Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Shinzo Abe,forsætisráð-herra Jap-
ans, gat hrósað
happi um helgina
þegar kosið var til
efri deildar jap-
anska þingsins. Flokkur hans,
Frjálslyndi demókrataflokk-
urinn, hlaut þar ríflegan meiri-
hluta ásamt samstarfsflokkum
sínum. Leiðin er greið fyrir
Abe til þess að knýja á um um-
deildar breytingar á stjórn-
arskrá landsins, þar sem ríkis-
stjórnin ræður nú yfir báðum
deildum þingsins.
Einn helsti ásteytingar-
steinninn er 9. grein stjórnar-
skrárinnar, þar sem öllum
stríðsrekstri er hafnað og Jap-
önum meinað að halda úti her-
liði. Flokksmenn Abes vilja
fjarlægja eða umorða þá grein,
þannig að Japanar geti hagað
varnarmálum sínum með hefð-
bundnari hætti og gert varn-
arlið sitt færara um að verjast
utanaðkomandi hættum.
Áður hafa verið stigin skref í
þá veru. Árið 2014 samþykkti
ríkistjórnin breytta túlkun á 9.
greininni, sem gerði varnarliði
Japans kleift að taka þátt í
heræfingum og samstarfi með
bandamönnum sínum, jafnvel í
verkefnum utan japansks
áhrifasvæðis. Þær breytingar
mæltust misjafnlega fyrir,
bæði innan Japans og meðal
nágranna landsins, og
óánægjuraddirnar yrðu líklega
enn háværari ef 9. greininni
yrði fargað eða breytt.
Og þar liggur hundurinn
grafinn, því að helsti sam-
starfsflokkur
Abes, Komeito-
flokkurinn, aðhyll-
ist friðarstefnu
byggða á búdd-
isma. Forvíg-
ismenn þess flokks
hafa lýst sig fúsa til þess að
endurskoða stjórnarskrána, en
þeir vilja koma að hugmyndum
sínum um umhverfisvernd og
verndun einkalífs, frekar en
hrófla við 9. greininni. Ekkert
er þó útilokað í þeim efnum.
Það væri tvímælalaust lak-
ara ef þessar breytingar á
stjórnarskrá Japans næðust
ekki fram nema með hrossa-
kaupum. Það er ekki að
ástæðulausu að Abe og flokks-
menn hans vilja breyta 9.
greininni. Þeir búa nú við hlið
tveggja nágranna, sem hvor
með sínum hætti eru með yf-
irgang, annars vegar Kína með
útþenslustefnu sinni í Suður-
Kínahafi og hins vegar Norð-
ur-Kórea með kjarnorkuhót-
unum og eldflaugatilraunum.
Á sama tíma hafa áhrif Banda-
ríkjanna á Kyrrahafi farið
dvínandi þannig að bandamenn
þeirra þurfa að hugsa um eigin
varnir í auknum mæli.
Einar og sér myndu þessar
áskoranir kalla á einhver við-
brögð frá Japönum. Þegar þær
eru teknar saman verður þörf-
in á styrkari vörnum Japans
æpandi. Verði 9. greininni ekki
breytt, má því fastlega gera
ráð fyrir að áfram verði leitað
leiða til þess að fara framhjá
henni, þar til að lokum hún
verður nær merkingarlaus.
Það væri versta niðurstaðan.
Shinzo Abe vinnur
meirihluta í efri
deildinni}
Japanar þurfa að geta
varist vaxandi ógn
Fornleifafræð-ingar telja sig
hafa fundið rústir
hins forna Þing-
eyraklausturs.
Rannsóknir á
hleðslum sem taldar eru til-
heyra klaustrinu eru nú að
hefjast, samhliða uppgreftri á
klausturkirkjunni, og verður
vistfræði staðarins könnuð
samhliða uppgreftrinum.
Rannsóknir af þessu tagi
taka langan tíma og of snemmt
er að fullyrða að rústirnar séu
fundnar, en frumathuganir
lofa góðu. Reynist það rétt er
um stórmerkilegan fund að
ræða, þar sem klaustrið var
starfrækt í rúmar fjórar aldir,
frá 1133 til 1551. Klaustrið var
það fyrsta á Íslandi, starfrækt
þar til mótmælendatrú var
tekin upp.
Klaustrið var mikið mennta-
setur og var Flat-
eyjarbók rituð þar
ásamt fleiri hand-
ritum. Þá gegndi
það hlutverki
sjúkrahúss og ým-
issar annarrar þjónustu sem í
dag yrði kennd við velferð í
víðri merkingu. Uppgröfturinn
gæti því varpað nýju ljósi á
ýmislegt sem tengist menn-
ingu og sögu landsins í kaþ-
ólskum sið. Þá gætu rannsókn-
irnar haft heilmikla þýðingu
utan landsteinanna og jafn-
framt gefið betri mynd af því
hvernig samskiptum Íslands
og umheimsins var háttað á
miðöldum.
Á næstu árum er því spenn-
andi tíð á Þingeyrum þar sem
búast má við að hulunni verði
svipt af ýmsum þeim leyndar-
dómum sem saga Þingeyra-
klausturs hefur að geyma.
Talið er að búið sé
að finna rústir
Þingeyraklausturs}
Merkar fornleifarannsóknir
K
æri Orri.
Þar sem ég hjólaði í Hafnar-
firði á laugardaginn varð mér
hugsað til orðaskipta sem við átt-
um deginum áður þar sem þú
hissaðir þig á því hve bágt gamla tenniskempan
Andrew Castle hefði fengið fyrir að segjast
gjarnan vilja að tannlæknir sinn væri eins útlits
og sambýliskona tennisleikarans Marcus Will-
is, sem var á meðal áheyrenda á mótinu. Það
sem Castle vissi, og við komumst að, er að við-
komandi kona er hámenntaður kjálka-
skurðlæknir. „Meiri lætin!“ sagðir þú hneyksl-
aður yfir húmorsleysinu.
Nú er það vissulega ekkert nýtt að leiklýs-
endur ræði útlit kvenna í lýsingum sínum,
minni til að mynda á annan sjónvarpsdóna,
John Inverdale, og ruddalegar athugasemdir
hans um Marion Bartoli fyrir tveimur árum. Það er ekki
heldur nýtt að sjónum sé beint að líkömum kvenna til að
vekja athygli á einhverjum viðburði, auka áhorf á eitthvað,
eða selja eitt og annað. Það hefur tíðkast í aldir og áratugi
að hafa fáklæddar konur, eða konur í afkáralegri stöðu, til
að selja bíla, húsgögn tómatsósu, karlmannabuxur, ilm-
vatn, kaffi, gosdrykki, hamborgara, penna, áfengi, vindla,
eldavélar, hálslín, skó, karlmannaskyrtur, munnskol,
bankaþjónustu, flugferðir og tryggingar. Já og íþrótta-
viðburði; þær útsendingar BBC sem ég sá frá leikjum
kvenna í Wimbledon-mótinu hafa að stórum hluta snúist
um að sýna sem flestar klofmyndir. (Þú getur dundað þér
við að skoða reglur í fimleikum, blaki og
strandblaki víða um heim og velt því fyrir þér
af hverju reglubundinn klæðnaður kvenna á að
vera nærskorinn og sýna sem mest af líkam-
anum, en öllum er sama um hvað sést af körl-
unum.)
Þegar litið er til sögunnar, Orri, ætti ekki að
koma nokkrum manni á óvart að konur séu
löngu orðnar leiðar á því að vera sífellt smætt-
aðar niður í brjóst og rass, að atgervi þeirra og
geta skipti engu máli, bara hvernig þær líta út,
hvernig þær eru vaxnar. (Mér er líka til efs,
svona yfirleitt, að ungar konur kæri sig al-
mennt um „gullhamra“ frá miðaldra körlum.)
„– Jæja, Orri, nú erum við búnir að fara yfir
röntgenmyndirnar og það þarf að framkvæma
smáskurðaðgerð. Við erum með tvo mjög færa
skurðlækna tiltæka …“
„– Ég vil þessa með stóru brjóstin!“
Sjálfum finnst mér það óþægilegt að vera sífellt smætt-
aður niður í eðlunarfúsan frummann sem hefur ekki
áhuga á neinu nema kynlífi, bjór og feitu, söltuðu og
reyktu kjöti. Feitu, söltuðu, reyktu og grilluðu kjöti. Já, og
fótbolta. Og kynlífi. Að því leyti skil ég af hverju konum er
svo í nöp við athugasemdir eins og frá sjónvarpslúðunum
sem ég nefni hér fyrir ofan. Og þó hef ég ekki þurft að
glíma við það alla ævi að vera sífellt undir smásjánni vegna
útlits, vaxtarlags, klæðaburðar, málróms og hegðunar fyr-
ir það eitt að hafa fæðst af tilteknu kyni. Og þú ekki held-
ur. arnim@mbl.is
Árni
Matthíasson
Pistill
Af miðaldra lúðum
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ég ólst upp sem prestsdóttirog barnabarn yfirliðþjálfaí hernum. Almannaþjón-usta hefur verið hluti af
mér svo lengi sem ég man,“ sagði
Theresa May, innanríkisráðherra
Breta, er hún boðaði þátttöku sína í
leiðtogakjöri breska Íhaldsflokksins
30. júní sl. Í kvöld, tæpum tveimur
vikum seinna, tekur hún við embætti
forsætisráðherra Bretlands af David
Cameron sem gegnt hefur embættinu
frá 2010.
Theresa May er 59 ára gömul, fædd
1. október 1956 í strandbænum
Eastbourne á suðurströnd Englands.
Hún er einkabarn hjónanna séra Hu-
berts Brasier og Zaidee. Þau létust
bæði er May var 25 ára gömul. Kristin
trú og hollusta við Íhaldsflokkinn og
stefnu hans var áberandi á æskuheim-
ilinu og er May snemma sögð hafa
sýnt mikinn áhuga á stjórnmálum.
May lauk BA-gráðu í landafræði við
Oxford-háskóla 1977. Þar kynntist
hún einnig eiginmanni sínum, Philip
May fjárfesti. Sagan segir að þau hafi
verið leidd saman af Benazir Bhutto,
síðar forsætisráðherra Pakistans, á
diskóteki fyrir unga íhaldsmenn, en
parið gekk í hjónaband 1980. Þau eru
barnlaus.
Fyrst kjörin á þing 1997
Að loknu námi vann May meðal
annars hjá Seðlabanka Englands en
hafði þó ávallt augastað á stjórn-
málum. Gerði hún tvær árangurs-
lausar tilraunir til þess að verða kjörin
fulltrúi, þ.e. 1992 og 1994. Árið 1997
tókst May hins vegar ætlunarverk sitt
þegar hún var kjörin sem þingmaður
Íhaldsflokksins fyrir Maidenhead-
kjördæmi í Berkshire í suðaustur-
hluta Englands.
„Ég tel að íbúar Maidenhead hafi
verið að leita að einstaklingi sem þeir
telja bestan sem fulltrúa á þingi. Og
ég tel þá augljóslega hafa valið rétt í
kvöld,“ sagði May er hún var valin til
þess að bjóða sig fram sem fulltrúi
kjördæmisins.
May reis hratt til metorða innan
Íhaldsflokksins og varð árið 2002
t.a.m. fyrst kvenna til að gegna stöðu
formanns flokksins. Á ársfundi flokks-
ins sama ár, þegar Íhaldsflokkurinn
var í sárum eftir að hafa tapað stórt
fyrir Verkamannaflokknum í kosn-
ingum 1997 og 2001, vakti May mikla
athygli í ræðu. Sagði hún að Íhalds-
flokkurinn væri orðinn „andstyggilegi
flokkurinn“ en skoðanakannanir á
þeim tíma bentu til þess að flokkurinn
hefði á sér það orð að vera úr
tengslum við raunveruleikann og var
það einkum ungt fólk sem hafði þá
mynd af honum.
„Vitið þið hvað sumir kalla okkur –
andstyggilega flokkinn. Ég veit að það
er ósanngjarnt, þið vitið að það er
ósanngjarnt en það er fólkið þarna úti
sem við þurfum að sannfæra,“ sagði
hún í ræðu sinni.
Að loknum þingkosningum 2010
mynduðu Íhaldsflokkurinn og Frjáls-
lyndi flokkurinn samsteypustjórn
undir forystu Davids Cameron. Tók
May þá við embætti innanríkis-
ráðherra og hefur hún það orð á sér að
vera hörð í horn að taka, skilvirk og
vinnusöm sem ráðherra.
„Ætlum að láta það ganga“
Bretar kusu í atkvæðagreiðslu 23.
júní sl. að ganga úr Evrópusamband-
inu. Þó að May hafi stutt áframhald-
andi aðild að sambandinu segir hún
stefnuna skýra. „Það er mér heiður og
ég er auðmjúk yfir því að hafa verið
valin af Íhaldsflokknum til að verða
leiðtogi hans. Brexit merkir Brexit og
við ætlum að láta það ganga,“ sagði
May en það kemur nú í hennar hlut að
fylgja eftir úrslitum áðurnefndrar at-
kvæðagreiðslu.
Theresa May leiðir
Breta inn í nýja tíma
AFP
Ráðherraskipti Theresa May, næsti forsætisráðherra Bretlands, sést hér
ásamt eiginmanni sínum Philip, en Cameron lætur af embætti í kvöld.
Theresa May verður annar kven-
kyns forsætisráðherra Bretlands
til þessa. Sá fyrri var Margaret
Thatcher, samflokkskona henn-
ar, sem gegndi embættinu frá
1979 til 1990. Thatcher lést árið
2013, 87 ára að aldri.
Sem forsætisráðherra mun
May þurfa að vinna náið með
Angelu Merkel, kanslara Þýska-
lands, m.a. að málum er varða
útgöngu Breta úr ESB. Merkel
tók við embætti kanslara 2005.
Þá gæti svo farið að kona yrði
næst kosin forseti Bandaríkj-
anna, því Hillary Clinton etur nú
kappi við Donald Trump. Kosið
verður þar 8. nóvember nk.
Þrjár í lykil-
hlutverkum?
KONUR SÆKJA FRAM
AFP
Reynslubolti Angela Merkel hefur
verið kanslari frá 2005.