Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016
Valgerður Bjarnadóttir, þingmað-ur Samfylkingar, gerði það að
umtalsefni á þingi í gær að henni
hefði þótt „sæta tíðindum“ þegar
menntamálaráðherra hefði sagst
ætla að bjóða út nám fyrir lögreglu-
menn á háskólastigi.
Valgerður fann aðþví að Háskóli
Íslands hefði fengið
flest stig hjá mats-
nefnd en samt sem
áður hefði mennta-
málaráðherra
ákveðið að velja Há-
skólann á Akureyri.
Hún sagði að sér
þætti þetta
„hneyksli“ og „und-
arlegt í minnsta
lagi“.
Brynhildur Pétursdóttir, þing-maður Bjartrar framtíðar,
sagðist frábiðja sér slíkan málflutn-
ing. „Mér finnst það viðhorf alveg
hreint með ólíkindum að ef eitthvað
er úti á landi þá hljóti það að vera á
einhvern hátt slakara.“
Brynhildur benti líka á að í svonaeinkunnagjöf hefði Háskóli Ís-
lands alltaf forskot og þá þyrfti að
spyrja hvort ekki ætti að taka með-
vitaða ákvörðun um að hafa allt nám
í HÍ.
Vissulega er engin ástæða til þessá meðan öðrum háskólum er
haldið úti hér á landi, en það sem
skiptir ef til vill meira máli í þessu er
að það er ráðherrans að taka
ákvörðunina.
Allt of algengt er orðið að nefnd-ir, sem enga ábyrgð bera, séu
látnar taka veigamiklar ákvarðanir.
Stundum er því haldið fram að það
sé „faglegt“, en vandséð er hvernig
það getur verið faglegt að slíta í
sundur ákvörðunarvald og ábyrgð.
Valgerður
Bjarnadóttir
Ákvörðunum þarf
að fylgja ábyrgð
STAKSTEINAR
Brynhildur
Pétursdóttir
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 483 4700 / fax: +354 483 4775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar
tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður á Hótel Örk
Á Hótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.
Veður víða um heim 24.8., kl. 18.00
Reykjavík 15 léttskýjað
Bolungarvík 14 skýjað
Akureyri 10 alskýjað
Nuuk 13 léttskýjað
Þórshöfn 14 skýjað
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 24 heiðskírt
Helsinki 18 léttskýjað
Lúxemborg 32 heiðskírt
Brussel 31 heiðskírt
Dublin 18 léttskýjað
Glasgow 18 skýjað
London 32 heiðskírt
París 35 heiðskírt
Amsterdam 31 heiðskírt
Hamborg 29 heiðskírt
Berlín 28 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 18 skúrir
Algarve 28 heiðskírt
Madríd 34 heiðskírt
Barcelona 31 heiðskírt
Mallorca 31 léttskýjað
Róm 28 léttskýjað
Aþena 28 skýjað
Winnipeg 19 heiðskírt
Montreal 25 skýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 22 rigning
Orlando 28 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:52 21:09
ÍSAFJÖRÐUR 5:47 21:23
SIGLUFJÖRÐUR 5:30 21:07
DJÚPIVOGUR 5:19 20:41
Miðstjórn Alþýðusambands Íslands
samþykkti í gær ályktun þar sem
nýlegum úrskurði kjararáðs sem
veitti embættismönnum og for-
stöðumönnum ríkisstofnana mikla
launahækkun var mótmælt. ,,Með
þegjandi samþykki sínu gefa stjórn-
völd launafólki langt nef og grafa
undan viðræðum aðila vinnumark-
aðarins um nýtt samningamódel sem
byggir á stöðugleika og öruggri
kaupmáttaraukningu,“ segir m.a. í
ályktuninni.
Í henni segir ennfremur að ekki
komi til greina að tekjuhæstu hópar
samfélagsins fái sérstaka meðferð
og deili ekki kjörum með almenningi
í landinu. Félagsmenn sætti sig ekki
við að skapa jarðveg fyrir stöðug-
leika og aukna verðmætasköpun
með ábyrgum launahækkunum til
þess að hátekjuhópar geti á einu
bretti fengið hækkanir sem nema
mánaðarlaunum margra félaga ASÍ.
„Það er löngu tímabært að þeir
sem telja sig vera yfirstétt þessa
lands geri sér grein fyrir því að nú
þurfa þeir eins og aðrir að taka af-
stöðu til þess hvort þeir vilja byggja
hér upp samfélag þar sem jafnræði
ríkir í launamálum.“
ASÍ ósátt
við miklar
hækkanir
Óásættanlegur
úrskurður kjararáðs
1.100 börn eru á biðlista eftir plássi á
frístundaheimilum borgarinnar, en
skólastarf hófst í vikunni. Á frí-
stundaheimilum dvelja 6-9 ára börn
að lokinni kennslu á daginn. Ástæðu
biðlistanna má rekja til ráðninga á
starfsfólki á frístundaheimilin. Í síð-
ustu viku átti eftir að ráða 261
starfsmann í 127 stöðugildi. Í gær,
miðvikudag, átti enn eftir að ráða
185 starfsmenn í 90 stöðugildi, að
sögn Sigrúnar Björnsdóttur, upplýs-
ingafulltrúa hjá Reykjavíkurborg.
Frá því í skólabyrjun hefur um-
sóknum um frístundaheimili fjölgað
um 400 og hefur það áhrif á þörf fyr-
ir starfsfólk. Um 3.240 börn eru
komin inn á frístundaheimilin en um
1.100 eru á biðlista. Dæmi eru um að
foreldrar sem hafi sótt um pláss á
frístundaheimili í febrúar fyrir börn
sín séu enn á biðlista. Ástæðan að
mati Sigrúnar getur verið sú að börn
í 1. bekk grunnskólanna hafa for-
gang um innritun þar til frístunda-
heimilin verða fullmönnuð. Sigrún
býst við að því verði lokið um miðjan
september.
„Flestir starfsmenn frístunda-
heimilanna eru háskólanemar sem
eru að skipuleggja nám sitt og störf í
ljósi stundatöflu og því má búast við
að staðan verði betri í næstu viku.
Jafnan er komið jafnvægi á mönnun
frístundaheimilanna um miðjan
september.“ erla@mbl.is
1.100 börn eru á biðlista í borginni
Um 185 starfsmenn vantar í 90 stöðugildi á frístundaheimili í borginni
Morgunblaðið/Ómar
Frístund 3.240 börn eru með pláss.