Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 17

Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Karl Blöndal kbl@mbl.is 23 manns létu lífið í gær þegar tvær farþegalestir skullu saman í hér- aðinu Puglia í suðurhluta Ítalíu. Björgunarsveitir hröðuðu sér á vett- vang til að bjarga fólki úr braki lest- arvagna, sem köstuðust af sporinu út í ólífulundi skammt frá bænum Andria. „Ég sá látið fólk, aðrir grátbáðu um hjálp, fólk grét,“ sagði lögreglu- maður við blaðamenn. „Þetta er það versta, sem ég hef séð á ævi minni.“ Vito Montanaro, yfirmaður heil- brigðisyfirvalda í Bari, sagði að 20 hefðu látist í slysinu og 35 slasast, þar af væru 18 í lífshættu. Síðar kom fram hjá BBC að 23 hefðu látist. Reist voru sjúkraskýli á slysstað. Síðdegis í gær voru 200 manns þar að störfum og var enn verið að bjarga fólki úr brakinu. Námsmenn og vinnandi fólk ferðast mikið með lestum á þessari leið. Aðeins eitt lestarspor Aðeins eitt lestarspor er þar sem lestirnar voru á ferð á milli bæjanna Andria og Corato. Slysið átti sér stað rétt áður en kom að beygju. Með- alhraði lesta á þessum kafla er 100 km á klukkustund, að því er fram kemur á fréttavef Der Spiegel. Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, gerði hlé á ræðu, sem hann var að flytja í Mílanó, til að ávarpa Ítali, að því er segir í frétt frá AFP. Hann sagði að það hefði forgang að komast að því hver bæri ábyrgð á slysinu. „Við munum ekki unna okk- ar hvíldar fyrr en ljóst er hvað gerð- ist,“ sagði hann. Mannleg mistök? Einkafyrirtækið Ferrotramviria rekur lestirnar, sem skullu saman. Massimo Nitti, framkvæmdastjóri Ferrotramviria, sagði í viðtali við ítalska ríkisútvarpið, RAI, að ljóst væri að „önnur lestin hefði ekki átt að vera þarna“. Fréttastöðin TG Norba 24 greindi frá því innan við þremur klukkustundum eftir árekst- urinn að óhappið hlyti að mega rekja til mannlegra mistaka. Önnur lestin hefði ekki verið á áætlun og ekið af stað fyrr en gert væri ráð fyrir. Í fréttum sjónvarpsfréttastöðvar- innar TG24 var haft eftir sérfræðingi að staðið hefði til að leggja tvö spor á milli Andria og Corato, en ekki hefði orðið af því. Kaflinn á milli bæjanna væri því veikur blettur á kerfinu. 23 látnir í lestarslysi á Ítalíu AFP Harður árekstur Tveir lestarvagnar gereyðilögðust þegar tvær lestir skullu saman í Puglia á Ítalíu skömmu fyrir hádegi í gær. 23 manns létust í slysinu og tugir manna slösuðust. Aðeins eitt spor er á kaflanum þar sem slysið varð.  Tvær lestir skullu saman í héraðinu Puglia  Aðkoman hryllileg  Forsætis- ráðherra Ítalíu segist ekki munu unna sér hvíldar fyrr en ljóst verði hvað gerðist Lestarslys » Vagn með fljótandi gasi sprakk á lestarstöð í Viareggio í Toskana 2009. 31 lét lífið. » Fjórum árum áður létust 17 þegar lestir skullu saman milli Bologna og Verona. Á þeim kafla var aðeins eitt spor. Árgerð 2014, ekinn 32 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Bakkmyndavél, 16“ álfelgur, hiti í framsætum, sætisþæginda- pakki, inniljósapakki o.fl. Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 38.300 kr.* B 220 CDI GLK 220 4MATIC ML 250 4MATIC A 200 AMG STYLE Árgerð 2014, ekinn 39 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 205 hö. AMG sportpakki, dráttarbeisli, hiti í framsætum, nálgunar varar, rafdrifinn afturhleri, sólþak, speglapakki, o.fl - Verð 9.990.000 kr. Afb./mán. 84.000 kr.* Árgerð 2014, ekinn 26 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Offroad pakki, hiti í framsæt- um, krómpakki, LED dagljós, o.fl. Verð 5.990.000 kr. Afb./mán. 50.800 kr.* Árgerð 2015, ekinn 5 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 136 hö. Nálgunarvarar, bakkmynda- vél, minnispakki fyrir sæti, AMG exclusive pakki, nætur- pakki, keyless GO o.fl. Verð 6.390.000 kr. Afb./mán. 56.600 kr.* Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16 Mercedes-Benz Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir Kíktu á úrvalið á www.notadir.is *Mánaðargreiðsla m.v. 50% bílalán í 72 mánuði. Vextir 9,25% og árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,73–10,79% „Clinton hefur unnið forkosningar Demókrataflokksins og óska ég henni til hamingju með árangurinn. Hún verður forsetaefni Demókrata- flokksins og ætla ég að að gera allt sem ég get til að tryggja að hún verði næsti forseti Bandaríkjanna,“ sagði Bernie Sanders, öldunga- deildarþingmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi. Lýsti hann þessu yfir á fjölmenn- um kosningafundi sem haldinn var í New Hampshire í Bandaríkjunum, en við hlið hans stóð frambjóðand- inn Hillary Clinton. „Hún verður framúrskarandi forseti og því stend ég stoltur við hlið hennar,“ sagði Sanders er hann lauk máli sínu. „Við erum sterkari saman“ Clinton steig því næst í pontu og sagði nú mikilvægt að sameina kraftana til að sigra auðkýfinginn Donald Trump í kosningunum sem haldnar verða 8. nóvember nk. „Ég kemst ekki hjá því að minn- ast á hversu ánægjulegar þessar kosningar verða nú þegar við erum í sama liði,“ sagði hún. „Veistu hvað - við erum sterkari saman.“ AFP Demókratar Clinton og Sanders ræddu við margmenni á fundi í gær. „Clinton hef- ur unnið“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.