Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 36

Morgunblaðið - 25.08.2016, Síða 36
FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 238. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Tala látinna hækkar stöðugt 2. Lömuð eftir slys á Selfossi 3. Sér eftir fegrunaraðgerðunum 4. Heilu hverfin þurrkuðust út »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fyrsta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Guðmundar Arn- ars Guðmundssonar í fullri lengd, Hjartasteinn, hefur verið valin í Dis- covery-hluta alþjóðlegu kvikmynda- hátíðarinnar í Toronto. Discovery-hluti hátíðarinnar er tileinkaður spennandi nýjum röddum í kvikmyndagerð og þar mun Hjartasteinn keppa um Fipresci- gagnrýnendaverðlaunin. Hátíðin fer fram 8.-18. september. Skömmu áður en kvikmyndin Hjartasteinn er sýnd á Toronto-hátíðinni verður hún heims- frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Fen- eyjum, sem er ein elsta og virtasta kvikmyndahátíð í heimi. Hjartasteinn á To- ronto-hátíðinni  Klassíski gítarleikarinn og tón- skáldið Gunnlaugur Björnsson held- ur tónleika í Mengi í kvöld kl. 21 til að fagna útkomu plötunnar Techno 1. Gunnlaugur er í mastersnámi við Yale School of Music undir hand- leiðslu Benjamin Verdery, en í verk- um hans má m.a. greina áhrif úr kvikmyndatónlist, framúrstefnulegu rokki og klassískri gítartónlist. Á tónleikunum munu áheyrendur heyra plötuna í heild sinni, en tónskáldið spilar á gítar í bland við raf- hljóð ásamt því að stjórna sjón- rænu efni. Gunnlaugur fagnar Techno 1 í Mengi Á föstudag og laugardag Norðaustan 8-13 m/s norðvestantil en annars mun hægari. Dálítil rigning á norðanverðu landinu en skúrir syðra. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning austan- og suðaustanlands en skúraveður suðvestantil og yfirleitt þurrt um landið norðanvert. Hiti 10 til 19 stig. VEÐUR Forskot Stjörnunnar á toppi Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu er fimm stig eftir leiki gærkvöldsins í 13. umferð. Stjarnan hafði bet- ur gegn ÍBV 2:1 í Garða- bænum en sigurinn stóð þó tæpt þar sem sigurmark Stjörnunnar kom á loka- kafla leiksins. Fylkir vann mikilvægan sigur á ÍA á Akranesi. Valur vann FH og Þór/KA hafði betur gegn KR. » 2-3 Fimm stiga for- skot Stjörnunnar „Ég held að ég sé nokkuð örugg því að mér finnst líklegt að lágmarkið verði svipað og síðast,“ sagði Arna Stefanía Guðmundsdóttir, Norður- landameistari 23 ára og yngri í 400 m grindahlaupi, um möguleika sína á að komast á heims- meistaramótið í frjálsíþróttum á næsta ári. Arna Stefanía hefur tekið stór- stígum fram- förum síðasta árið og nálg- ast óðum Ís- landsmetið í greininni. »1 Arna Stefanía tekið stórstígum framförum „Þrátt fyrir að þessi fundur hafi verið þvingaður fram af einum eða tveimur stjórnarmönnum sem vildu kannski ræða breytingar var ég nokkuð viss í minni sök. Að vissu leyti er þetta létt- ir, það er pressa á manni og gengið hefur ekki verið gott upp á síðkast- ið,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Lilleström, eftir að ljóst varð að hann heldur áfram þjálfun liðsins. »2 Rúnari er létt að fá mál sín á hreint ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Þegar farið er um byggðarlög Íslend- inga í Ameríku, ekki síst í Norður- Dakóta og Manitoba, má víða sjá ís- lensk bæjarheiti. Jóel Friðfinnsson, bóndi með meiru í Geysisbyggð í Manitoba í Kanada, segir að skipta megi nöfnunum í sex flokka og ætlar hann að gera nánari grein fyrir því á Þjóðræknisþingi á Hótel Natura á sunnudag. Jóel, sem er 31 árs, á ættir að rekja til Íslands í báðar ættir, hefur alla tíð búið í „íslensku“ sveitinni og er góður í íslensku. Hann er með háskólagráðu í faginu frá Manitoba-háskóla, lærði íslensku fyrir erlenda stúdenta við Háskóla Íslands í tvö ár og er virkur í íslenska samfélaginu í Manitoba. Hann kennir byrjendum íslensku í Árborg, hefur verið í stjórn Íslend- ingafélagsins Esju í Árborg um árabil og er nú formaður, er einn af stofn- endum The Icelandic River Heritage Sites Inc. og er ritari nefndarinnar auk þess sem hann er fulltrúi Kanada í Þjóðræknisfélagi Íslendinga. Hann býr á Breiðuvöllum og vinnur í bú- skap með föður sínum, Brian Frið- finnssyni, á Hamraendum. Rammíslensk nöfn Kelduland er dæmi um bæjarheiti vestra. „Það vísar til jarðarlýsingar,“ segir Jóel og bætir við að mýrar hafi verið áberandi á svæðinu. „Fljótshlíð við Íslendingafljót er annað dæmi um þetta,“ heldur hann áfram. Margir Íslendingar, sem fluttu vestur, nefndu bæ sinn eftir bæjar- heiti sínu á Íslandi. „Hjónin sem bjuggu á Engimýri í Öxnadal í Eyja- firði settust að í Riverton og nefndu bæinn sinn Engimýri.“ Í þriðja lagi segir Jóel að sumir hafi nefnt bæinn eftir nafni húsbónd- ans. Vísar á nöfnin Helgastaðir og Jónsnes í því sambandi. „Það var líka algengt að menn tóku nafn úr bókmenntum, sérstaklega úr norrænni goðafræði,“ segir Jóel og bendir á Ásgarð, Iðavelli og Bifröst á Nýja Íslandi. Þess eru jafnframt dæmi að bæjar- nöfn hafi verið stytt. Nálægt River- ton er til dæmis bærinn Árskógur, en sá sem gaf bænum nafn var fæddur á Árskógsströnd í Eyjafirði. „Þar hvílir kona sem talin er vera barnabarna- barn Friðriks sjötta Danakonungs,“ segir Jóel. Í sjötta lagi nefndu menn bæi eftir fyrstu sýn. „Þegar nokkrir Íslend- ingar komu fyrst að Winnipegvatni sáu þeir reyk svífa yfir trjánum. Þar var tjaldstæði frumbyggja og þeir ákváðu að nefna bæinn Reyki.“ Íslensk bæjarheiti vestra  Jóel Friðfinns- son skiptir nöfn- unum í sex flokka Vesturheimur Jóel Friðfinnsson hefur skipt íslenskum bæjarnöfnum í Vesturheimi í sex flokka. Þjóðræknisþing verður haldið á Hótel Natura klukkan 14-16.30 sunnudaginn 28. ágúst 2016 og að vanda verður boðið upp á fjöl- breytta dagskrá. Að lokinni setningu Halldórs Árnasonar, formanns Þjóðrækn- isfélags Íslendinga, flytja ávörp forseti Íslands Guðni Th. Jóhann- esson, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, Ro- bert C. Barber, sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, og Sunna Pam Furstenau, forseti Þjóðræknis- félags Íslendinga í Vesturheimi. Erindi flytja Michelle Valberg, ljósmyndari af íslenskum ættum, Hjálmar W. Hannesson, fyrrver- andi aðalræðismaður í Winnipeg, Jóel Friðfinnsson og þátttakendur í Snorra West-verkefninu í sumar. Tónlist verður í höndum Lisu Sig- urgeirson Maxx og Michael Dar- ragh frá Kanada. Erindi, tónlist og ávörp ÞJÓÐRÆKNISÞING Á SUNNUDAG

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.