Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Ég sá hákarl undir mér, kannski eins og hálfs metra. En ég hugsaði með sjálfum mér, ég ætla ekki að fara að hrópa á hundrað manns. Ég var ekki einu sinni viss um hvað ég sá. Ég var kannski 100 metra frá landi. Svo kom ég mér upp á land en þar sem ég var nýbúinn að leigja brettið, þá hugsaði ég með mér að há- karlinn væri búinn að bíta einhvern ef hann vildi bíta einhvern. Því náði ég að útiloka þessa hugsun og fór bara aftur út í,“ segir Kristján Valdi- marsson um fyrstu kynni sín af svo- kölluðu SUP-bretti sem hann hefur mikinn áhuga á að kynna Íslendinga betur fyrir. Sup-brettum má líkja við brimbretti nema þau eru umtalsvert breiðari sem gerir þeim sem þau nota auðveldara um vik við að halda jafn- vægi þar sem þeir standa og skoða í kringum sig. Brettinu fylgir svo ár sem róið er með. Alls ekki kalt Kristján segir að síðar hafi hann fengið að vita að umræddur hákarl sem hann sá við strendur Banda- ríkjanna var svokallaður leopard shark og gerir hann mannfólki ekki mein. „Einn af kostunum við að stunda tómstundaiðju á sjónum á Íslandi er sú að þú veist að það er enginn að fara að bíta þig. Ég hef stundum séð sel koma upp að brett- inu og kíkja á mann. Sumir hafa séð hval nokkuð langt í burtu. En maður þarf ekkert að hafa áhyggjur af því,“ segir Kristján sem segist þó langmest nota brettin á vötnum hér- lendis. Kristján kynntist Sup-brettum í Ástralíu fyrir nokkrum árum og á þessu ári flutti hann inn ein 20 bretti, ásamt vinum sínum, sem hann hefur notað í ferðir sem hann býður upp á. Þeir eru þegar búnir að selja ein 13 bretti sem eru um 2,5 metra löng. „Það er ekkert mál að halda jafnvægi á þessu. Ef þú dettur út af brettinu, þá ertu með það tengt við þig og klifrar upp á það aftur, ekkert ves- en,“ segir Kristján. Hann lék áður knattspyrnu með Fylki en ákvað eftir að hann komst í kynni við brettin í Ástralíu og á Nýja- Sjálandi að hann myndi sökkva sér ofan í þessa iðju eftir knattspyrnu- ferilinn. „Þetta er vel mögulegt á Ís- landi. Það eru margir sem halda að það sé allt of kalt að vera í sjónum á Íslandi að leika sér en það er rangt. Þetta er eingöngu spurning um klæðnað. Ég hef farið á brimbretti á Íslandi í 12 stiga gaddi og við sem vorum þar vorum sammála um að okkur væri alls ekkert kalt,“ segir Kristján. Hann mælir þó ekki með því að fólk geri það nema vera vel bú- ið og ef fólk fer út á sjó er betra að vera í samfloti við einhvern ef eitt- hvað kemur upp á. Kristján hefur meðal annars róið á brettinu út í Viðey þótt hann fari oft- ar á því út á stöðuvötn. Sjálfur býr hann nærri Elliðavatni sem hann hef- ur mikið notað við þessa iðju. „Mín hugmynd er ekki endilega að hafa tekjur af þessu, heldur kynna þetta sport á Íslandi,“ segir Kristján. Hann segir að fólk sé 10-20 mínútur að ná tökum á því að standa á brettinu. „Ég fer bara á þetta þegar fyrirspurnir koma. Ég hef minnst farið með þrjá í einu. Þetta er allt í startholunum enn þá og ég er að prófa mig áfram með þetta,“ segir Kristján. Upplifir náttúru öðruvísi Hann segir að maður upplifi náttúr- una á allt annan hátt þegar komið er út á vatn. „Þú stendur þarna og finnur hvað þú ert lítill. Flestir sem fara t.a.m. út á Elliðavatn átta sig þá á því að vatnið er nokkuð stórt. Samhliða ná menn kyrrðinni, fuglalífinu og allt öðrum tengslum við náttúruna en þú upplifir kannski í fjallamennsku, eða á hjólreiðum,“ segir Kristján. Hægt er að kynna sér nánar Sup-bretti á vef- síðunni supadventures.is „Enginn er að fara að bíta þig“  Vill kynna Íslend- inga fyrir Sup-brett- um  Fór út í Viðey á brettinu „Maður fer ekki langt frá landi. Pælingin er ekkert sú að storka örlögunum, heldur er öryggið það sem skiptir mestu. Ef maður er á sjó þá reynir maður að vera með ein- hvern með sér, því hann getur verið óútreiknanlegur. Þú ert hins vegar alltaf festur við brettið og því ertu aldrei í vanda að komast upp á það aftur. Svo er náttúrulega mik- ilvægt að kanna aðstæðurnar áður en þú ferð út. En þetta er rólyndis afþreying og ég hef farið með börnin út á þetta. Ég hef meira að segja farið með strákinn minn út á bretti þegar hann var á bleyj- unni,“ segir Kristján. Ekki að storka örlögum MEÐ STRÁKINN Á BLEYJUNNI Ekkert kalt Kristján segir að það sé misskilningur að halda að það sé of kalt að vera á sjó að vetri til. Góður klæðnaður sé þó lykilatriði til að njóta sín. Fjölskyldusport Kristján með Mar- ínó Þorsteini syni sínum. SVIÐSLJÓS Atli Vigfússon laxam@simnet.is „Ég þarf ekki að vera í íþróttahúsum til þess að halda mér í formi. Þetta er fín hreyfing og útivist sem gefur manni mikið,“ segir Friðrik L. Jó- hannesson sem hefur verið önnum kafinn við að endurnýja sandgræðslu- girðinguna nyrst í Aðaldalshrauni ásamt Þorláki Páli Jónssyni nú í vik- unni, en þeir starfa báðir hjá Land- græðslu ríkisins. Þorlákur vinnur mest við áburð- ardreifingu og sáningu, en Friðrik er aðallega í girðingarvinnunni. Til stendur að endurnýja 2-3 kílómetra af gömlu girðingunni norðan og vest- an við Aðaldalsflugvöll, en hún er orð- in mjög léleg, enda mestur hluti hennar frá 1953. Nýja girðingin verður rafmagns- girðing, en gamla girðingin er úr gaddavír og rekaviðarstaurum og má segja að hún hafi enst mjög vel miðað við aðstæður, en á þessu svæði eru oft stormar og sandfok. Þeir félagar nýta sér tæknina við girðingarvinnuna og nota dráttarvél til þess að leggja alla vírana út í einu, en um er að ræða fimm strengja girðingu sem þarf að vera mjög vel strekkt og vönduð í alla staði. Þorlákur segir að það þýði ekki að flýta sér með vírana, það verði að fara mjög hægt svo þeir leggist jafnt og er Friðrik í því að hagræða þeim á jörð- inni á eftir vélinni. „Hér keyrir maður bara á tveggja kílómetra hraða,“ seg- ir Þorlákur og brosir, en vinnur verk- ið af öryggi enda vanur maður á ferð. Landið er misjafnt yfirferðar, en víða eru gjótur í úfnu hrauninu og þess vegna þarf að gæta sín vel. Á þriðjudaginn munaði litlu þegar að eitt hjólið á farartæki þeirra fór niður í gjótu, en allt fór vel og ekkert skemmdist. Þeir segja báðir að þetta sé skemmtileg vinna og sérstaklega þegar veður er gott og þá gengur verkið hratt. Friðrik segir að góð tíð á haustin komi sér oft vel í girðing- arvinnunni og stundum hefur hann verið að girða fram í nóvember ef jörð hefur verið ófrosin og snjólaus. Heyrúllur eru hentugar Sandgræðslugirðingin á sér langa sögu, en foksandur hefur lengi farið illa með landsvæðið inn af Skjálfanda og gengið hefur á birkiskóginn í út- jaðri hraunsins. Melgresið, sem sáð var á sínum tíma, hefur varið landið á margan hátt vel, en sumstaðar hefur það rýrnað og lítill gróður komið í stað- inn. Mest var um að ræða flugsán- ingar, þ.e. frá 1968, og var miklum fjármunum varið til þess að efla gróð- urþekjuna. Landgræðsla ríkisins hefur á und- anförnum árum borið tilbúinn áburð á landið með dráttarvél, en vegna fjárskorts er það einungis annað hvert ár (6-10 tonn) og þykir mörgum það lítið miðað við umfang landsins. Þá hefur einnig verið sáð berings- punkti og vallarsveifgrasi auk mel- gresisins. Hins vegar er búið að fara með töluvert magn af moði og heyleif- um norður fyrir flugvöllinn og hefur það gefist mjög vel. Fyrir nokkrum árum fékk Landgræðslan 80 heyrúll- ur ofan úr Aðaldal til þess að dreifa á tilteknum svæðum og má segja að það sé mjög mikill árangur af því. Þorlákur dreifði úr rúllunum með dráttarvél og myndaðist gott fræset í kjölfarið. Svo virðist sem melgres- isfræin spíri vel í rúllunum og hver rúlla verður að litlum melgresisskúf. Þarna er mikið verk að vinna ef menn vilja, því víða eru til fyrningarúllur sem mætti gera mikið úr á svæði sem þessu. Mikið ógróið land eða lítt gróið Héraðssetur Landgræðslu ríkisins á Húsavík hefur umsjón með fram- kvæmdum þessum, en svæði þess eru Norður- og Suður-Þingeyjarsýsla ásamt Eyjafjarðarsýslu. Í heild eru girðingar, sem huga þarf að, um 375 km. Þar ber helst að nefna girðingar á Hólsfjöllum, Hólasandi og í Vatna- jökulsþjóðgarði, samtals 160 km. Daði Lange Friðriksson, héraðs- fulltrúi setursins, er ánægður með það að hægt sé að endurgera girð- inguna í Aðaldal núna, því hér sé um að ræða girðingu sem friðar um 780 hektara og þar af séu 500 hektarar ógróið land eða lítt gróið. Girðingin var gróðurkortlögð árið 2014 og mið- að við þá kortlagningu er nauðsynlegt að halda áfram aðgerðum. „Það er alltaf verið að gera eitthvað í svæðinu,“ segir Daði, en á ekki von á að farið verði í neinar stórar aðgerðir á sandsvæðunum að svo stöddu. Þeim Friðriki og Þorláki miðar vel í sínu verki. Veðurspáin segir að von sé á einhverri rigningu öðru hvoru, en hvað sem því líður þá er gaman að girða. Menn sjá mikið eftir sig, enda léttir á fæti. Góða tíðin gerir verkið enn skemmtilegra. Gaman að girða í góðu veðri  Sandgræðslugirðingin nyrst í Aðaldalshrauni loksins endurnýjuð  Stærstur hluti hennar frá árinu 1953  Áralöng og erfið barátta við foksand  Melgresisfræ spíra vel í heyrúllum Morgunblaðið/Atli Vigfússon Girðingarvinna Þorlákur Páll Jónsson og Friðrik L. Jóhannesson kunna vel við sig í girðingarvinnu í Aðaldal. Sandgræðsla Heyrúllur gefast vel við að hefta sandfokið í hrauninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.