Morgunblaðið - 29.08.2016, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is
Frábær
verð!
99.900
Verð
Bandsög 100mm
Stærð blaðs 1470x13mm.
Geta í 90° 100x150mm.
TT 388001
134.900
Verð
Bandslípivél 75x2000mm
Öflug bandslípivél með 3.000W mótor.
Band 75x2000mm
TT389001
Jean Ping, mót-
frambjóðandi Ali
Bongos, forseta
Gabon, í forseta-
kosningum þjóð-
arinnar, sagðist í
gær hafa verið
kjörinn forseti.
Kosningarnar
fóru fram á laugardaginn og verða
úrslitin tilkynnt á morgun. Fram-
bjóðendum er óheimilt samkvæmt
lögum að tilkynna um úrslit kosn-
inganna með þessum hætti. Bongo
forseti sagðist bíða rólegur eftir
niðurstöðu kosninganna. „Við
virðum lögin þannig að við bíðum
rólega eftir því að úrslitin eru til-
kynnt,“ segir Bongo sem hefur ver-
ið forseti síðan árið 2009.
GABON
Sagðist hafa
unnið kosningarar
Tim Kane, vara-
forsetaefni demó-
krata, fullyrðir
að Donald Trump
berjist fyrir gild-
um Ku Klux Klan.
Hann segir að
Bandaríkin verði
að gera allt til að
berjast á móti þeim gildum. Trump
svaraði því að Hillary hefði gleymt
því að hún hefði kallað Robert Byrd,
þingmann sem var meðlimur KKK,
læriföður sinn.
BANDARÍKIN
Segir Trump berjast
fyrir gildum KKK
Kólumbíska ríkið
og Byltingarher
Kólumbíu gerðu
vopnahlé í nótt og
bundu enda á 52
ára langt stríð sín
á milli.
Byltingarher-
inn tilkynnti ein-
hliða vopnahlé í júlí árið 2015, en
þetta er í fyrsta skiptið sem báðir
aðilar hafa lofað að leggja var-
anlega niður vopn sín.
KÓLUMBÍA
Sögulegt vopnahlé í
Kólumbíu í nótt
Jóhannes Tómasson
johannes@mbl.is
Tyrkir auka stuðning sinn við Sýrlandsstjórn og
voru skriðdrekar sendir inn í landið um helgina
til að efla aðgerðir gegn hersveitum Kúrda og
Ríkis íslams sem hófust fyrir fimm dögum. Á
sama tíma færist vindur í segl viðræðna á milli
Tyrklands og Sýrlands um vopnahlé.
Fæla Ríki íslams burt og stöðva Kúrda
Flutningur skriðdrekanna var enn eitt skrefið í
hernaðaraðgerðum Tyrklands innan Sýrlands,
sem miða að því að fæla veru Ríkis Íslam úr land-
inu, auk þess að stöðva sókn hersveita Kúrda.
Tyrkjaher hefur gert stöðugar loftárásir í Sýr-
landi um helgina. Á laugardaginn voru vopnabúr
og stjórnstöðvar sprengd, en að sögn ríkisfrétta-
stofunnar Anadolu voru þau í eigu hryðjuverka-
samtaka.
Ekki kom fram í tilkynningu fréttastofunnar
að hvaða hópi skotunum var beint.
Kúrdískir uppreisnarmenn í Sýrlandi segja að
tyrkneskar loftárásir hafi beinst að þeim á
laugardaginn. Hermenn Kúrda gerðu sprengju-
árás á tyrkneska skriðdreka og féll einn tyrk-
neskur hermaður. Var hann fyrsti tyrkneski her-
maðurinn til að láta lífið síðan hernaðaraðgerðir
Tyrkja í Norður-Sýrlandi hófust síðastliðinn mið-
vikudag.
35 óbreyttir borgarar fórust í gær
Hersveitir Tyrkja gengu enn lengra í gær.
Kvaðst Tyrkjaher hafa drepið 25 kúrdíska
hryðjuverkamenn eftir loftárásir sem gerðar
voru á bæinn Jarabulus. Að minnsta kosti 35
óbreyttir sýrlenskir borgarar fórust í árásunum
og er það fyrsta mannfall óbreyttra borgara Sýr-
lands síðan Tyrkir hófu aðgerðirnar.
Tyrkjaher kveðst reyna eftir bestu getu að
koma í veg fyrir mannfall borgara. „Allar mögu-
legar ráðstafanir hafa verið gerðar til að koma í
veg fyrir að óbreyttir borgarar á svæðinu sær-
ist,“ stóð í yfirlýsingu ríkisfréttastöðvarinnar.
Leggja allt í sölurnar
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, lof-
aði að barist yrði jafn hart gegn hryðjuverka-
mönnum Ríkis íslams og hermönnum kúrdískra
Sýrlendinga.
„Við munum gera hvað sem er til að fæla Da-
esh (Ríki íslams) úr Sýrlandi,“ sagði Erdogan í
gær. Hann sagði auk þess að Tyrkland væri jafn-
ákveðið í aðgerðum gegn hersveitum Kúrda.
Auka enn heraðgerðir
Tyrkjaher flutti skriðdreka til Sýrlands um helgina Loftárásir urðu 25 her-
mönnum Kúrda að bana Mikill fjöldi óbreyttra borgara fórst í árásum í gær
Óvissa ríkir meðal afganskra fjöl-
skyldna í Pakistan eftir að pak-
istönsk yfirvöld gáfu út tilmæli um
að víkja skyldi öllum þremur millj-
ónum hælisleitenda frá Afganistan
úr landi.
Margir íbúar Afganistan leituðu
hælis í Pakistan á áttunda ára-
tugnum og var þeim tekið opnum
örmum. En eftir hryðjuverkaárás-
irnar í New York 11. september
árið 2001 snerist hugur pakist-
önsku þjóðarinnar gegn Afganist-
an.
Hins vegar lá ekkert á að vísa
afgönsku hælisleitendunum úr
landi fyrr en í desember árið 2015
þegar pakistönsk yfirvöld gáfu
hælisleitendum skyndilega sex
mánaða frest til þess að yfirgefa
landið. Í júní síðastliðnum var
fresturinn framlengdur um aðra
sex mánuði, og var helstu landa-
mærum Afganistan og Pakistan
lokað öllum frá Afganistan sem
höfðu ekki ferðaskjöl meðferðis.
AFP
Flutningar Afganskir íbúar Pakistan búa sig undir að flytjast búferlum, margir eftir langa veru í landinu.
3 milljónum
gert að yfir-
gefa landið
Hersveitir líbísku sameiningar-
stjórnarinnar, sem nýtur stuðnings
Sameinuðu þjóðanna, brutu sér leið
inn í síðustu hverfi borgarinnar Sirte
sem lúta enn stjórn Ríkis íslams.
Sirte, sem var heimaborg einræðis-
herrans Muammars Gaddafi, var áð-
ur helsta strandvígi Ríkis íslams.
Hersveitir hliðhollar sameiningar-
stjórninni hófu orrustuna um borg-
ina fyrir rúmum þremur mánuðum.
Fyrr í ágúst náðu þær höfuðstöðvum
Ríkis íslams og króuðu vígamenn
þess af við hafið. Grimmilegir bar-
dagar áttu sér stað á götum Sirte í
gær, en lokaorrustan er nú hafin.
Undir Ríki íslams síðan 2015
Ríki íslams náði Sirte í júní árið
2015 og var óttast að ráðist yrði á
Evrópu frá borginni, sem liggur við
Miðjarðarhafið.
AFP
Skoti hleypt af Líbíski stjórnarherinn berst við Ríki íslams um Sirte.
Lokaorrustan
um Sirte er hafin
Ríki íslams missir tökin á borginni