Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Vertu upplýstur! blattafram.is VIÐ VILJUM GETA TREYST. ÞAÐ TRAUST ROFNAR AUÐVELDLEGA ÞEGAR HIÐ VERSTA GERIST. HVAÐ GERIR ÞÚ ÞEGAR TRAUSTIÐ ROFNAR? Keflvíkingurinn Magnús Kjart- ansson tónlistarmaður verður einnig með tónlistarveislu á há- punkti Ljósanætur, laugardags- kvöldinu. „Lögin mín eru þema þessara tónleika, lög sem ég sjálfur hef samið, einn eða með öðrum. Lítill drengur, Skólaball, To be greatful og Sólarsamba eru meðal þessara laga. Svo verða þarna nokkur lög sem fólk hugsanlega veit ekki að ég hef samið. Það er nefnilega býsna al- gengur misskilningur að fólk kenni lögin við flytjendurna, sem kannski er bara eðlilegt,“ segir Magnús. Á tónleikum verða Magnúsi til halds og trausts Keflvíkingarnir Gunnar Þórðar- son, Þórir Baldursson ásamt öðr- um góðkunnum hljóðfæraleik- urum – og svo munu söngvar- arnir Björgvin Halldórsson, Stefanína Svavardóttir grípa í míkrófóninn. Tónelskir í stuði Einnig mun hljómsveitin Júdas reka inn nefið. Þá kemur Söng- hópur Suðurnesja fram, kór sem Magnús stjórnar og hefur gert góða lukku á síðustu árum. „Draumurinn er að fylla sviðið af tónelskum, syngjandi Suð- urnesjamönnum í stuði,“ segir Magnús. Mörg lög eftir Magnús TÓNLISTARVEISLA Á LAUGARDAGSKVÖLDINU Morgunblaðið/Sigurður Bogi Tónlist Allir þekkja lög Magnúsar Kjartanssonar sem nú verða öll á einu silfurfati. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Rúmlega fimmtíu list- og hand- verkssýningar með yfir 100 þátt- takendum og rúmlega 60 aðrir við- burðir þar sem tónlistin er áberandi eru uppistaðan í dagskrá Ljósanætur í Reykjanesbæ sem verður sett á fimmtudag í næstu viku, 1. september. Eins og hefð er fyrir koma öll börn úr grunnskólum í Reykjanesbæ og þau elstu úr leik- skólunum að Myllubakkaskóla þar sem setningarathöfnin hefur frá upphafi verið, en Ljósanótt er nú haldin í 17. sinn. Fyrsta Ljósanæturlagið Söngur hefur alltaf verið í aðal- hlutverki á setningarathöfninni og sú verður einnig raunin nú þegar flutt verður lagið Velkomin á Ljósanótt eftir Ásmund Valgeirs- son sem er fyrsta Ljósanæturlagið, ásamt fleirum undir stjórn Friðriks Dórs. Fleira verður til gaman gert, en nú er vikið frá því að sleppa blöðrum á loft við athöfnina og er það gert vegna umhverfissjónar- miða. Risaboltar verða notaðir í staðinn. Á miðvikudag, kvöldið fyrir formlega setningu Ljósanætur, er á dagskrá tónlistarsýningin Með blik í auga. Þar hefur saga áratuga í tónlistinni verið rakin með ýmsu móti og nú verður sveitatónlistin tekin fyrir á skemmtun sem nefnist Hvernig ertu í kántrýinu? Þar verð- ur farið verður yfir sviðið í íslenskri og erlendri sveitatónlist undir stjórn Kristjáns Jóhannssonar. Valinkunnir söngvarar og fleiri koma fram á sýningunni sem verð- ur endurtekin tvisvar á sunnudag eftir formleg lok Ljósnætur. Með hjólbörur í kirkjuna Af öðrum viðburðum má tiltaka tónleika í elsta hluta bæjarins í Keflavík sem bera yfirskriftina Heima í gamla bænum. Sex fjöl- skyldur bjóða heim þar sem ólíkir tónlistarmenn flytja tónlist, ýmist í stofu gesta, görðum eða bílskúrum. Svo verða hjólbörutónleikar í Keflavíkurkirkju á fimmtudags- kvöld, þar koma fram Arnór Vil- bergsson, organisti í Keflavík- urkirkju, Kjartan Már Kjartansson, fiðluleikari og bæj- arstjóri, og söngvarinn Elmar Þór Hauksson. Þeir félagar eru með 100 lög á efnisskrá, eða hjólbörum eins og það er kallað, og getur fólk valið úr þeim lagabunka og spila þeir fé- lagar þau sem óskalög. Fljótlega eftir setningu Ljós- anætur mun Helga Ingólfsdóttir þroskaþjálfi opna sýningu á dúkku- og leikfangasafni sínu sem er gríð- arstórt. Helga hefur verið áfram um að kynna safn sitt og hluta af því við ýmis tilefni, en hluti þess er nú þegar kominn á byggðasafnið í Reykjanesbæ. Árelía í árgangagöngu Af öðrum atburðum má nefna svonefnda árgangagöngu sem er á laugardeginum. Þá hittist fólk við húsnúmer á Hafnargötu sem segir til um hvenær það er fætt. Elstu íbúarnir eru því neðst og næst há- tíðarsvæði, þangað sem gengið er. Byrjað er efst og gengið niður eftir götunni undir lúðrablæstri – og svo bætast árgangnir við koll af kolli niður alla götuna. 50 ára árgang- urinn er í aðalhlutverki hverju sinni og fær meiri athygli en allir hinir. Að þessu sinni er Árelía Eydís Guðmundsdóttir, rithöfundur og kennari í Háskóla Íslands, ræðu- maður þess árgangs, en Árelía Ey- dís er brottfluttur Reyknesingur en heldur þó enn góðum tengslum við heimahagana eins og þátttaka hennar í Ljósanótt vitnar um. Einn- ig eru áhugaverðar sýningar í öllum sölum Duus Safnahúsa og sýnendur tengjast allir eða hafa tengst Suð- urnesjum. Sjá nánar á ljosanott.is sbs@mbl.is Söngur og leikföng á Ljósanótt  Bæjarhátíð í Reykjanesbæ  Fjöldi sýninga og tónlistarviðburðir  Bæjarstjórinn leikur óskalög  50 ára í aðalhlutverki Leikföng Helga Ingólfsdóttir við uppsetningu á sýningu og með henni er Rósa Jónsdóttir sem er henni til halds og trausts í því verkefni. Heimatónleikar Margir góðir listamenn koma fram og hér eru félagar í sveitinni Ælu og áheyrendur fylgjast með af miklum áhuga. Gunnar Þórðarson, tónlistarmaður og tónskáld, hefur óskað eftir því við bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ að lag hans, „Gamli bærinn minn“, verði ekki flutt við flugeldasýningu Ljós- anætur líkt og venja hefur verið. „Samskipti fjölskyldu minnar við eina af undirstofnunum Reykjanesbæjar eru með þeim ólíkindum að ég banna flutning lagsins á Ljósanótt. Þetta er ekki gamli bærinn minn,“ segir hann í tilkynningu á vef Víkurfrétta. Bannar flutning lags

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.