Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 Þekkingarfyrirtæki í málmiðnaði og véltækni Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100 • hedinn.is Ekki þarf mikið til að örvaBirgittu kaptein Jónsdóttur til skylminga á netinu. Hún las í slúðurdálki, haft eftir einni nafn- lausri meintri heimild, að „búast megi við hörðum skotum“ frá Sjálfstæðisflokknum á Pírata.    Birgitta dregurvíðtækar ályktanir af þess- um slúðurmola og segir „augljóst að allt sé gert fyrir völdin“. Hún telur þetta, sem haft er eftir nafnlausu heimildinni í slúð- urdálkinum, „ömurlega taktík“ hjá Sjálfstæðisflokknum.    Svo segir hún: „Við Píratarhöfum frekar reynt að út- skýra hvað það er sem við viljum gera ef við fáum umboð.“    Þetta er alveg furðulega fabú-lerað af engu tilefni hjá for- ingja stjórnmálaflokks, en gefur svo sem vísbendingar um hverju búast má við af flokknum fái hann aukið vægi í landsmálunum.    Og það er líka sérstakt aðkapteinninn tali með þessum hætti þegar hann sjálfur kemur ítrekað fram og gagnrýnir aðra harðlega og ræðst á stefnu þeirra.    Þetta á ekki síst við um Sjálf-stæðisflokkinn, sem kapt- einninn hefur ítrekað staðhæft að ekki komi til greina að vinna með eftir kosningar.    Hvernig væri að gæta sam-ræmis í málflutningi og sýna örlitla stillingu gagnvart óstaðfestum og nafnlausum mol- um á netinu? Birgitta Jónsdóttir Ofsafengin viðbrögð við engu STAKSTEINAR Veður víða um heim 28.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 léttskýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 9 skýjað Nuuk 13 skýjað Þórshöfn 11 skýjað Ósló 12 rigning Kaupmannahöfn 19 skúrir Stokkhólmur 13 súld Helsinki 15 skýjað Lúxemborg 25 léttskýjað Brussel 24 léttskýjað Dublin 19 skýjað Glasgow 17 skýjað London 20 skúrir París 26 heiðskírt Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 21 rigning Berlín 31 skýjað Vín 29 heiðskírt Moskva 19 heiðskírt Algarve 31 heiðskírt Madríd 35 heiðskírt Barcelona 28 léttskýjað Mallorca 30 heiðskírt Róm 28 heiðskírt Aþena 28 léttskýjað Winnipeg 20 léttskýjað Montreal 24 skýjað New York 27 heiðskírt Chicago 27 rigning Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 29. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:04 20:54 ÍSAFJÖRÐUR 6:00 21:08 SIGLUFJÖRÐUR 5:43 20:51 DJÚPIVOGUR 5:31 20:26 Sunna Davíðs- dóttir, bardaga- kona úr Mjölni, verður fyrsti kvenkyns at- vinnumaður Ís- lendinga í blönduðum bardagaíþrótt- um, MMA. Fram kemur í tilkynn- ingu frá Mjölni að Sunna hafi undirritað fjölbardagasamning við bardagasambandið Invicta Fighting Championships í Banda- ríkjunum. Fyrsti bardaginn er í Kansas City 23. september. And- stæðingur Sunnu verður hin bandaríska Ashley Greenway. Þær eru báðar 31 árs, eru báðar með grunn úr muay-thai og eru báðar með fjólublátt belti í bras- ilísku jiu-jitsu. Mætir Ashley Greenway 23. sept. Áform um að opna háloftaveitinga- stað á Klambratúni þar sem gestir eru hífðir upp í 45 metra hæð með krana er í bið. Jóhannes Stefánsson veitingamaður, gjarnan kenndur við Múlakaffi, og Jón Axel Ólafsson út- gefandi hjá Eddu voru meðal þeirra sem höfðu uppi áform um að opna veitingastaðinn. Fékk hugmyndin jákvæða umsögn hjá umhverfis- og skipulagssviði þegar leitað var þang- að með erindi síðasta vetur. Nú virð- ist vindur úr verkefninu. „Það er ekkert verið að vinna í þessu eins og er. Það var vel tekið í þessa hug- mynd í borgarkerfinu og borgin sýndi þessu mikinn áhuga en svo þurftum við að kanna þetta betur og þetta hefur legið niðri. Kannski kemur þetta og kannski ekki,“ segir Jóhannes. vidar@mbl.is Vindur úr háloftaverkefni Snætt á lofti Dinner in the Sky er þekkt vörumerki víða um heim. Rannsóknarsetrið um nýsköpun og hagvöxt stendur ásamt öðrum að ráðstefnu í fundarsal Þjóðminja- safnsins frá klukkan 14 til 17 í dag, um tvær ólíkar leiðir til að úthluta aflaheimildum. Annars vegar afla- reynslu og frjáls viðskipti með afla- heimildirnar, og hins vegar uppboð á vegum ríkisins. Gary Libecap, prófessor í hag- fræði við Kaliforníuháskóla í Santa Barbara, flytur fyrirlestur þar sem hann leitast við að svara spurning- unni um hvers konar fyrirkomulag fiskveiða sé hagkvæmast fyrir þjóð- ina til langs tíma. Ragnar Árnason, prófessor í fiskihagfræði við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur um „Skattlagn- ingu sjávarútvegs og skilvirkni“. Eftir fyrirlestrana verða pallborðs- umræður. johannes@mbl.is Úthlutunarleiðir krufðar Morgunblaðið/Alfreð Finnsson Veiði Um borð í skipinu Steinunni. Mikill viðbúnaður var virkjaður síð- degis í gær þegar Landhelgisgæsl- unni barst fjöldi neyðarboða frá ís- lenskri flugvél yfir landinu.Tvær þyrluáhafnir og björgunarsveit voru kallaðar út og samhæfingar- miðstöðin í Skógarhlíð virkjuð. Fljótlega náðist í flugmann vél- arinnar. Flugvélin reyndist vera á flugi í Skagafirði og „allt í góðu lagi“. Voru þá allar bjargir aftur- kallaðar. Viðbúnaður vegna neyðarboða í flugvél Sunna Davíðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.