Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 29

Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mundu að leyfa vinum og vanda- mönnum að njóta sólskinsins með þér. Yfir- manni hættir til að setja sig á háan hest, það er ekki til í þinni orðabók og fer óstjórnlega í taugarnar á þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Vinur reynir að sannfæra þig um að fara í ferðalag með sér og þér líst ekki illa á það. Þú hefur alltaf haft hjartað á réttum stað. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það reynir á skuldbindingu þína við vissa manneskju. Þú hittir naglann á höfuðið í verkefni sem þú tókst að þér. Við þurfum ekki alltaf að eiga allt það nýjasta og flottasta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur lagt hart að þér og nú ferð þú að sjá fram á árangur erfiðis þíns. Brettu upp ermarnar, allt fer vel að lokum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er allt í sómanum hjá þér um þess- ar mundir í vinnunni svo þú getur leyft þér að slaka svolítið á. Leitaðu aðstoðar ef þér finnst þú ekki ráða við hlutina ein/n. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur fyrir auknum kröfum frá fjöl- skyldunni í dag. Brostu, hlæðu og ekki hlusta á neinn sem reynir að draga þig niður. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ákveðinn léttir þegar búið er að taka ákvörðun um hvert halda skal. Vertu áfram alæta á bækur en ekki gleyma að sinna kroppnum líka með góðum göngutúr. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Allir sem umgangast þig eru þér velviljaðir þessa dagana og þú undrast það og finnst lífið ævintýri líkast. Einhver þér ná- kominn er á hálfgerðum hrakhólum, athug- aðu hvort þú getur aðstoðað. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefstu ekki upp þótt illa gangi, því öll él birtir upp um síðir. Einhverjir þurfa alltaf að láta ljós sitt skína, það er ekki þér að skapi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nýstárlegar hugmyndir um bætta heilsu freista þín. Mundu að hamingjan felst ekki síst í því að una vel við sitt og óham- ingjan í því að sækjast eftir því ómögulega. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur þörf fyrir að fara þínar eigin leiðir í dag. Þú ákveður að slá botninn í samband sem er ekki að ganga upp. 19. feb. - 20. mars Fiskar Sýndu sérstaka aðgæslu í peninga- málum í dag og á morgun. Verkefni sem tengjast útgáfustarfsemi, fjarlægum löndum, framhaldsmenntun og lögfræði munu ganga vel á næstunni. Víkverji er nýkominn úr sumar-fríinu sínu. Það hefur tekið pínu á fyrir hann að venja sig aftur á að vakna á morgnana, en sú kvöð hefur orðið brýnni í kjölfar þess að Strætó breytti áætluninni sinni fyrir vet- urinn á meðan Víkverji var frá vinnu. Í staðinn fyrir að hann geti tekið fimmuna, sem merkilegt nokk hefur fylgt Víkverja í bæði skóla og vinnu mjög lengi, neyðist hann til þess að taka vagn nr. 16. x x x Vagn númer sextán, eða „sextán-an“ eins og Víkverji hyggst kalla hana, er ekki eins og flestir aðrir vagnar. Til að byrja með hefur hún feril sinn ekki beinlínis á Hlemmi, heldur aðeins frá, við hlið lögreglustöðvarinnar. Þaðan þræðir hún sig í mestu makindum í gegnum flestöll iðnaðarhverfi borgarinnar áður en hún stoppar svo, nánast eins og fyrir tilviljun, í Hádegismóum, rúmum þremur stundarfjórðungum síðar. Víkverja líður því pínu eins og hálfgerðri hornreku í strætókerfinu þegar hann tekur „sextánuna“. x x x Eini kosturinn sem Víkverji sér, ersá að vagnarnir eru í það minnsta nýir eða nýlegir, og það er ekki búið að krota aftan á sætin áköll til lúsifers líkt og í fimmunni forðum. Það má alltaf þakka fyrir litlu hlut- ina. Víkverji er annars ýmsu vanur úr almenningssamgöngum, hafandi bú- ið í London í nokkur ár. Þar kynntist hann til dæmis þeirri merkilegu staðreynd að öll ferðalög innan borgarinnar tóku hér um bil 40 mín- útur óháð vegalengd, hvort sem hann tók strætó í skólann eða gekk á milli húsa. Þær 40 mínútur voru oft- ar en ekki nýttar í að lesa bækur eft- ir sænska glæpasagnahöfunda. x x x Víkverji á því miður engar slíkarbækur til lengur, en mun kannski verða sér úti um einhverjar á næstunni. Einhvern góðan Kjell eða Henning, kannski Arnald ef því er að skipta. Eitthvað mun hann þurfa til að dreifa huganum á meðan „sextánan“ sniglast í kringum Sundahöfn. víkverji@mbl.is Víkverji Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta sagði hann við Jesú: „Sæll er sá sem neytir brauðs í guðs ríki.“ (Lúk. 14:15) Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð. Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana. Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is Hafðu samband í dag og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun. www.mbl.is/laushverfi Vantar þig aukapening? Hjálmar Freysteinsson orti„limru dagsins“ á mánudag: Lísbet talar lon og don lofsamlega, það er von; um framúrskarandi fyrrverandi tilvonandi tengdason. Þá um morguninn heilsaði Páll Imsland Leirliði á enn einum sólar- deginum, mitt á milli rigningaskúr- anna. – „Mér lætur ekki pólitísk umræða, eins og Leirinn veit, og ef ég reyni þá fer bara svona: Það er allt upp í loftið á Lóni, landstjórinn bölvaður dóni þegnarnir fantar og fjármuni vantar. Ástandið eins og á Fróni.“ „„Skrítin tík þessi pólitík“ er gjarnan sagt,“ bætti Sigurlín Her- mannsdóttir við og síðan: Lögregluhundur frá Lóni sem líkist helst sokkabandsprjóni er pjattrófa slík þessi pólitítík að í pirrurnar fer á Geir Jóni.“ Pétur Stefánsson sagðist vera „frjáls“: Hérna fyrr, á árum áður öl og tóbak girntist ég. Nú er ég engum efnum háður, arka frjáls um lífsins veg. Mörgum vefur Bakkus böl, býsna flár og leikinn. Ljúft er að vera laus við öl og laus við tóbaksreykinn. Ofan úr Mývatnssveit fréttist af viðbrögðum Friðriks Steingríms- sonar: Enn með sína bagga bagsa bjánar svona eins og ég, á þig bráðum vængir vaxa, veröld þín er dásamleg. Ingólfur Ómar gat ekki orða bundist: „Flottar vísur hjá Pétri og Frikka“: Óspart hef ég öðlast trú ekki er þörf að kvarta. Glaður veginn geng ég nú með gleði og ró í hjarta. Sjálfum sér samkvæmur yrkir Ingólfur Ómar á Leir: Óðarfengur eflast má orðsnilld lengi gjalla. Leika drengir lipurt á ljóðastrengi snjalla. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af pólitík, lögregluhundi og Bakkusi Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hver dagur saman eykur á ástina.„HANN ER ENNÞÁ FÚLL AF ÞVÍ AÐ ÉG FÉKK TANNBURSTANN HANS LÁNAÐAN – TIL AÐ GERA HNÍF.“ „VARÚÐ! VARÚÐ! V-A-R-Ú-Ð!“ EKKI SEGJA ODDA, EN STUNDUM FINNST MÉR ÁGÆTT AÐ HAFA HANN HÉRNA. ÉG OG STÓRA HUGSANABLAÐRAN MÍN... VITRINGUR, SEGÐU MÉR ÞAÐ SEM ÉG ÞARF AÐ HEYRA! EKKI DREKKA! EKKI RÆNA! EKKI BORÐA YFIR ÞIG! ÞÚ ÞURFTIR GREINILEGA AÐ HEYRA GOTT GRÍN! VAR ÚLF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.