Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 12

Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 12
Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Ég gerðist vegan fyrirfimm árum, fyrst afheilsuástæðum, en í dagsnýst þetta um svo margt fleira,“ segir Helga María. Yngri systir hennar, Júlía Sif, varð vegan þegar hún byrjaði í menntaskóla fyrir fjórum árum. „Fyrir mér snerist þetta aðallega um siðferðislegu hlið- ina. Í dag erum við vegan fyrir dýrin, jörðina og mannfólkið,“ segir Júlía Sif. Veganismi er ein hugmynd innan grænmetishyggjunnar, þeir sem eru vegan borða engar dýraafurðir, hvorki líkama, mjólk né egg. Báðar tóku þær ákvörðunina frekar skyndilega. „Ég eyddi einum degi í að afla mér upplýsinga um lífs- stílinn og sama kvöld var ég ákveðin og hef ekki litið til baka síðan,“ segir Helga María. Júlía Sif flutti til systur sinnar þegar hún byrjaði í mennta- skóla og gerðist vegan á einni nóttu. „Einn daginn var ég að borða lamba- læri og skyr og daginn eftir var ég hætt að borða allar dýraafurðir og hef aldrei saknað neins,“ segir Júlía Sif. Fyrir tveimur árum byrjuðu systurnar að nýta sér samfélagsmiðla til að þróa vegan-lífsstílinn og deila með öðrum. „Við birtum myndir af því sem við vorum að borða og mynd- ir af vegan-vörum sem við mælum með. Facebook-síðan lagðist svo í smá dvala í nokkra mánuði þar til við systur ákváðum að opna hana aftur. Þá stofnuðum við Instagram og Snapchat og fengum mun fleiri fylgj- endur. Það var svo ekki fyrr en núna í sumar sem við loksins opnuðum veg- anistur.is,“ segir Helga María. Bloggið hjálpar systrunum einnig að halda góðu sambandi, en Helga Samrýndar systur og grænkerar Systurnar Helga María og Júlía Sif Ragnarsdætur eiga ýmislegt sameiginlegt. Þær eru báðar grænkerar, eða vegan, og elska að elda góðan mat. Þær gerðust báðar vegan á einni nóttu, ekki þeirri sömu þó, og halda úti skemmtilegu bloggi, Veganistur, þar sem þær deila fljótlegum og girnilegum vegan-uppskriftum. Ljósmynd/Rakel Erna Skarphéðinsdóttir Systur Júlía Sif og Helga María Ragnarsdætur stofnuðu bloggsíðuna veganistur.is fyrr í sumar. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Tveir gjörningar verða fluttir í Tví- söng kl. 21.30 - 22.30 í kvöld, 13. júlí. Annars vegar Spring’s Call of Nature eftir Styrmi Örn Guðmunds- son og hins vegar Ymur þula eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Gjörningarnir eru hluti af sumarsýn- ingu Skaftfells, Samkoma handan Norðanvindsins, og LungA. Tví- söngur er staðsettur í Þófunum of- an við Seyðisfjarðarkaupstað og tekur um 15 mínútur að labba upp að verkinu. Styrmir Örn er maður frásagna og gjörninga auk þess sem hann syngur, býr til hluti og teiknar. Hann laðast að hinu fjarstæðukennda. Ymur þula er gjörningur og tónverk þar sem m.a. er leitast við að hljóð- gera mynstur sem notað var við að muna þulur og kvæði eftir Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Efniviður verksins eru meðraulandi þuluskáld. Vefsíðan www.skaftfell.is Morgunblaðið/Eggert Gjörningafólk Styrmir Örn Guðmundsson og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Gjörningar í Tvísöng í Þófunum Í sumarblíðunni er upplagt að taka sér göngutúr um Þingvelli. Fjölbreyttar gönguleiðir liggja um þjóðgarðinn og eru þær stikaðar og merktar. Utan þing- staðarins forna tengjast þær flestar gömlu eyðibýlunum, Hrauntúni, Skógarkoti og Vatnskoti þar sem enn má sjá ummerki mannvistar fyrir tíma vélvæðingar. Þjóðleiðirnar um Langastíg, Skógar- kots-veg og Nýju-Hrauntúnsgötu eru einnig opnar hestaumferð en aðrar leið- ir eru einungis ætlaðar gangandi fólki. Nánari upplýsingar um göngustíga á gönguleiðakorti þjóðgarðsins og sér- korti Landmælinga Íslands af Þingvöllum. Endilega . . . . . . gangið um Þingvelli Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjóðgarðurinn Fagurt um að litast. Japanski listamaðurinn og butoh- dansarinn Mushimaru Fujieda fremur gjörning ásamt rokksveitinni Fufanu á KEX-hosteli kl. 20 í kvöld í Gym & Tonic. Dagana 15. - 17. júlí verður Fujieda svo með námskeið í Jógasetr- inu. Hann kallar sig náttúrulegt, lík- amlegt skáld, Natural Physical Poet, en list hans þróaðist í kringum sóló- dans þar sem hann tjáir tilfinninga- þrungin augnablik í lífinu, á táknræn- an hátt. Hann hefur ferðast víða með list sína, haldið námskeið í yfir 20 löndum og stýrir ásamt þremur börn- um sínum Fujieda danshópunum The Physical Poets og Arakan Family. Fujieda leggur áherslu á slökun huga og líkama gegnum andardrátt og dans. Námskeiðið í Jógasetrinu felst í að rækta náttúrulegan dans fyrir hvern og einn með hreyfingu sem tengist önduninni beint. Mark- miðið er að gera hverjum og einum kleift að upplifa einlæga leikgleði barnsins í sjálfum sér. Hægt er að skrá þátttöku í nám- skeiðinu á netfangið asashima- da@gmail.com, eða í síma 6258575. Náttúrulegt líkamlegt skáld með gjörning og námskeið Áhersla á slökun huga og líkama gegnum andardrátt og dans Morgunblaðið/Þórður Butoh-dansgjörningur Listamaðurinn Mushimaru Fujieda framdi Butoh- dansgjörning í Listasafni Íslands og vakti gjörningurinn nokkra athygli. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.