Morgunblaðið - 29.08.2016, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Vottaður hífi- og festingabúnaður
Námskeið um notkun á hífibúnaði
Skoðanir og eftirlit á hífibúnaði
Hífi- og festingabúnaður
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Mér finnst sykurneyslaorðin mjög mikil. Éghef gaman af að verslaí matinn, en þegar ég
fer í búðina sé ég hvað sykur er
löðrandi í öllu, ef maður er smá
meðvitaður um það,“ segir Geir
Gunnar, sem er matvæla- og nær-
ingarfræðingur að mennt. Hann
starfar á Heilsustofnun Náttúru-
lækningafélags Íslands (NLFÍ) í
Hveragerði og er einnig ritstjóri á
vef NLFÍ.
Geir Gunnar lítur mikið upp til
Jónasar Kristjánssonar læknis og
stofnanda NLFÍ. „Jónas var mikill
frumkvöðull í heilsueflingu lands-
manna. Hann talaði mikið í ræðu
og riti um það að takmarka syk-
urneyslu og helst vildi hann út-
rýma sykrinum úr mataræði Ís-
lendinga. Jónas lést árið 1960 og
það er ekki seinna að vænna en 56
árum eftir andlát hans, að orð hans
um heilsuspillandi áhrif hvíta syk-
ursins eru tekin trúanleg. Ég reyni
að vera málsvari hans, hans orð
fengu ekki mikið vægi á sínum
tíma og enn þann dag í dag er syk-
urneysla mjög mikil,“ segir Geir
Gunnar. Á fimmtudag mun hann
halda fyrirlestur í Heilsu og Spa í
Ármúla undir yfirskriftinni: „Er
sykurlaus lífsstíll raunhæfur?“ þar
sem hann mun fjalla um leiðir til
að minnka sykur í fæðunni og
fræða áhugasama um hvaða áhrif
óhófleg neysla hefur á líkams-
starfsemina.
En er sykurlaus lífsstíll raun-
hæfur?
„Stutta svarið er nei, við lifum
í þannig heimi í dag að sykurinn er
kominn til að vera. En ég er ekki
að fara að halda þennan fyrirlestur
með það að markmiði að fólk eigi
að fara út í öfgar eða aldrei að
borða sykur aftur, heldur frekar til
að vekja fólk til umhugsunar um
sykurneyslu,“ segir Geir Gunnar.
Að hans mati er sykur ekki eitur,
en hann vill reyna að höfða til al-
mennings með því að beita ýmsum
leiðum við að minnka sykurneysl-
una. „En þegar við erum að borða
sykur þá eigum við að gera það
Nýtur og forðast
sykur samtímis
Er sykurlaus lífsstíll raunhæfur? Matvæla- og næringarfræðingurinn Geir Gunn-
ar Markússon hefur velt þessu fyrir sér og mun deila hugsunum sínum með
áhugasömum á samnefndum fyrirlestri á fimmtudag. Geir Gunnar hefur mikinn
áhuga á sykri á sama tíma og hann hefur engan áhuga á honum, í þeim skilningi
að við ættum að borða sem minnst af honum. Hann telur að erfitt sé að forðast
sykur með öllu en það sé þó hægt að beita ýmsum ráðum til að minnka sykurneysl-
una, en njóta hennar inn á milli.
Morgunblaðið/Eggert
Sykur Sykurneysla hefur verið hluti af samfélagsumræðunni í mörg ár.
Að flokka dósir og flöskur getur
verið tímafrekt. Grænir skátar eru
hins vegar sérfræðingar í söfnun á
skilagjaldskyldum umbúðum og
létta lífið með þjónustu sinni. Fé-
lagið er í eigu Bandalags íslenskra
skáta og hefur starfað síðan 1989.
Á heimasíðu Grænna skáta má
finna upplýsingar um móttöku-
stöðvar víðs vegar um landið þar
sem allir geta losað sig við dósir
og gefið áfram.
Fyrirtækjaþjónusta Grænna
skáta sér svo um að sækja dósir
til fyrirtækja og félagasamtaka og
skila til baka sem peningagreiðslu.
Allur ágóði af starfsemi Grænna
skáta rennur óskertur í heilbrigt
uppeldis- og félagsstarf ungs fólks
á vegum íslenskra skáta víðs veg-
ar um landið. Á heimasíðunni er
hægt að fylla út einfalt umsókn-
arform.
Vefsíðan www.graenirskatar.is
Þjónusta Grænir skátar aðstoða einstaklinga og fyrirtæki við flokkun dósa.
Einfaldara að flokka og skila
„Við erum hér, en hugur okkar er
heima,“ er yfirskrift viðburðar í
Mengi á morgun, þriðjudag, kl. 21. Í
tilkynningu segir að könnunarleið-
angurinn á Töfrafjallið verði þar til
staðar og deili tíðindum úr samtíma
með viðstöddum. Við lifum á tíma þar
sem núið er aðeins orsök og tilfinn-
ingin er iðandi ótti blandinn eftir-
væntingu. Leiðangurinn á Töfrafjallið
er sjö ára könnun og lestur á sjúk-
dómseinkennum samtímans. Þátt-
takendur eru Ása Helga Hjörleifs-
dóttir, Birna Bjarnadóttir, Gauti
Kristmannsson, Haraldur Jónsson,
Karlotta Blöndal, Steingrímur Eyfjörð
og Unnar Örn Auðarson.
Endilega…
…kannið Mengi
á morgun
Þátttakendur Þau munu tjá sig.
Það er á fleiri stöðum en Íslandi sem
ferðamenn eru svo ljónheppnir að
rekast á hesta á óvæntum stöðum.
Villtir hestar valsa víða um í Assatea-
que Island, sem er í Maryland í
Bandaríkjunum, en það ku vera meira
en 300 villtir hestar á svæðinu milli
Maryland og Virginia. Talið er að þeir
hafi upphaflega komið þangað með
flutningaskipi sem sökk fyrir margt
löngu, eða í kringum árið 1600. Þessi
villtu hross eru hin spökustu enda
orðin alvön mannfólkinu sem alls
staðar er á ferli. Hestarnir sækja ekki
síður inn á tjaldstæði og aðra staði
sem ætlaðir eru fyrir mannskepn-
urnar, enda getur margt leynst þar
sem þeim þykir spennandi, til dæmis
matarleifar. Fjórfætlingar þessir fara
sér að engu óðslega þar sem þeir
þvælast á milli bíla og virðast ekki
hafa lært umferðarreglur til fulls,
þeir eiga það til að vaða út á akbraut-
ir og fara sínar eigin leiðir eins og
dýrum er tamt. En sambúðin gengur
vel og auðvitað gleðst fólk og þá sér-
staklega börn að fá að klappa bless-
uðum skepnunum.
Samvistir dýra og manna eru gefandi
Villtir hestar njóta ferðamanna-
staða ekki síður en mannfólkið
AFP
Ferðamenn Geta ei látið hjá líða að klappa hrossum sem valsa um.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.