Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 14

Morgunblaðið - 25.08.2016, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 SMYRJA SÍMJÚK Á BRAUÐIÐ Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Stjórnmálaflokkarnir munu á næstunni velja frambjóðendur á lista fyrir komandi alþingiskosn- ingar. Morgunblaðið mun birta fréttir af þeim sem gefa kost á sér. Prófkjör 2016 Herdís Anna Þorvaldsdóttir framkvæmda- stjóri gefur kost á sér í 5. sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík. Herdís er m.a. fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn hverfisráðs Grafarvogs, varamaður í ráðum borgarinnar og formaður efnahags- og viðskiptanefndar flokksins. Í tilkynningu segir Her- dís m.a. að hún leggi áherslu á efna- hags- og menntamál, ferðaþjón- ustu, samgöngur og umhverfismál. Framboð í 5. sæti Ásgeir Einarsson stjórnmálafræð- ingur sækist eftir 4. sætinu í próf- kjöri Sjálfstæðis- flokksins í Suð- vesturkjördæmi. Í tilkynningu Ás- geirs segir m.a. hann vilji breyta landbúnaðarkerfinu, berjast fyrir því að auðvelda ungu fólki að kaupa sína fyrstu húseign, einfalda skatt- kerfið og auka verslunarfrelsi al- mennings, m.a. með því að afnema einokunarsölu ríkisins á áfengi. Komið sé að því að ungt fólk stígi fram á sjónarsviðið í stjórnmálum. Framboð í 4. sæti Sigurður Hólm Gunnarsson, iðjuþjálfi og for- stöðumaður hjá Barnavernd Reykjavíkur, býður sig fram í 2.-3. sæti í próf- kjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjavík. Sigurður segist í tilkynningu vilja stuðla að því að jafnaðar- mannaflokkur Íslands tali af festu og heilum hug fyrir jafnaðarstefn- unni. Kjósa eigi um aðild að Evr- ópusambandinu og berjast fyrir hagsmunum venjulegs fólks. Framboð í 2.-3. sæti Sumarið 1897 lagði Guðbjörg Þor- leifsdóttir, húsmóðir í Múlakoti í Fljótshlíð, grunn að trjá- og blómagarði við bæinn. Garðurinn varð síðan landsfrægur og fór fólk í Múlakot til að njóta hans, meðal annars í rökkri síðsumars þegar skrautljós voru hengd í trén. Nú, 119 árum síðar, verður unnt að njóta garðsins að nýju föstu- dagskvöldið 26. ágúst þegar Vina- félag gamla bæjarins í Múlakoti efnir þar til samkomu klukkan 20 til að fagna endurreisn garðsins. Frá því fyrir ári hafa nemendur Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi tvisvar sinnum komið í Múlakot og tekið til hendi við endurreisn garðs Guðbjargar. Hér er um einstakt kennsluverkefni að ræða enda mjög fáir garðar í upp- runalegu formi til í landinu. Guðríður Helgadóttir, forstöðu- maður starfs- og endurmennt- unardeildar Landbúnaðarháskól- ans, hefur leitt endurreisnar- starfið í Múlakotsgarðinum og mun skýra frá því á föstudags- kvöldið. Ásgrímur fann Paradís Pétur Ármannsson arkitekt mun lýsa framkvæmdum við gamla bæ- inn, en endurreisn hans hófst haustið 2014. Verður gestastofa bæjarins opin og má þar sjá ýmsa muni og minjar sem tengjast gisti- og veitingarekstri í Múlakoti. Staðurinn var vinsæll meðal listamanna og þar dvaldist Ás- grímur Jónsson listmálari oft og málaði sumar sinna fegurstu mynda. Í apríl 1914 efndi hann til sýningar í Reykjavík og í umsögn um hana sagði í Morgunblaðinu að af verkunum mætti ráða að Ás- grímur hefði sannarlega fundið Paradís á jarðríki í Múlakoti. Kaffi verður selt í garðinum undir mislitum rafurljósum eins og frægt var á árunum áður. Ljós- in voru sett upp sumarið 1929, en þá var heimarafstöð komin í notk- un. Ólafur Túbals, listmálari í Múlakoti, hafði kynnst ljósunum í Tívolí í Kaupmannahöfn í náms- ferð sinni þangað og hrifist af. Ljósakvöld í Múla- kotsgarði í Fljótshlíð  Landsfrægur garður endurreistur og mun ljóma á ný Frumkvöðull Lágmynd eftir Einar Jónsson af Guð- björgu Þorleifsdóttur sem gerði garðinn árið 1897. Listaverk Renningur til kynningar á útgáfu Íslendingasagnanna á dönsku með teikningum Johannesar Larsen, dansks listamanns sem dvaldi í Múlakoti. Gróður Hluti garðsins í Múlakoti. Hann er einn fárra upprunalegra garða og var vinsæll meðal listamanna. „Það er alveg ljóst að fleira fólk kall- ar á fleiri búsetuúrræði,“ segir Þór- hildur Ósk Hagalín, upplýsinga- fulltrúi Útlendingastofnunar, og bendir á að húsnæðis- og þjónustu- úrræði stofnunarinnar og samstarfs- aðila hennar nálgist nú það að vera fullnýtt. Er þetta vegna þess mikla fjölda fólks sem óskað hefur eftir al- þjóðlegri vernd hér á landi undan- farna mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá Út- lendingastofnun hefur skyndileg aukning í umsóknum undanfarna daga gert það að verkum að nauð- synlegt er að leita frekari úrræða og aðstöðu. Er allt kapp lagt á að tryggja fullnægjandi aðstæður í því húsnæði sem fyrir er og að þjónusta sé viðunandi. „Á grundvelli sérstakra þjónustu- samninga við Útlendingastofnun hafa Reykjavíkurborg, Hafnarfjarð- arbær og Reykjanesbær sinnt þjón- ustu- og húsnæðismálum við að jafn- aði um 180 til 190 umsækjendur um alþjóðlega vernd á mánuði. Útlend- ingastofnun hefur undanfarna mán- uði haft svipaðan fjölda í húsnæði og þjónustu eða um 170 umsækjendur að jafnaði,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni. Árið 2016 er metár Útlendingastofnun og innanrík- isráðuneytið leita nú, í samvinnu við þau sveitarfélög sem þegar hafa með höndum þessa þjónustu, leiða til að útvega fleiri húsnæðis- og þjón- ustuúrræði. „Á fyrstu sjö mánuðum ársins sóttu 316 manns um alþjóðlega vernd hér á landi og það sem af er ágústmánuði hafa 45 sótt um, þar af um 20 manns sl. fimm daga. Árið 2016 er því þegar orðið metár hvað varðar fjölda umsókna um vernd en allt árið í fyrra voru umsækjendur 354,“ segir í tilkynningu, en um 26% umsækjenda á fyrstu sjö mánuðum ársins komu frá Albaníu. Þá eru rík- isborgarar ríkja Balkanskagans 42% umsækjenda. Fjölga þarf búsetu- úrræðum  Húsnæðis- og þjónustuúrræði nálgast þolmörk Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.