Morgunblaðið - 29.08.2016, Síða 2
Enn er stöðugur straumur ferðamanna á Íslandi, eins og sést
á þessari mynd af Jökulsárlóni, sem sýnir lónið frá sjaldgæfu
sjónarhorni. Fólk sem ferðast um landið getur fagnað því að
veðurspá næstu daga er mild og góð, enn eru eftir sumar-
dagar. Spáð er norðlægri eða breytilegri átt í dag en dálítilli
súld eða rigningu austanlands.
Ísjakastæði á lóninu og bílastæði á planinu
Morgunblaðið/RAX
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Loftkæling
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
og varmadælur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Sjúkraflugferðum fjölgaði um 18%
á fyrstu sjö mánuðum ársins miðað
við sama tíma í fyrra og hafa aldr-
ei fleiri ferðir verið flognar á þess-
um mánuðum ársins en nú.
Samkvæmt tölum sem Hildi-
gunnur Svavarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og
gæðasviðs Sjúkrahússins á Ak-
ureyri, tók saman voru 404 tilvik
sjúkraflugs samanborið við 343 á
sama tíma í fyrra. Að sögn Hildi-
gunnar má heilt yfir sjá merki um
að flugferðum fjölgi hægt og bít-
andi ár frá ári.
Kippur varð milli áranna 2013
og 2014 þegar sjúkraflug til Vest-
mannaeyja hófst, að því er fram
kemur í Vikudegi, en þá fór fjöld-
inn úr 457 flugferðum á einu ári í
537 ferðir.
„Aldrei hafa verið fleiri
flugferðir og það er ákveðinn stíg-
andi í þessu. Það kom reyndar
mikið stökk milli 2013 og 2014, en
þá voru tilvikin talsvert færri. Það
er alveg ljóst að ef þetta heldur
svona áfram er þetta metár í fjölda
flugferða,“ segir Hildigunnur í
samtali við Morgunblaðið. Hún
býst við um 700 flugferðum á
þessu ári, verði fjölgunin með svip-
uðum hætti á fyrstu mánuðum árs-
ins.
„Um það bil helmingur flugferða
flokkast undir forgang eitt og tvö.
Það eru þær flugferðir sem krefj-
ast styttri viðbragðstíma og það
eru þær sem skipta okkur miklu
máli og við bendum á til dæmis í
tengslum við neyðarbrautina,“ seg-
ir hún.
„Einnig er fólk oftar flutt af
spítala eftir rannsóknir eða legu.“
Flestar flugferðanna eru vegna
hjarta- og æðasjúkdóma að sögn
Hildigunnar. Þar á eftir koma
meðal annars flutningar á sjúk-
lingum og hinir ýmsu áverkar sem
krefjast skjótra viðbragða. Í um
það bil þriðjungi flugferðanna hef-
ur læknir verið um borð. jbe@mbl.is
Stefnir í metár í sjúkraflugi
Morgunblaðið/RAX
Sjúkraflug Sjúkraflugferðum hefur
fjölgað um 18% fjölgun á milli ára.
18% fjölgun frá
fyrra ári á fyrstu
mánuðum ársins
Humarvertíðin í
ár hefur verið af-
ar slæm, alveg
eins og síðustu
ár, að sögn Þrast-
ar Þorsteins-
sonar, fyrrver-
andi skipstjóra á
Þorlákshöfn.
„Vertíðin var
mjög góð framan af, í mars, apríl og
maí, sérstaklega á Austurlandi. Síð-
an hefur þetta gengið frekar illa,“
segir Þröstur.
Þröstur segir að aðallega veiðist
stór humar og að vantað hafi smáan
humar í nokkur ár. Spurður hver
ástæðan sé fyrir lélegri veiði segir
hann að erfitt sé að vita það fyrir víst
en að hærri hiti sjávar sé sennilega
líklegasti þátturinn.
Humarveiðin er þó sérstök að
sögn Þrastar. „Það eru svæði þar
sem veiddist vel í upphafi en duttu
út í tugi ára, og svo kemur hörku-
veiði þar upp úr þurru.“
Humar-
vertíðin
enn slæm
Fór vel af stað en
hallaði undan fætiSkúli Halldórsson
sh@mbl.is
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, segist hafa tek-
ið eftir þeim hörðu viðbrögðum sem
kaupaukagreiðslur til starfsmanna
Kaupþings hafa vakið í þjóðfélaginu.
Eins og áður hefur verið greint frá
verður tillaga um sérstaka kaupauka
fyrir starfsmenn Kaupþings lögð
fyrir aðalfund félagsins á morgun.
Í samtali við Morgunblaðið stað-
festir Unnur að félagið lúti ekki
eftirliti stofnunarinnar og heyri þar
með ekki undir lög um fjármálafyrir-
tæki, sem takmarka kaupauka-
greiðslur við 25% af árslaunum við-
komandi starfsmanns.
„Það er greinilegt að fólki finnst
að það eigi að vera einhverjar tak-
markanir á þessu, og ég held að
þingmenn séu að skoða það, þó að
þeir nái kannski ekki utan um þetta
afturvirkt,“ segir Unnur.
„En þetta er einhver menning
sem við þekkjum annars ekki í ís-
lensku þjóðfélagi.“
Unnur bendir á að þótt FME hafi
ekki virkt eftirlit með félaginu sé eft-
ir sem áður fylgst með því. Vísar hún
til þess að Kaupþing eigi 87% hlut í
Arion banka. Þó að bankinn sé þann-
ig mjög stórt fyrirtæki á íslenskan
mælikvarða sé hann svo lítill hluti
eignasafnsins að félagið geti ekki
talist sem svokallað „eignarhalds-
félag á fjármálasviði“, en þá myndi
það sjálfkrafa heyra undir lögin.
„Ef félagið selur eignir úr safninu
en heldur bankanum áfram þurfum
við að fylgjast grannt með hvenær
og hvort það fellur undir lögin,“ seg-
ir Unnur að lokum.
BSRB hefur skorað á Alþingi að
bregðast við og tryggja „að skatta-
umhverfi hér á landi sé þannig að
þeir sem hafa háar tekjur greiði ríf-
lega til samfélagsins,“ að því er fram
kemur í tilkynningu frá bandalag-
inu.
„Bljúgir við að dreifa“
Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sem situr í efna-
hags- og viðskiptanefnd Alþingis,
segir félagið þurfa að gefa mjög ná-
kvæmar skýringar á greiðslunum.
„Þetta er þrotabú. Og það er mjög
merkilegt að kröfuhafar skuli vera
svona bljúgir við að dreifa.“
Aðspurður segir hann það þó á
mörkunum hvort Alþingi geti brugð-
ist við á einhvern hátt.
„Þetta er jú einkaréttarlegur
samningur sem er gerður þarna og
það er nú þegar búið að breyta lög-
um um gjaldþrotaskipti bankanna
nokkrum tugum sinnum. Það er
spurning hvað Alþingi á að ganga
langt í að skipta sér af einkarétt-
arlegum samningum.“
Tillaga um kaupaukagreiðslur
Kaupþings fær mikla gagnrýni
Menning sem þekkist ekki í þjóðfélaginu, segir forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Morgunblaðið/Ómar
Kaupþing Áður banki, nú eignar-
haldsfélag með hlut í bankanum.
Í hnotskurn
» Kaupþing starfar sem eign-
arhaldsfélag og á meðal ann-
ars 87% hlut í Arion banka.
» Tillaga um kaupaukakerfi
verður lögð fyrir aðalfund
Kaupþings á morgun.
» Tuttugu starfsmenn gætu
þá fengið úthlutað samtals
tæplega 1,5 milljörðum króna.
» Félagið fellur ekki undir lög
sem takmarka slíka kaup-
auka.