Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 23

Morgunblaðið - 25.08.2016, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 ✝ Geir RagnarGíslason fædd- ist 23. júlí 1925 í Galtarvík á Hval- fjarðarströnd. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Grund 17. ágúst 2016. Foreldar hans voru Gísli Jónsson og Guðborg Ingi- mundardóttir. Geir missti foreldra sína ungur og var tekinn í fóstur af föðursystur sinni Sigríði og Bjarna eig- inmanni hennar, ásamt elsta bróður sínum. Systkini hans voru Jón, f. 1921, Benedikt, f. 1922, Inga, f. 1923, Stefán, f. 1927 og Gísley, f. 1929. Stefán er eina eftirlifandi systkinið. Geir giftist Jóhönnu G. Guð- laugsdóttur árið 1952, þau slitu Harpa Júlía, sonur hennar er Sölvi Freyr. Sonur Hönnu Mar- grétar og Arnbergs er Oddur Elí. 4) Brynja gift Sigurði Við- arssyni, þeirra börn eru Elva Rut og Viðar. Sambýliskona Geirs var Stein- unn Þorsteinsdóttir, f. 1934, hún lést í nóvember 2014. Hennar börn eru Arnlín, Ólafur, Elín, Guðrún, Þorsteinn og Ágúst. Geir ólst upp að Gerði á Hval- fjarðarströnd frá fjögurra ára aldri en flutti til Reykjavíkur 19 ára, tók bílpróf 21. árs og hóf leigubílaakstur 2. janúar 1947 á BSR. Hann hóf störf hjá Slökkvi- liðinu í Reykjavík 1949, var þar í fullu starfi í tíu ár og keyrði leigubíl jafnframt, hann starfaði áfram með varaliði slökkviliðs- ins þar til það var lagt niður. Ár- ið 1965 hóf hann að keyra fyrir Sjúkrahúsið á Akranesi með leigubílaakstrinum þar til hann náði 80 ára aldri. Eftir að Stein- unn lést dvaldi hann á hjúkr- unarheimilinu Grund. Útför Geirs fer fram frá Bú- staðakirkju í dag, 25. ágúst 2016, klukkan 13. samvistum. Börn þeirra eru: 1) Gísli Guðlaugur, f. 1952, giftur Gurli Geirs- son. Þeirra sonur er Albert Þór. 2) Svala, f. 1953, gift Vilhjálmi Hafberg. Þeirra börn eru: a) Geir Már, giftur Maríu, börn þeirra Manúel Breki og Andrea Sól. b) Ragnar Már giftur Ástu Júlíu, börn þeirra Nína Lovísa og Vil- hjálmur Eggert. c) Elín Ósk í sambúð með Sveini Antoni, börn þeirra Árni Dagur og Ólafur Andri. 3) Hanna Margrét, f. 1957, gift Arnbergi Þorvalds- syni. Hennar börn eru: a) Pétur Fannar, giftur Margréti, börn þeirra Freyja Ísold, Fanndís Sunna og Theódór Jónas, b) Ástkær faðir okkar, Geir Ragnar Gíslason, er látinn 91 árs að aldri. Hann var saddur lífdaga sem eðlilegt er þegar lík- ami og hugur eru farin að starfa illa. Áður en hann varð mjög veikur var hann hamingjusamur maður. Hann upplifði líf sitt mjög farsælt og sagði okkur í hvert sinn sem hann hitti okkur að hann væri ríkur maður. Ekki af veraldlegum eignum heldur ætti hann yndisleg börn sem hugsuðu svo vel um hann og dásamlega fjölskyldu. En líf hans var samt ekki neinn dans á rósum, hann varð munaðarlaus mjög ungur og meðan hugur hans starfaði eðli- lega talaði hann mikið um for- eldra sína og þá sérstaklega móður sína. Hann ólst upp með Jóni bróður sínum en hinum systkinum sínum kynntist hann ekki fyrr en á fullorðinsárum. Ættingjar hans sem ólu hann upp reyndust honum mjög vel alla tíð og talaði hann oft um hversu heppinn hann hefði verið að alast upp hjá þessu úrvals- fólki í Gerði. Hann bar mikla tryggð til sveitarinnar sinnar og við systkinin fórum með hann í skemmtiferðir þangað á hverju sumri þar til nú í sumar. Pabbi var mjög vinnusamur, hann var leigubílstjóri og slökkviliðsmaður og vann fram að 80 ára aldri. Ég þekki engan sem vann svona mikið, hann tók fáa frídaga, sjaldan sumarfrí og oft vann hann jafnt daga sem nætur. Hann byggði sér draumahúsið sitt í Njörvasundi í Reykjavík en seldi það skömmu áður en hjónabandi þeirra móð- ur okkar lauk. Hann sá mikið eftir húsinu og keyrði oft þar framhjá. Eftir að við börnin hans fór- um að búa var hann duglegur að skjótast við í kaffi hjá okkur og áttum við mikinn félagsskap við hann. Hann var skemmtilegur og ræðinn og sagði margar ógleymanlegar sögur úr sveit- inni og vinnunni. Hann var mjög bóngóður og alltaf til í að hjálpa okkur; dytta að, mála eða skutla okkur. Hann var mjög húslegur miðað við sína kynslóð, hann þreif og eld- aði mat alla tíð og verslaði inn til heimilisins. Pabbi var áhugamaður um spíritisma og fór á marga mið- ilsfundi í gegnum ævina og hann kveið ekki móttökunum í Sum- arlandinu. Hann fór fljótlega að búa með Steinunni Þorsteinsdóttur eftir skilnaðinn við móður okkar og varði sambúð þeirra hátt í 40 ár. Steinunn lést 2014. Eftir að hún missti heilsuna fyrir nokkrum árum sinnti pabbi henni af stakri alúð og kærleika. Þegar hún féll frá var hann svo hepp- inn að fá varanlegt heimili á hjúkrunarheimilinu Grund, þar sem hugsað var um hann af ein- stakri umhyggju og fag- mennsku og alltaf brugðist við breytingum á heilsufari hans með kærleika og réttum úrræð- um. Við fjölskylda hans áttum dásamlegan tíma með honum og ekki síst eftir að hann flutti á Grund, hann var vel liðinn þar og við vorum alltaf velkomin og þrátt fyrir háan aldur og skerta heilsu hans áttum við sannkall- aðar gæðastundir með honum allt fram á síðasta dag. Við kveðjum hann með kær- leika og þakklæti í hjarta. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Gísli, Svala, Hanna M. og Brynja. Geir Ragnar Gíslason Mig langar til að minnast Eðvarðs Bjarnasonar, ömmubróður míns, með nokkrum orð- um. Herborg amma mín var með mynd uppi á vegg af gullfallegum brúðhjónum, það voru mínar fyrstu minningar um Ebba, eins og hann var ávallt kallaður, og Borghildi eiginkonu hans eða Boggu. Amma var afskaplega stolt af þessum bróður sínum og hamp- aði þeim hjónum mikið. Þegar ég kom fyrst til Ebba og Boggu höfðu þau nýlega ættleitt Jónu Björgu og var Ebbi að gefa henni mjólk með skeið þar sem hún neitaði að taka pela, þetta var ákaflega stoltur faðir sem af natni og þolinmæði annaðist sitt fyrsta barn þá 55 ára að aldri. Ekki létu þau þar við sitja því nokkrum árum síðar ættleiddu þau Gunnar Friðrik. Þegar minnst var á Ebba fylgdi nafn Boggu með og var gaman að hitta þau og eiga við þau spjall enda komu þau ávallt fram við fólk sem jafningja, bæði unga og aldna. Eftir að við fjölskyldan flutt- um suður höfum við verið í góðu sambandi og útskriftir, afmæli og fleiri tilefni hluti af þeim sam- verustundum. Ebbi var mjög frændrækinn og þar hefur Bogga ekki heldur legið á liði sínu. Gott dæmi um frændrækni þeirra var þegar við Hildur dóttir mín útskrifuðumst úr námi á Akureyri og héldum þar útskriftarveislu, þá birtust þau Ebbi og Bogga öllum að óvörum til að gleðjast með okkur Eðvarð Bjarnason ✝ EðvarðBjarnason fæddist 14. janúar 1926. Hann lést 12. ágúst 2016. Útför Eðvarðs fór fram 23. ágúst 2016. á þessum tímamót- um. Elsku Bogga, Jóna Björg, Gunnar Friðrik og fjölskyld- ur, innilegar samúð- arkveðjur. Að hryggjast og gleðj- ast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast. Það er lífsins saga. (Páll J. Árdal) Stefanía Finnbogadóttir og fjölskylda. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kær móðurbróðir okkar, Eð- varð Bjarnason, eða bara Ebbi frændi eins og við kölluðum hann alltaf, er fallinn frá. Ebbi var einstaklega tryggur sínu fólki og vandaður á allan hátt. Hann var góður frændi sem við minnumst frá æskuárum okk- ar þegar við dvöldum á sumrin hjá ömmu og afa í Hlíð á Eski- firði, þegar hann kom heim til foreldra okkar og í sumarferða- lög til okkar með sinni fjölskyldu og við til þeirra. Hafi hann ævarandi þakkir fyrir alla vináttuna sem hann sýndi okkur systkinunum og okk- ar fjölskyldum. Það er svo margt að minnast á frá morgni æsku ljósum, er vorið hló við barnsins brá og bjó sig skarti’af rósum. Við ættum geta eina nátt vorn anda látið dreyma, um dalinn ljúfa’ í austurátt, þar átti mamma heima. Þótt löngu séu liðnir hjá þeir ljúfu, fögru morgnar, þá lifnar yfir öldungsbrá er óma raddir fornar. Hver endurminning er svo hlý að yljar köldu hjarta. Hver saga forn er saga ný, um sólskinsdaga bjarta. (Einar E. Sæmundsen) Við sendum Borghildi og börn- unum innilegar samúðarkveðjur. Birna Gunnhildur, Hjördís, Hjörtur, Ingveldur, Pálína, Steinn Björgvin og fjölskyldur. Þeim fækkar skólafélögunum úr rafmagnsdeild Vélskóla Ís- lands í Reykjavík sem námu þar framhald í rafmagnsfræðum árin 1954-1956. Horfinn er frá okkur Eðvarð Bjarnason rafmagnseftirlitsmað- ur hjá Rafmagnsveitu Reykjavík- ur,en hann var einn af tólf fé- lögum sem hófu þar nám undir stjórn Ingvars V. Ingvarssonar sem seinna var skólastjóri Tækniskóla Íslands þegar hann var stofnaður 1964. Eðvarð var eins og við flestir mjög áhuga- samur um meira nám í rafmagns- fræðum heldur en Iðnskólarnir gátu veitt nemendum á þessum tíma. Þessi hópur, sem lauk námi sem rafiðnfræðingar, kom víða við í þjóðfélaginu, vann við virkj- anir, rafveitur og stundaði sjálf- stæðan atvinnurekstur. Milli okkar myndaðist mjög góð vinátta og samheldni sem styrktist mjög þegar menn fóru að festa ráð sitt og eiginkonur komu á vettvang. Hópurinn dreifðist, sumir fóru í framhaldsnám erlendis, en lengi reyndum við að hittast og gleðj- ast saman með eiginkonum okkar sem náðu mjög vel saman. Nú er við kveðjum Eðvarð er ljúft að minnast heimsókna á heimili þeirra Borghildar þar sem hópurinn hittist nokkrum sinnum til að njóta góðra veitinga og samveru og rifja upp minning- ar frá skólaárunum. Við þökkum langa vináttu og vottum Borghildi og ættingjum innilega samúð við andlát og út- för Eðvarðs Bjarnasonar. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd skólafélaganna, Sverrir Sveinsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horn- inu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA FINNBOGADÓTTIR bóndi, Neðri-Presthúsum, lést á heimili sínu fimmtudaginn 11. ágúst. Útförin fer fram frá Reyniskirkju laugardaginn 27. ágúst klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, . Kristín Einarsdóttir Sigurjón Rútsson Elísa Berglind Adolfsdóttir Klemens Árni Einarsson Heiða Dís Einarsdóttir Snorri Snorrason Signý Einarsdóttir Flosi Arnórsson Haukur Einarsson Sóley Rut Ísleifsdóttir og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, UNNUR SIGURSTEINSDÓTTIR, síðast til heimilis að Grænumörk 2, Selfossi, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, hinn 20. ágúst. Útförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 26. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimerssamtökin. . Jón B. Stefánsson, Ásdís J. Rafnar, Gísli Stefánsson, Guðrún Björnsdóttir, Sigmundur Stefánsson, Ingileif Auðunsdóttir, Dóra Sjöfn Stefánsdóttir, Óskar Jónsson, Anna Björg Stefánsdóttir, Bergur T. Sigurjónsson, Gissur Jensen og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ÓSK SÓLRÚN KRISTINSDÓTTIR frá Bræðraborg í Höfnum, til heimilis að Aðalgötu 5, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 15. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á skilunardeild Landspítalans. . Guðmundur Brynjólfsson, Lilja Dögg Bjarnadóttir, Ólafur Ingólfsson, Jóhanna Guðmundsd. Sells, William Sells, Hildur Guðmundsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Þórdís Guðmundsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn, systkini og fjölskyldur. Elskulegur afi okkar, langafi og langalangafi, BALDVIN S. JÓNSSON, Sólvangi, Hafnarfirði, áður til heimilis að Breiðagerði 11, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 18. ágúst. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 29. ágúst klukkan 11. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sólvangs. . Helena M. J. Stolzenwald Smári Björgvinsson Baldvin Jónsson Immakulate P. Mande Berglind S. Jónsdóttir Sævar Sverrisson Líney Rakel Jónsdóttir Árni E. Eyjólfsson Anna B. J. Stolzenwald Ragnar Þór Alfreðsson og fjölskyldur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAUKUR SIGURÐSSON sagnfræðingur, Austurbergi 14, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu 18. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá Grensáskirkju föstudaginn 26. ágúst klukkan 13. . Örn Hauksson, Margrét Sigurðardóttir, Sigurjón Hauksson, Haukur Jón Arnarson, Helgi Þór Arnarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.