Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 13.07.2016, Qupperneq 25
snerust upp í andhverfu sína. Við hittumst síðast fyrir ein- hverjum mánuðum. Við ræddum saman og kvöddumst. Löngu liðnar sumarnætur inn við sund- in blá vöknuðu til lífs. Ég skynj- aði að endalokin voru ekki langt undan. Kannski gat Hannes tek- ið undir orð Jökuls Bárðarsonar, móðurbróður Grettis Ásmunds- sonar þegar hann sagði um frænda sinn: „Sitt er hvað, gæfa eða gjörvuleikur“. Ég vil votta öllum aðstandendum Hannesar innilega samúð. Óttar Guðmundsson. Hannes J. S. skólabróðir okk- ar var fyrirferðarmikill, það vissu allir hvar hann fór, honum fylgdu hlátrasköll, húmor og notaleg nærvera. Við gamlir bekkjarfélagar hans úr fyrstu Náttúrufræðideild Menntaskól- ans í Reykjavík minnumst hans sem hugmyndaríks námsmanns sem með mikilli mælsku og orð- heppni kunni að heilla kennara jafnt sem okkur samnemendur sína. Hann hafði sterkar skoðanir á þjóðfélagsmálum, var málefna- legur í allri umræðu, fastur fyrir og aldrei ósanngjarn. Eftir menntaskóla skildu leið- ir. Hópurinn tvístraðist og marg- ir hafa dvalið langdvölum er- lendis, þeirra á meðal Hannes. Síðasta áratug höfum við bekkj- arfélagarnir aftur tekið upp þráðinn en í síðustu skiptin hef- ur Hannes vantað í hópinn sök- um heilsubrests. Á þessum sam- verustundum höfum við minnst og saknað gamals félaga sem með nærveru sinni kom ætíð gleðinni og umræðunni á annað og æðra stig. Við sendum fjölskyldu hans og vinum dýpstu samúðarkveðj- ur. Megi góðar minningar lifa. Fyrir hönd bekkjarsystkina 6 – U, MR 1971, Ragnheiður Haraldsdóttir og Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 2016 Atvinnuhúsnæði Iðnaðarhúsnæði að Lækjarmel 12, 116 Reykjavík til sölu. Stórglæsilegt 131 fm. Stórar innkeyrsludyr og mjög mikil lofthæð. Teikningar fylgja fyrir 70 fm millilofti. Verð 29,9 millj. Jón Egilsson, 896-3677 – 568-3737. Iðnaðarhúsnæði að Lækjarmel 12, 116 Reykjavík til sölu. Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opið hús, spilað vist og brids kl. 13-16. Æfing í pútti og úti-boccía í og við púttvöllinn, kl. 10.30-11.30. Garðabær Brids og bútasaumur kl. 13, heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30, meðlæti selt með síðdegiskaffinu frá kl. 14-15.50. Gullsmári Ganga kl. 10, myndlist kl. 9, kvennabrids kl. 13. Hár- greiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum, allir velkomnir! Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl. 10.30, matur kl. 11.30. Létt gönguferð um nágrennið kl. 14, kaffi kl. 14.30, minnum á púttvöllinn okkar sem er opinn á opnunartíma stöðvarinnar. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtals- tími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40. Upplýsingar í síma 4112760. Seltjarnarnes Tölvunámskeið í Valhúsaskóla kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Ganga frá Skólabraut kl. 13.30. Vatnsleikfimi í sund- laug Seltjarnarness kl. 18.30. Samkoma kl. 20 í Kristni- boðssalnum. Ræðumaður Ólafur Jóhannsson. Allir vel- komnir. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Smáauglýsingar 569 1100 Bækur Bækur til sölu Viðeyjarbiblía 1841, Reykjavíkur- biblía 1859, Fornyrði Lögbókar, Kormákssaga 1832, óbundin, óskorin, Krossaætt 1-2, Dala- menn 1-3, Kollsvíkurætt, Ættir Austfirðinga 1- 9, MA stúdentar 1-5, Kennaratal 1-5, Manntal 1801, 1845, Nokkrar Árnesinga- ættir, Fremrahálsætt 1-2, Ættir Síðupresta, Saga Hraunhverfis á Eyrarbakka, Stokkseyringasaga, Bólstaðir og búendur í Stokks- eyrarhreppi, Deildartunguætt 1-2, Lögreglan á Íslandi, Svardælingar 1-2. Upplýsingar í síma 898 9475. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is IðnaðarmennÝmislegt Útsala - Útsala - Útsala Tékkneskar og slóvakískar kristals- ljósakrónur. Slóvak Kristall, Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur s. 5444333 og 8201071 Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Útsala - Útsala - Útsala 4 stk 275/70 R 22.5 DR 1 kr. 48306 + vsk 1 stk 295/80 R 22.5 DR 1 kr. 48306 + vsk 2 stk 13 R 22.5 FM 2 kr. kr. 48306 + vsk 4 stk 245/70 R 19.5 MP 460 kr. 31177 + VSK Fleiri stærðir. Kaldasel ehf. Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur s. 5444333 og 8201071 Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald Félagslíf Raðauglýsingar Smáauglýsingar sími 569 1100 Samferðamenn okkar geta haft mikilvæg áhrif á samtíðina. Þorvald- ur Veigar Guð- mundsson læknir var slíkur maður. Hann var mikilsvirtur forustumaður í sinni sérgrein, meinefnafræði, vísindamaður og kennari. Hann naut trausts og virðingar koll- ega sinna og var meðal annars formaður Læknafélags Reykja- víkur og síðar Íslands. Ég vil þó sérstaklega minnast þeirra sam- skipta sem við áttum á þroska- ferli mínum sem læknir og fræðimaður. Þannig var að ég sóttist eftir Þorvaldur Veigar Guðmundsson ✝ ÞorvaldurVeigar fæddist 15. júlí 1930. Hann lést 20. júní 2016. Útför hans fór fram 6. júlí 2016. því árið 1973 að fá aðstoðarlæknis- stöðu til undirbún- ings framhalds- náms í lyflækn- ingum. Einhver töf var á að það gæti orðið. Þórir Helga- son, afar snjall og hugmyndaríkur lyf- læknir, veitti því athygli að ég var á lausu. Hann hafði velt því fyrir sér hvort nýtt lyf sem lækkar kólesteról í blóði líkamans gæti bætt nýrnastarf- semi sykursýkissjúklinga. Hug- myndin tengdist þeirri stað- reynd að útfellingar sem stundum myndast í augnbotn- um sykursýkissjúklinga virtust hverfa fyrir áhrif þessa lyfs. Fannst honum upplagt að ég tæki að mér að kanna málið og það varð úr að haft var sam- band við Veigar sem tók vel í að rannsaka þetta. Var ég því ráð- inn á rannsóknadeild Landspít- alans í meinefnafræði og vann þar m.a. að þessu verkefni um ellefu mánaða skeið. Samskipti okkar Veigars voru náin þennan tíma og kynntist ég vel hversu fróður hann var og síðast en ekki síst hversu mikið innsæi og hugmyndaflug hann hafði. Rannsóknarverkefnið bar okkur í óvæntar áttir en ekki tókst okkur að sýna fram á áhrif lyfs- ins á nýrnastarfsemina. Það sem við töldum okkur aftur á mótisjá voru áhrif þess á að auka útbreiðslu stærri sam- einda í líkamanum þannig að þær dreifðust í stærra rými. Það hefði ákveðin þynningar- áhrif sem getur skýrt að minnsta kosti að hluta blóðfitu- lækkandi áhrif og líka hitt að útfellingar í augnbotnum geta hreinsast burt. Líkleg skýring er að svokallað millifrumuefni sé eins og möskvar sem gisna vegna áhrifa lyfsins og gerir sameindum auðveldara að ferðast um það. Að loknu þessu verkefni kom að því að velja framhaldsnám. Af ýmsum ástæðum varð úr að ég valdi smitsjúkdóma sem ýmsir töldu á þeim tíma að heyrðu fortíðinni til og væru ekki lengur mikið vandamál. Það átti eftir að breytast svo um munaði. Ein alvarlegasta drep- sótt sem gengið hefur skall á um það bil sem ég lauk sérnámi í smitsjúkdómum. Í framhalds- náminu lagði ég stund á rann- sóknir á lífefnafræðilegum áhrif- um sýkinga í miðtaugakerfinu og naut ég þar fræðslunnar og þjálfunarinnar sem ég hlaut hjá Veigari. Oft á tíðum hefur hugurinn reikað til þess tíma sem við unn- um saman á rannsóknadeildinni enda er ég ekki í nokkrum vafa um að það var einn besti tíminn í mínu lærdómsferli, þökk sé Veigari. Við Snjólaug kona mín vorum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast Birnu, ynd- islegri eiginkonu Veigars. Ekki fennir yfir þá minningu þótt samskiptin hafi orðið strjál með árunum. Við hjónin sendum Birnu og fjölskyldu hennar okk- ar innilegustu samúðarkveðju vegna fráfalls Veigars. Blessuð sé minning hans. Haraldur Briem. Mig langar með örfáum orðum að minnast samstarfs- konu minnar Sól- veigar Ágústsdótt- ur. Sólveigu kynntist ég fyrst þegar ég var nemandi við Flens- borgarskólann en Sólveig vann lengi á skrifstofu skólans. Síðar Sólveig Ágústsdóttir ✝ Sólveig Ágústs-dóttir fæddist 30. júlí 1938. Hún lést 26. júní 2016. Útför Sólveigar fór fram 6. júlí 2016. hóf ég störf við Flensborg og kynntist Sólveigu betur. Hún kom stundum að sam- starfsverkefni Flensborgar og dansks framhalds- skóla, en sjálf hýsti hún gjarnan hina dönsku kennara sem heimsóttu okk- ur með nemendur sína. Að þessu samstarfi kom ég oft og eitt árið var lagt að mér að taka Sólveigu með sem far- arstjóra í nemendaferð til Dan- merkur, en Sólveig var sleip í dönsku. Ég get viðurkennt það nú að í upphafi hefði ég heldur viljað einhvern sem var nær mér í aldri en þegar til kom reyndist Sólveig frábær í far- arstjórninni og einnig sem ferðafélagi. Hún var harðdugleg og vildi alls ekki láta neitt upp á sig standa. Í þessari ferð tók Sólveig að sér að segja nem- endum Flensborgarskólans frá Krónborgarkastala þar sem m.a. er að finna mikið listaverkasafn og þar var hún á heimavelli. Það var unun að fylgjast með henni segja frá sögu og uppbyggingu málverkanna og krakkarnir störðu opinmynnt á þessa konu sem þau þekktu bara í hlutverki „konunnar á skrifstofunni“ fram að því. Sömu sögu var að segja af fleiri söfnum en það var aug- ljóst að Sólveig hafði mikla þekkingu á myndlist og naut sín í að segja frá. Það var alltaf sérstaklega gaman með Sólveigu í matar- boðum með danska samstarfs- fólkinu því hún hafði skoðanir á öllum málefnum og sagði skemmtilega frá. Að leiðarlokum sendi ég fjöl- skyldu Sólveigar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Viðar Hrafn Steingrímsson. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá það verður dásamleg dýrð handa mér . Dásöm það er, dýrð handa mér, dýrð handa mér, dýrð handa mér, er ég skal fá Jesú auglit að sjá, það verður dýrð, verður dýrð handa mér. Og þegar hann, er mig elskar svo heitt, indælan stað mér á himni’ hefur veitt, svo að hans ásjónu’ ég augum fæ leitt það verður dásamleg dýrð handa mér. Ástvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér, blessaði frelsari, brosið frá þér, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson.) Elsku Sólveig mín, þakka þér fyrir allt og allt. Góða ferð. Þín tengdadóttir, Hrafnhildur Jóna. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Undirskrift | Minning- argreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerf- inu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda mynd- ina á netfangið minn- ing@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.