Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 19

Morgunblaðið - 13.07.2016, Síða 19
Gjöld ráðuneyta 2007 og 2015 í milljónum króna 2015 2015 Æðsta stjórn ríkisins 4.452 5.342 Forsætisráðuneyti 3.235 2.852 Mennta- og menningarmálaráðuneyti 76.348 77.546 Utanríkisráðuneyti 11.346 11.798 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti 30.457 35.855 Innanríkisráðuneyti 82.819 94.786 Velferðarráðuneytið 275.402 263.743 Fjármála- og efnahagsráðuneyti 92.436 85.468 Umhverfis- og auðlindaráðuneyti 10.685 9.493 Fjármagnskostnaður 79.348 34.747 Gjöld samtals 666.528 621.631 Án fjármagnskostnaðar 587.180 586.884 2007 á verðlagi Breyting á útgjöldum ráðuneyta frá 2007 til 2015 Æ ðs ta st jó rn rík is in s Fo rs æ tis rá ðu ne yt i M en nt a og m en ni ng ar m ál a- rá ðu ne yt i á föstu verðlagi í m.kr. U ta nr ík is rá ðu ne yt i Ve lfe rð ar rá ðu ne yt ið Fj ár m ál a- og ef na ha gs rá ðu ne yt i U m hv er fis - og au ðl in d ar áð un ey ti A tv in nu ve ga - og ný sk öp un ar - rá ðu ne yt i In na nr ík is rá ðu ne yt i Þetta er farið að minna á árið 2007, segja margir sem vilja gagnrýna það sem miður fer í íslensku efnahagslífi. Ekkert er óeðlilegt við að setja gagnrýni fram á einfaldan hátt, þótt í einfaldleikanum geti myndin sem dregin er upp af stöðu efna- hagsmála orðið villandi og jafnvel röng. Árið 2007 var Íslendingum hag- fellt í mörgu. Atvinnuleysi var hverfandi, kaupmáttur launa jókst verulega, hagvöxtur var mikill og góður afgangur var á ríkissjóði þrátt fyrir umtalsverða raunaukn- ingu útgjalda. Ríkissjóður átti pen- ingalegar eignir umfram skuldir. Væntingar almennings og stjórn- enda fyrirtækja voru í hæstu hæð- um. Almenn bjartsýni ríkti um framtíðina. Að þessu leyti er ekki vont að snúa aftur til ársins 2007 og margt bendir til þess að íslenskt efna- hagslíf sé á þeirri vegferð. Vænt- ingavísitala Gallup hefur náð svip- uðum hæðum og sumarið 2007, byggingakranar rísa um allt höf- uðborgarsvæðið og víða um land, atvinnuleysi er lítið og kaupmáttur hefur aukist verulega á síðustu misserum. Hagur flestra fyrir- tækja hefur vænkast og eignastaða heimilanna er sterkari en áður. Hærri útgjöld Samkvæmt ríkisreikningi námu heildarútgjöld ríkissjóðs um 667 milljörðum króna á síðasta ári en þar af var liðlega 79 milljarða vaxtakostnaður. Án fjármagns- kostnaðar voru útgjöld því liðlega 587 milljarðar króna. Á verðlagi síðasta árs voru út- gjöld ríkisins 2007 án vaxta tæpir 587 milljarðar. Sem sagt: Í útgjöldum er ríkissjóður kom- inn aftur til 2007. Þar munar mestu að útgjöld til velferðarmála hafa hækkað gríðarlega í tíð þess- arar ríkisstjórnar og eru tæplega 12 millj- örðum króna hærri að raunvirði en 2007. Hækkun á útgjöldum fjármálaráðuneytisins er vegna skuldaleið- réttingarinnar sem er gjaldfærð á nokkrum árum. Framlög til vega- framkvæmda eru hins vegar langt undir raungildi á árinu góða og útgjöld til löggæslu eru það einnig og munar þar lið- lega 2,1 milljarði króna. Við sett- um hins vegar töluvert meiri fjár- muni til fangelsismála og dómstóla á síðasta ári. Það ætti að gleðja einhverja að útgjöld til landbúnaðarmála voru á liðnu ári 3,4 milljörðum króna lægri að raungildi en 2007. Útgjöld vegna framhaldsskóla hækkuðu en framlög til háskóla lækkuðu að raungildi þrátt fyrir að nemendum hafi fjölgað töluvert. Ekki alveg 2007 Það sem skilur á milli 2007 og 2015 eru yfir 900 milljarðar vegna verri eignastöðu ríkissjóðs – skuld- ir umfram eignir. Samkvæmt rík- isreikningi voru skuldir og skuld- bindingar um 913 milljörðum króna hærri en eignir í lok síðasta árs þrátt fyrir töluverða lækkun skulda á milli ára. Á þessu ári munu skuldir lækka gríðarlega. Þannig færist ríkissjóður nær árinu 2007 þegar eignir voru um- fram skuldir. Og það hlýtur að vera fagnaðarefni, jafnvel í hugum þeirra sem tala um árið 2007 af töluverðri fyrirlitningu. Verri skuldastaða endurspeglast í þeirri staðreynd að á liðnu ári greiddi ríkissjóður um 44,6 millj- örðum króna meira í vexti að raun- virði en 2007. Þetta er litlu lægri fjárhæð en rann til reksturs Land- spítalans allt síðasta ár. En þrátt fyrir að útgjöld rík- issjóðs hafi hækkað verulega á síð- ustu árum og séu svipuð á föstu verðlagi og á „gullárinu“ vantar töluvert upp á tekjurnar. Skatt- tekjur ríkisins voru liðlega 16 milljörðum króna lægri á síðasta ári. Engu að síður hafa skatttekjur ríkissjóðs hækkað verulega á síð- ustu árum. Tekjuskattur ein- staklinga var nær 22 milljörðum króna hærri á liðnu ári en 2012 og tryggingagjaldið um 10 millj- örðum. Þannig færast tekjur rík- isins nær 2007 og raunar eru sumir skattstofnar að skila meiru en þá. Margt eftirsóknarvert Auðvitað er ekki allt eftirsókn- arvert frá árinu 2007, en það er langt í frá að allt hafi verið slæmt. Það er a.m.k. gott markmið að gera ríkissjóð skuldlausan nettó – eignir séu hærri en skuldir og að vaxtagreiðslur lækki í framtíðinni. Fyrir skattgreiðendur væri heldur ekki ónýtt að horfið yrði aftur til fortíðar með skattkerfið, þar sem;  tekjuskattur er í einu 23,75% þrepi og meðalútsvar 12,97%,  tryggingagjald er 5,79%,  fjármagnstekjuskattur 10%  tekjuskattur lögaðila 15%  og neðra þrep virðisaukaskatts er 7%. Þannig má lengi telja. Vinstri stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna vann ötullega að því að umbylta skattkerfinu og leggja þyngri byrðar á fyrirtæki en ekki síður á herðar millistétt- arinnar og eldri borgara. Á ár- unum 2008 til 2015 voru alls gerðar 176 breytingar á skattkerfinu. Meginþorri breytinganna voru skattahækkanir eða 132 á meðan 44 skattalækkanir voru gerðar og þær voru flestar á árinu 2014, í tíð ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Undir forystu Bjarna Benedikts- sonar, formanns Sjálfstæðisflokks- ins og fjármálaráðherra, hafa verið gerðar róttækar breytingar á ýms- um sköttum og gjöldum. Þar skiptir mestu að almenn vörugjöld hafa verið afnumin og tollar af fatnaði einnig. Kerfisbreytingarnar auka samkeppni í verslun og ákvörðun H&M, sænska verslunarrisans, um að opna verslanir hér á landi er staðfesting þesshvernig ríkið getur stuðlað að aukinni samkeppni með lægri álögum. Að þessu leyti stönd- um við betur að vígi en 2007. Eftir Óla Björn Kárason » Auðvitað er ekki allt eftirsóknarvert frá árinu 2007, en það er langt í frá að allt hafi verið slæmt. Það er a.m.k. gott að gera ríkis- sjóð skuldlausan. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Útgjöld ríkisins: Aftur til ársins 2007 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Fljúgandi gleði Þau lífga heldur betur upp á miðbæjarlífið krakkarnir sem sjá um götuleikhús Hins hússins, en hlutverk þeirra er að sjá um ýmsar leikrænar uppákomur á götum og torgum. Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.