Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 14
FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Markaðurinn beið spenntur eftir vís- bendingum um mögulega hækkun stýrivaxta í ræðu Janetar Yellen í Jackson Hole á föstudag. Eins og fyrirrennarar hennar í starfi talaði bandaríski seðlabankastjórinn var- færnislega en sagði þó að „í ljósi þess að vinnumarkaður heldur áfram að styrkjast og að horfur eru góðar fyrir atvinnulíf og verðbólgu, þá er ég þeirrar skoðunar að rökin fyrir hækkun stýrivaxta hafi styrkst á undanförnum mánuðum.“ Tvær hækkanir fyrir árslok? Aðstoðarseðlabankastjórinn, Stanley Fisher, var ómyrkur í máli í viðtali við CNBC á föstudag þegar hann svaraði því játandi að ræða Yellen gæfi jafnvel tilefni til að vænta tveggja vaxtahækkana áður en árið er á enda. „Við erum þokka- lega nálægt fullu atvinnustigi og verðbólgan er hærri en í fyrra,“ sagði hann. Árleg þriggja daga alþjóðleg ráð- stefna seðlabankastjóra var haldin um helgina í Jackson Hole í Wyom- ing. Meðal gesta voru Haruhiko Ku- roda, seðlabankastjóri Japans, Benoît Cœuré, sem situr í stjórn seðlabanka Evrópu, og Augustin Carstens frá seðlabanka Mexíkó. Að sögn Reuters var það hljóð í stjórnendum bandaríska, japanska og evrópska seðlabankans að til- raunir þeirra til að færa aukinn þrótt í hagkerfið kunni að fara út um þúfur nema kjörnir fulltrúar hlaupi undir bagga með djörfum breyting- um. Í tilviki Japan þurfi t.d. nýja innflytjendastefnu á meðan kerfis- lægar breytingar eru aðkallandi í Bandaríkjunum og Evrópu svo að framleiðni og hagvöxtur aukist. Ekkert um neikvæða vexti Í ræðu sinni fjallaði Yellen um þau úrræði sem bandaríska seðlabank- anum standa til boða næst þegar bregðast þarf við samdráttarskeiði. Þar vakti athygli að Yellen minntist ekki einu orði á þann möguleika að taka upp neikvæða stýrivexti. Stýri- Rökin fyrir hækk- un orðin sterkari  Gefið í skyn í Jackson Hole að vænta megi stýrivaxta- hækkunar  Hlutabréfavísitölur lækkuðu lítillega í kjölfarið AFP Boli Ferðamenn á Wall Street. Markaðsgreinendur deilir á um hvort vænta má hærri stýrivaxta í september. vextir eru helsta stjórntæki seðla- banka og almenna reglan sú að þeir hækki vexti til að hægja á þenslu í hagkerfinu þegar vel árar, en lækki vexti í niðursveiflum til að örva hag- kerfið. Nú þegar stýrivextir vestan- hafs hafa um langt skeið verið ná- lægt núllinu eru fá önnur úrræði eftir fyrir bandaríska seðlabankann en að grípa til magnbundinnar íhlut- unar. Nefndi Yellen að mögulegt væri að seðlabankinn keypti fleiri eignaflokka en hingað til hafa orðið fyrir valinu þegar magnbundinni íhlutun er beitt. 14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Tækni í þína þágu hitataekni.is Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is 29. ágúst 2016 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 116.23 116.79 116.51 Sterlingspund 153.36 154.1 153.73 Kanadadalur 90.05 90.57 90.31 Dönsk króna 17.608 17.712 17.66 Norsk króna 14.138 14.222 14.18 Sænsk króna 13.825 13.907 13.866 Svissn. franki 120.14 120.82 120.48 Japanskt jen 1.1565 1.1633 1.1599 SDR 163.13 164.11 163.62 Evra 131.13 131.87 131.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.1309 Hrávöruverð Gull 1324.9 ($/únsa) Ál 1624.0 ($/tonn) LME Hráolía 49.66 ($/fatið) Brent Tal Yellen og Fisher um mögulega stýrivaxtahækkun varð til þess að Dow Jones og S&P 500-vísitölurnar lækkuðu lítillega á föstudag. Er ástæðan sú að hærri stýrivextir þrengja að fyrirtækjum og neytendum með ýmsum hætti. Fyrir hinn almenna neytanda verða hærri stýrivextir til þess að vaxtabyrðin af t.d. fasteignalánum og greiðslukortalánum verður hærri, sem svo þýðir að minna er aflögu til að fjármagna hvers kyns neyslu. Minnkuð neysla kemur sér illa fyrir fyrirtækin, sem þurfa í ofanálag að borga hærri vexti af sínum lánum og mögulega setja fjárfestingar- og stækkunarhugmyndir á hilluna ef fjármögnunin verður dýrari en gert hafði verið ráð fyrir. Hærri stýrivextir gera ríkisskuldabréf einnig að fýsilegri fjárfesting- arkosti, sem þýðir að fjárfestar verða líklegri til að færa eitthvað af fjár- munum sínum úr hlutabréfum og kaupa í staðinn ríkisskuldabréf. Minnk- uð ásókn í hlutabréf þrýstir verðum þeirra niður. Allt virkar þetta saman til að ýta hlutabréfaverði niður á við. SAMVERKANDI ÞÆTTIR Janet Yellen Af hverju lækka hlutabréf þegar stýrivextir hækka? ● Á fundi með blaðamönnum á sunnudag sagði Sigmar Gabriel, ráðherra efnahags- mála og varakansl- ari Þýskalands, að viðræður um TTIP- fríverslunarsamn- inginn milli Evrópu- sambandsins og Bandaríkjanna, „hefðu í reynd mis- heppnast, þótt enginn vilji viðurkenna það.“ Vísaði varakanslarinn til þess að eftir 14 samningslotur hafi ekki tekist að ná samkomulagi um einn einasta af þeim 27 köflum samningsins sem hafa verið til skoðunar. Sagði Gabriel einnig að samningarnir strandi á því að Evrópubúar vilji ekki lúta kröfum Bandaríkjamanna, að því er Reuters greinir frá. Ráðuneyti Gabriels hefur ekki beina aðkomu að samningsgerðinni, en um- mæli hans þykja líkleg til að torvelda viðræðurnar enn frekar. Evrópsk og bandarísk stjórnvöld hafa viljað ljúka við TTIP-samninginn á þessu ári en ólíklegt þykir að það takist. Þá hafa evrópskir leiðtogar hótað að hindra það að samningurinn verði sam- þykktur. Hefur t.d. François Hollande Frakklandsforseti sagst „aldrei geta samþykkt“ samninginn í núverandi mynd, ekki hvað síst eins og hann snertir landbúnað og menningu. ai@mbl.is Sigmar Gabriel Segir viðræður við BNA hafa misheppnast ● Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hefur skipað ráðherrum sínum að gera drög að aðgerðaáætlun fyrir hvert ráðu- neyti um hvernig staðið verði að út- göngu Bretlands úr ESB. Eiga ráðherr- arnir að kynna áætlanirnar á miðviku- dag. Telegraph greinir frá þessu og seg- ir ætlun May meðal annars að koma í veg fyrir að stjórnsýslan reyni að tefja fyrir útgöngunni. May heldur í framhaldinu til Kína á fund leiðtoga G20-ríkjanna og er þess að vænta að hún muni þar þurfa að svara spurningum um hvernig Bretland hyggist kveðja ESB. ai@mbl.is Þrýstir á ráðherra Theresa May

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.