Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.08.2016, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016 Fjölmiðlar hafa undan- farið fjallað um breytingu á lyfjalögum í þá veru að ljósmæður og hjúkrunar- fræðingar fái leyfi til þess að ávísa lyfjum. Hvað varðar ljósmæður er um það að ræða að þær geti ávísað sérstaklega getnaðar- varnarlyfjum til hraustra kvenna. Ennfremur að ljós- mæður sem sinna heimafæð- ingum hafi auðveldari aðgang að lyfjum sem þarf að nota við heimafæðingar til að fyllsta öryggis sé gætt, eins og lyf sem stöðva alvarlega blæð- ingu eftir fæðingu. Í umræð- unni varðandi getnaðar- varnarlyf hafa ýmis sjónarhorn komið fram, t.d. að fóstureyðingum ungra kvenna hafi fækkað eða staðið í stað og að fæðingum ungra kvenna hafi fækkað. Ljósmæður fagna því að fóstureyðingum ungra stúlkna og kvenna hefur ekki fjölgað á liðnum árum þó að- heildarfjöldi hafi haldist nokkuð stöðugur (sjá töflu á vef Embættis landlæknis http://www.landlaeknir.is/ utgefid-efni/skjal/item13094/ ). Umræða um það hvort gefa ætti fleiri heilbrigðisstéttum leyfi til að ávísa ákveðnum lyfjum hefur farið fram meðal annars hjá Embætti land- læknis sem sendi frá sér ályktun varðandi efnið nýlega og styður þær hugmyndir að ljósmæður geti ávísað ákveðnum lyfjum sem falla innan sérsviðs þeirra. Ljós- mæður hafa sótt það í mörg ár að fá leyfi til að ávísa ákveðnum lyfjum fyrir sína skjólstæðinga. Málið hefur aldrei komist alla leið í reglu- gerð eða lög og ekki ljóst hvers vegna svo er. Heyrst hafa þau rök að menntun ljósmæðra sé ekki jafn löng og lækna og það sé ekki góður kostur að færa verkefni til lægra mennt- unarstigs nema það geri meira gagn en ógagn. Hér verður að benda á að ljós- mæður ljúka sex ára námi í háskóla og til þess að verða sérfræðingar mennta ljós- mæður sig í að minnsta kosti tvö ár til viðbótar. Benda má á að læknanem- ar fá tímabundið leyfi til þess að ávísa lyfjum m.a. getn- aðarvarnalyfjum þegar þeir leysa t.d. heimilislækna af á heilsugæslustöðvum á sum- arleyfistíma og því má spyrja sig hversvegna ljósmóðir, sem hefur sex ára háskólamenntun, jafnvel tveggja ára viðbótarnám á sínu sviði, og reynslu af því að starfa með konum á barn- eignaraldri geti ekki fengið slíkt leyfi? Að auki hefur verið áhersla á að efla grunnþjón- ustu í heilbrigðiskerfinu og því má einnig spyrja hvers vegna heilbrigð kona, sem vill stjórna sínum barneignum, þarf að nota til þess sérfræði- þjónustu. Ljósmæður hafa góða þekkingu á heilbrigði kvenna á frjósemisskeiði og konur á því skeiði eru líka sá hópur sem ljósmæður sinna á degi hverjum. Ljósmæður hitta nær allar konur í barneign- arferlinu, bæði á meðgöngu í fæðingu og eftir fæðinguna. Þær þekkja vel til konunnar eftir að hafa sinnt henni í gegnum alla meðgönguna, jafnvel nokkrar meðgöngur. Það liggur því mjög beint við að hraust og heilbrigð kona geti kosið það að hafa sam- band við ljósmóðurina sína og fá hjá henni ráðgjöf um getn- aðarvörn og síðan lyfseðil óski hún þess. Það er ekki sjúk- dómur að vilja stjórna barn- eignum og því hvenær heppi- legt sé að eignast barn. Að lokum, Ljósmæðrafélag Íslands starfar náið með Námsbraut í ljósmóðurfræði og með ljósmæðrafélögum á Norðurlöndunum varðandi þennan málaflokk. Nú er staðan í þeim löndum, sem við berum okkur gjarnan saman við og störfum með, sú að ljósmæður hafa víða réttindi til að ávísa getnaðarvarnarlyfjum. Í Sví- þjóð hafa ljósmæður haft slíka heimild til margra ára og í Noregi var heimild ljós- mæðra til að ávísa getnaðar- vörnum nýlega rýmkuð enn frekar. Menntun íslenskra ljós- mæðra er með því besta sem gerist í heiminum og því er einkennilegt að við nýtum ekki menntun og færni ís- lenskra ljósmæðra betur. Al- þjóðlegar stofnanir á borð við WHO hafa mælt með því að nýta sem best menntun heil- brigðisstétta. Það er tími til kominn að Ísland fylgi þeirri þróun sem er orðin í kringum okkur og feti í fótspor nágrannaþjóða okkar og gefi ljósmæðrum leyfi til að ávísa lyfjum innan þeirra sérsviðs. Annað er gamaldags hugsanagangur, færum okkur til ársins 2016. Vegna fyrirhugaðra breytinga á lyfjalögum Eftir Ás- laugu Vals- dóttur og Hildi Krist- jánsdóttur » Ljósmæður hafa sótt það í mörg ár að fá leyfi til að ávísa ákveðnum lyfjum fyrir skjól- stæðinga sína. Áslaug Valsdóttir Áslaug er formaður Ljós- mæðrafélags Íslands, Hildur er formaður Norðurlanda- samtaka ljósmæðra og dósent við Háskóla Íslands. Hildur Kristjánsdóttir Á undanförn- um árum hefur fámennur en há- vær hópur fólks, sem fer fram með slagorðið „No Borders (engin landa- mæri), ítrekað reynt að koma í veg fyrir að ólöglegum inn- flytjendum sé vísað af landi brott. Hópurinn boðar reglu- lega til mótmæla gegn því að lögregla framfylgi löglegum ákvörðunum yfirvalda. Skiptir þá ekki máli þótt mótmæl- endur megi telja á fingrum beggja handa, því vitað er að fjölmiðlar munu segja fréttir af mótmælunum og mæta samviskusamlega á vettvang atburðanna. Slíkar fréttir helgast tæplega af áhuga manna á mótmælunum, heldur miklu frekar af áhuga fjöl- miðla á viðbrögðum alþingis- og embættismanna við slíkum mótmælum. Þegar sagðar eru fréttir af þessum toga er mál- flutningur iðulega í höndum lögmanna hinna ólöglegu inn- flytjenda, sem fá greitt fyrir úr vasa okkar skattborgara og í því sambandi erum við ekki að tala um neina „vasapeninga“, heldur stórfé. Nýlega var upp- lýst að lögfræðikostnaður rík- isins vegna hælisleitenda hlypi á rúmlega 174.000.000 kr. frá árinu 2014 til loka apríl 2016. Þá er ótalinn kostnaður vegna húsnæðis, fram- færslu og heil- brigðisþjónustu o.s.frv. Þessum fjármunum verð- ur ekki eytt tvisvar. Tilraunir ná- grannalanda okkar enduðu með ósköpum Krafa þessa fólks er sú, að eftirlit á landamærum Íslands verði lagt niður og að stjórn- völd hætti að styðjast við regl- ur ESB, sem fjalla um í hvaða landi skuli leyst úr hæl- isumsóknum (Dyflinnarreglu- gerðin). Eðlilega hefur stærst- ur hluti þjóðarinnar hrist hausinn yfir þessum kröfum, þótt enginn viti hve margir myndu vilja sækja hér um hæli. Þeir eru þó án nokkurs vafa fleiri en við ráðum við. Og þótt við lifum ekki öll við alls- nægtir telja hælisleitendur að íslenskt velferðarkerfi sé eft- irsóknarvert og að hér drjúpi smjör af hverju strái, á þeirra mælikvarða. Þær kynslóðir Ís- lendinga sem byggt hafa upp velferðarkerfið vita hins vegar að það þolir ekki að á skömm- um tíma streymi hingað þús- undir manna sem útvega þarf húsnæði, framfærslu, mennt- un og heilbrigðisþjónustu. Samfélagstilraunir af þess- um toga hafa sem kunnugt er endað með ósköpum í ná- grannalöndum okkar og stjórnmálamenn eru að bregð- ast við. Skiptir þá ekki máli þótt um miklum mun fjöl- mennari samfélög sé að ræða. Hvort tveggja Svíar og Þjóð- verjar gáfust upp á síðasta ári. Ekki var unnt að bjóða öllum þeim einstaklingum húsaskjól, sem sóttu þar um hæli og enga vinnu var að fá fyrir mikinn fjölda þeirra. Svíar neyddust þess vegna til þess að taka upp landamæraeftirlit að nýju. Sama gerðu Danir. Þá höfðu Þjóðverjar forgöngu um að semja við Tyrki um að þeir flóttamenn sem koma austan að verði áfram þar. Óþarft er að rekja þau skelfilegu áhrif sem þessar samfélagstilraunir hafa haft á öryggi almennings í Evrópu. Píratar vilja gera sína eigin tilraun Nú hefur það gerst, að Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur lagst á sveif með fólkinu í „No Bor- ders“. Helgi Hrafn vill að ís- lensk stjórnvöld hætti að styðjast við Dyflinnarreglu- gerðina og að öll mál hælisleit- enda verði tekin til efnislegrar meðferðar. Ástæðan sem Helgi Hrafn gefur upp er sú að það kosti svo mikið að hafna umsóknum hælisleitenda. Áð- ur en fylgi Pírata tók að rísa hefði þjóðin hrist hrausinn yfir þessari afstöðu Helga Hrafns með sama hætti og hún hefur hrist hausinn yfir kröfum þeirra sem æpa „engin landa- mæri“. Í ljósi þess fylgis sem Píratar mælast nú með í skoð- anakönnunum verður hins vegar að taka afstöðu Helga Hrafns alvarlega. Fullyrða má að hugmyndir hans um að kasta Dyflinnar- reglugerðinni fyrir róða eiga sér ekkert fylgi meðal þorra Íslendinga. Í síðasta mánuði var nær fjórða hvert mál af tíu afgreitt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Hugmyndir Helga Hrafns gætu því valdið því að taka þyrfti efnislega afstöðu til ná- lægt tvöfalt fleiri umsókna. Í frétt mbl.is um málið 17. þessa mánaðar er haft eftir þing- manninum: „Ég vil vita hvað það kostar báknið að halda fólki frá landinu í stað þess að taka fleiri mál til efnismeð- ferðar.“ Helgi Hrafn hefur áð- ur ýjað að því að opna eigi landamærin. Ábyrgðarleysið er algjört. Þetta er sú sam- félagstilraun sem er í boði Pí- rata hljóti þeir brautargengi í næstu kosningum. Og í þeirri tilraun verður sömu krónunni ekki eytt tvisv- ar. Samfélagstilraun í boði Helga Hrafns pírata Eftir Gústaf Níelsson » Þær kynslóðir Íslendinga sem byggt hafa upp vel- ferðarkerfið vita hins vegar að það þolir ekki að á skömmum tíma streymi hingað þús- undir manna Gústaf Níelsson Höfundur er sagnfræðingur. ✝ Janus Haf-steinn Eng- ilbertsson fæddist í Súðavík 20. des- ember 1942. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suður- nesja 19. ágúst 2016. Hann var sonur hjónanna Einars Engilberts Þórð- arsonar frá Kambsnesi við Álftafjörð og Ásu Valgerðar Eiríksdóttur frá Snæfjöllum við Ísafjarð- ardjúp. Hann var yngstur af 11 systkinum. Hann kvæntist Gunnellu Jó- hannsdóttur árið 1962 og hefðu þau átt 54 ára brúð- kaupsafmæli 2. september á þessu ári. Þau eignuðust sjö börn. Þau eru: 1) Sigtryggur, f. 9. júní 1961, kvæntur Jó- hönnu Halldórsdóttur. 2) Eygló, f. 20. júní 1962. 3) Agn- ar, f. 30. júlí 1963, kvæntur Sigurborgu Þorvaldsdóttur. 4) Jóhann Óttar, f. 16. maí 1965, d. 27. mars 1985. 5) Lovísa, f. 18. júlí 1966, gift Massimo Luppi. 6) Hafdís, f. 6. október 1967, gift Karli Gústafi Davíðs- syni. 7) Alda Úlf- ars, f. 1. febrúar 1971, gift Jóni Þór Maríussyni. Jó- hann Óttar var ættleiddur til ynd- islegra vina við fæðingu en var alltaf hluti af barnahópnum. Hafsteinn átti einnig 22 barnabörn og 10 barnabarnabörn og fór barna- hópurinn ört stækkandi því hann átti von á tveimur barna- barnabörnum á næsta ári og einu barnabarnabarnabarni núna á næstu vikum. Hafsteinn vann við sjó- mennsku nær allt sitt líf ásamt ýmsu öðru. Hann var mikið ljóðskáld og snilldar penni og er hans þriðja ljóðabók að koma út á næstu dögum. Hann var einnig mjög trúaður mað- ur og var einn af stofnendum KEFAS. Útför Hafsteins fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 29. ágúst 2016, og hefst athöfnin kl. 13. Elsku pabbi, ég sit hér og skrifa þér kveðjubréfið og mig vantar orð. Vildi að ég hefði þína náðargáfu að geta skrifað og ort það allra fallegasta sem ég hef lesið og á ég mörg ljóð og fallega skrifuð kort sem ég hef fengið frá þér frá því að ég var lítil stelpa. Þú varst svo duglegur að segja mér í skrifum hvað þú elskaðir mig . Mig langar að segja þér hversu þakklát ég er fyrir þig, þú varst kletturinn minn og fyrirmynd. Alltaf skein blíðan og góð- mennskan úr andlitinu þínu og þó þú hafir verið fámáll oft á tíð- um þá þurftir þú ekki að segja neitt, ég las það í augunum þín- um. Síðustu dagana þegar þú lást á spítalanum og ég hvíslaði að þér allt sem ég vildi segja þér veit ég að þú heyrðir í mér því þú kreistir höndina mína. Það er svo margt sem ég get sagt um þig hér, elsku pabbi, en ætla að láta eitt af ljóðunum sem eru að koma út í bókinni þinni fylgja með, því það segir allt um þig og þinn kærleik sem þú barst til fólksins. Hvíldu í friði, elsku pabbi, ég veit að þú hefur fengið hásæti á himnum og ég ætla að hafa orðin þín í huga þegar þú sagðir mér að fagna þegar þú kveddir því þú værir að fara „heim“. Þú fæðist sem manneskja sem hefur tilfinningar og þrár stöðugar langanir til að lifa lífinu í velgengni og hamingju og vonar að það rætist En til þess að svo verði þarftu að lifa lífinu þannig að þú hafir elsku til meðbræðra þinna og berir umhyggju fyrir lítilmagn- anum Þá muntu öðlast miskunnsemi sem kveikir hjá þér gjafmildi og þú minnt upplifa leyndardóm lífsins; að sælla er að gefa en þiggja Þá mun styrkur þinn sem þú öðlast með reynslunni gefa þér þolinmæði til að takast á við allt mótlæti og gefa þér þrautseigju og einurð til að horfast í augu við dagana sem oftast eru vondir og það mun færa þér hamingju (Hafsteinn Engilbertsson) Þín dóttir, Alda. Elsku pabbi. Elsku kletturinn okkar. Að sitja hérna ein um kvöld og ætla að skrifa kveðjuorð til þín er mér um megn. Ég eyddi mörgum dögum og nóttum í að kveðja þig, faðma þig, strjúka, kyssa og nudda hita í mjúku fæturna þína, fætur sem alltaf stóðu styrkir og öruggir fyrir okkur fjölskylduna þína. Svo kom að því að þeir fóru að gefa sig, hægt og bítandi, og þá þurftir þú stoð okkar og styrk. Það var þér ekki auðvelt, ég veit það, en mamma gaf þér allt sem hún á svo þú héldir öllu þínu stolti til síðasta andardráttar. Stoltur varstu, stoltur af mömmu, okkur börnunum ykkar og öllum afkomendunum. Pabbi, fallegi og góði pabbi minn, sem kenndir mér svo margt um svo marga hluti án þess að vita af því. Nærvera þín var svo hlý og einlæg. Það er það sem þú varst, hlýr, einlægur, ákveðinn, skemmtilegur og heið- arlegur. Ég vona að einhverjir af þínum góðu kostum búi í mér. Núna ertu kominn til Jesú, Jesú sem þú elskaðir og hlakk- aðir til að fá að vera hjá. Trú þín var sterk og falleg, þess vegna veit ég að glaður gengur þú núna með Jesú og ég veit að það hefur verið tekið fagnandi á móti þér. Pabbi, takk fyrir að hafa verið þú, takk fyrir að hafa elskað mig og fjölskylduna mína svona fal- lega, takk fyrir að hafa verið vin- ur minn. Pabbi, ég elska þig. Góða ferð. Hafdís. Elsku Haddi minn, mig langar að þakka þér fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga með þér margar skemmtilegar stundir í gegnum árin. Þú varst einstakur maður, hlýr að utan sem innan, fjölskyldurækinn og alltaf tilbú- inn að hjálpa ef eitthvað vantaði. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki sest niður með þér, hlustað á þig segja sögur og ræða um allt milli himins og jarðar, ég tala nú ekki um fótboltann. Þú hefur gefið mér svo margt og ert fyr- irmyndin mín. Ég er heppin að eiga svona góðan tengdapabba og vin. Takk fyrir allt. Guð geymi þig, Haddi minn. Þinn tengdasonur, Karl Gústaf Davíðsson. Janus Hafsteinn Engilbertsson  Fleiri minningargreinar um Janus Hafstein Eng- ilbertsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.