Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 17

Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 17
að þrengja að og loka Miðjarðar- hafinu. Ein afleiðing þessara skorpu- hreyfinga eru jarðskjálftar,“ segir hann. Alpafjöllin eru ein af afleiðingum árekstrar Afríkuflekans og Evrasíu- flekans, auk þeirrar fellingar í jarð- skorpunni sem myndar Ítalíuskag- ann. Skæðir skjálftar algengir Jarðskjálftinn mældist 6,2 stig og varð á 10 km dýpi, að sögn banda- rísku jarðfræðistofnunarinnar USGS. Jarðvísindastofnun Ítalíu sagði hins vegar að skjálftinn hefði verið 6,0 stig og orðið á um fjögurra kílómetra dýpi. „Jarðskjálftar eru nokkuð algengir í þessum hluta Mið-Ítalíu,“ hefur AFP eftir Bill McGuire, heiðurspró- fessor í jarðvísindum við University College í London (UCL). Hann segir að jarðskjálftarnir á þessum slóðum hafi oft verið grunnir og valdið miklu tjóni. Skjálftinn í fyrrinótt var sá öflug- asti á Ítalíu frá árinu 2009 þegar 309 manns létu lífið í borginni L’Aquila og nágrenni. Um 60.000 manns misstu heimili sitt í skjálftanum sem mældist 6,3 stig. Um 95.000 manns fórust í mann- skæðasta jarðskjálftanum í sögu Ítal- íu 28. desember 1908 í Reggio di Ca- labria og á Sikiley. Næst- mannskæðasti skjálftinn varð í bænum Avezzano í Abruzzo-héraði 13. janúar 1915 þegar 32.000 manns létu lífið. AFP Eyðilegging Björgunarmenn skoða rústir í bænum Amatrice. FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Tyrkneskir skriðdrekar fóru inn fyr- ir landamæri Sýrlands í gær til að taka þátt í umfangsmestu hernaðar- aðgerðum Tyrkja til þessa í grann- ríkinu. Tyrkneskar orrustuþotur gerðu árásir á liðsmenn samtakanna Ríki íslams, ISIS, með það að mark- miði að hrekja þá frá bænum Ja- rabulus, skammt frá landamærunum að Tyrklandi. Bandarískar herþotur gerðu einnig árásir á íslamistana til að aðstoða Tyrki, að sögn bandarísks embættismanns. Tyrknesk sérsveit var send á landamærasvæðið til að undirbúa hugsanlegar árásir landhers Tyrk- lands. Sýrlenskir uppreisnarmenn, sem njóta stuðnings Tyrkja, fóru einnig yfir landamærin til Sýrlands og hermt var að þeir hefðu ráðist inn í Jarabulus í gær. Vilja stöðva Kúrda Tyrkir hófu hernaðinn eftir að liðsmenn Ríkis íslams skutu sprengjum frá Jarabulus á tyrk- neska landamærabæinn Karkamis. Samtökin eru einnig talin hafa staðið fyrir mannskæðum hryðjuverkum í Tyrklandi. Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, lagði þó áherslu á að hernaður Tyrkja í Sýrlandi beindist einnig að sýrlenskum Kúrdum sem hafa sótt að íslamistunum í Jarabu- lus. Tyrkir gerðu sprengjuárásir á liðsmenn Kúrda sunnan við bæinn. Tyrkir einsetja sér að koma í veg fyrir að Kúrdar nái Jarabulus á sitt vald ef vígamenn Ríkis íslams hrökklast þaðan. Tyrkir óttast að ef Kúrdar leggja landamærasvæðið undir sig geti það orðið vatn á myllu kúrdískra aðskilnaðarsinna í Tyrk- landi. Sótt að ISIS og Kúrdum Átök í Sýrlandi Aleppo 10 km Jarabulus Karkamis Árásir á liðsmenn Ríkis íslams Varð fyrir sprengjuárásum Manbij Árásir á vígi Kúrda TYRKLAND TYRKLAND JÓRD. ÍRAK LÍ B. DAMASKUS SÝRLAND  Tyrkir óttast að Kúrdar nái landamærasvæði á sitt vald Fátækur sjómaður á Filippseyjum fann perlu, sem talin er vera sú stærsta í heimi, en faldi hana und- ir rúminu sínu í áratug án þess að gera sér grein fyrir verðmæti hennar. Maðurinn fann perluna í risastórum skelfiski sem festist í akkeri hans þegar hann beið eftir því að óveðri slotaði, og hann ákvað að geyma hana sem verndargrip. Perlan er 34 kíló að þyngd, 30x60 cm á stærð, og talið er að verðmæti hennar nemi tug- um milljóna Bandaríkjadala, eða milljörðum króna. Maðurinn áttaði sig ekki á verðmætinu fyrr en frænka hans benti honum á það þegar hann bað hana að geyma perluna fyrir sig. FILIPPSEYJAR Geymdi stærstu perlu heims undir rúminu í tíu ár AFP Dýrmæt Perlan er nú til sýnis í ferða- þjónustumiðstöð á eyjunni Palawan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.