís- brúna og tókst að hringja eftir hjálp. Veður tók að versna á slysstað í gærkvöldi. Það byrjaði að rigna og skyggni var lítið. Hægt gekk að moka burtu snjóbreiðunni á ánni en samkvæmt upplýsingum frá Lands- björg er svæðið varhugavert. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, var á staðnum í gærkvöldi og ferjaði leitarmenn um svæðið. Þá voru kafarar frá Gæslunni sendir á vettvang. Um 150 manns tóku þátt í leit- inni við erfiðar aðstæður. Hálendis- vakt björgunarsveita í Landmanna- laugum, björgunarsveitir úr Árnes- sýslu og straumvatnsbjörgunar- hópar frá björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu bættust við leitarhópinn. Leituðu manns sem féll í á  150 manns leituðu við erfiðar aðstæður Ari Edwald, for- stjóri Mjólk- ursamsölunnar, baðst velvirð- ingar í gær á „klaufalegu orðalagi“, þar sem hann gaf í skyn að neyt- endur myndu á endanum borga sektina sem Samkeppniseftirlitið lagði á MS. „Neytendur munu ekki bera mögulega sektar- greiðslu MS. Umræða um sekt er heldur ekki tímabær þar sem málinu er ekki lokið og fer nú til áfrýjunarnefndar samkeppnis- mála,“ segir Ari í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum. Þá segir hann einnig að vegna þess að ákvarðanir um verð á helstu mjólkurvörum í heildsölu og lágmarksverð til bænda séu teknar af opinberri verðlags- nefnd hafi MS enga hagsmuni eða getu til að misnota stöðu sína. Forstjóri MS biðst afsökunar á „klaufa- legu orðalagi“ Ari Edwald Meðvitað er reynt að stilla hæð viðbygginga í hóf til að trufla útsýni yfir vatnið sem minnst og er viðbygging því á tveimur hæðum og heildarhæð hennar töluvert lægri en heimilt er í nú- verandi deiliskipulagi. Núver- andi hótel er þrjár hæðir, alls 544 fermetrar en stækkar upp í 3.677 fermetra. Þök verða hall- andi torfþök og leitast er við að brjóta upp byggingarmassa þannig að byggingin lagi sig sem best að umhverfi sínu. Stækkar um 3.133 fermetra FYRIRHUGUÐ VIÐBYGGING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.