Morgunblaðið - 29.08.2016, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér finnst þú alltaf skjóta rétt
framhjá markinu. Kannski er það af því að
þig langar til að vera innan um fólk sem þú
þekkir svona vel til margra.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu þolinmóður gagnvart vini þínum
því ekki er allt sem sýnist. Sannfæring þín
getur verið afdráttarlaus en hún gerir þig
heillandi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hugsaðu þig vel um áður en þú læt-
ur til skarar skríða. Þú átt of auðvelt með að
hrífast af fólki svo farðu þér hægt í að velja
þér trúnaðarvini, sérstaklega af hinu kyninu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Græskulaust gaman er þér að skapi
og það er sjálfsagt að lífga upp á tilveruna
með þeim hætti. Aðrir líta hann jákvæðari
augum en hann gerir sjálfur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt gaman sé að breyta til er fáránlegt
að gera það breytinganna vegna. Þig langar
að kúvenda lífinu. Ef vinir og ættingjar leyfa
það ekki verður þú að tala alvarlega við þá,
þangað til þeir skilja þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mörkin milli raunveruleika og ímynd-
unar hafa máðst, en það gerir kannski ekkert
til. Jafnvel yfirborðslegar samræður geta
vakið hjá þér sterkar tilfinningar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Forðastu rifrildi við ástvini, ekki síst for-
eldra og maka. Njóttu félagsskapar hópsins
með bröndurum sem bara þið skiljið,
leyndarmálum og ykkar eigin látbragði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samvinna er það sem þarf til
þess að klára verkið í tíma. Taktu því engu
sem sjálfsögðum hlut heldur gaumgæfðu
málin frá öllum hliðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er skelfilegt hvað slúðrið get-
ur eyðilagt. Reyndu að láta þetta ekki slá þig
út af laginu. Gott! Það er merki um að þú
sért að lifa lífinu og ýtir þér áfram í þroska.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vinalegt eðli þitt kemur að góðum
notum í dag. Allt gengur upp rétt eftir að þú
hefur hugleitt að gefast upp og ganga í
burtu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt það til að draga þig í hlé til
að forðast árekstra við annað fólk. En gott
svar getur líka vakið upp fleiri nýjar spurn-
ingar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú gætir fundið fyrir spennu á milli
þín og þinna nánustu. Haltu áfram að láta
sem allt sé í lagi, alveg eftir dagskránni.
Mundu bara að hóf er best á hverjum hlut.
Karl Frímannsson sendi okkurPétri syni mínum háttatal og
nokkur rímnaerindi, sem hann
hafði fundið í skjalabunka hjá sér
ekki alls fyrir löngu, og hafði feng-
ið hjá Gísla Jónssyni mennta-
skólakennara árið 1977. Ekki
kvaðst hann vita fyrir víst, hvort
Gísli hefði gert plaggið eða Jakob
Ó. Pétursson. Mér finnst ég
þekkja handbragð míns gamla
kennara Gísla á skjalinu en vel má
Jakob hafa komið að því líka. Til
gamans tek ég nokkrar vísur og
birti í Vísnahorni. Fyrst kemur
stefjahrun eftir Björn á Botna-
stöðum:
Viltu smella kossi á kinn,
kæra Eyjalín,
og vita hvort það vekur minn
veiðihug til þín.
Indriði á Fjalli orti dverghendu:
Ekkert gott um Odd ég hermi,
eitt er samt:
Sína lofar hann upp í ermi
öllum jafnt.
Þessi staka eftir Pál J. Árdal
varð fleyg á sínum tíma, en hún
var ort þegar rætt var um það á
Alþingi að taka upp þegnskyldu-
vinnu með þeim rökstuðningi að
það væri hollt unglingum. Háttur-
inn er gagaraljóð:
Ó, hve margur yrði sæll
og elska mundi landið heitt
mætti hann vera í mánuð þræll
og moka skít fyrir ekki neitt.
Undir sama hætti er þetta hljóm-
mikla erindi úr Griðkurímum:
Ungdóms viskan oft er ring,
enginn hlýðir bernskum dreng,
tungan hvorki töm né slyng
að tengja saman mærðarstreng.
Sigurður Breiðfjörð orti fyrstur
undir þessum rímnahætti, – ný-
hendu:
Engir menn því orkað fá
og aldrei heldur munu kunna
að halda kvenna hjörtum frá
honum sem þær vilja unna.
Oft þykjast menn finna tilsvörun
í samtímanum þegar þeir heyra
gamlar vísur. Jóhannes úr Kötlum
orti þessa valhendu:
Þegar bágast baslið er með búskapinn
hnippir illa sérhvert sinn
samviskan í Steingrím minn.
Þessi vikhenda er eftir Sigurð
Breiðfjörð:
Þú mér lánað lukku hefur mína.
Ég hef án þín auðnukjör
engin fram að tína.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr háttatali og nokkur
rímnaerindi
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga sér
óskastjörnu.
HNÚI VAR ALDREI STERKUR
Í STÆRÐFRÆÐI.
„AUÐVITAÐ ER AÐGERÐIN „ALGJÖRLEGA
NAUÐSYNLEG“. ÉG KEMST EKKI Í
SUMARFRÍ ÁN HENNAR.“
EINN DAGINN VIL ÉG
GANGA Á TUNGLINU!
KOMDU TIL BAKA MEÐ
PÍTSU MEÐ AUKAOSTI.
FLOTT.
HRÓLFUR... ÉG ER AÐ
MISSA MINNIÐ...
ÞETTA GÆTI
KOMIÐ MÉR VEL!
ÞAÐ ER HROKKIÐ
AFTUR UM MÁNUÐ...
...ÞEGAR ÞÚ LOFAÐIR AÐ
GERA ÖLL HÚSVERKIN Á
LISTANUM!
EÐA
EKKI!
HANN ER TVÖFALT
STÆRRI EN ÞÚ OG
HELMINGI YNGRI.
EINFALT DÆMI.
Eldheimar, sýning og safn minningaum eldgosið í Eyjum árið 1973,
voru viðkomustaður Víkverja í Eyja-
ferð hans í síðustu viku. Frábærlega
hefur tekist til með uppsetningu sýn-
ingar þessarar, hvar myndir, hljóð og
stafræn tækni skapa hughrif svo
safngestum finnst þeir vera staddir á
vettvangi. Lifandi myndir rúlla á
skjá, í hljóðleiðsögn heyrast skellir og
drunur frá eldstöðvunum og Jón Múli
les fréttir útvarpsins af eldgosinu.
Eldheimar eru áhrifarík sýning og
þarna eru að mati Víkverjasett ný
viðmið um hvernig slíkar skuli vera.
x x x
Í Eyjum hafa á síðustu árum veriðopnuð ný kaffihús, þar eru góðar
verslanir og bærinn er vel hirtur og
þrifalegur. Lagður hefur verið góður
göngustígur upp á Eldfell og verið er
að breyta gömlu vinnsluhúsi Fiskiðj-
unnar til samræmis við nýtt hlutverk.
Svona má áfram telja og allt helgast
þetta af þeirri fjölgun ferðamanna til
Eyja, sem fylgdi tilkomu Landeyja-
hafnar. Frakkar, Þjóðverjar, Ítalir og
Bretar voru á kaffihúsinu. Þar voru
líka japanskir spekúlantar að kynna
sér sjávarútveginn, enda eru Vesta-
mannaeyjar fyrst og síðast verstöð.
x x x
Raunar er heilmikil drift í sjávar-vegi í Eyjum um þessar mundir;
Vinnslustöðin er að færa út kvíar og
fjölmennir flokkar iðnaðarmanna eru
á svæðinu. Mikið umleikis, langir
vinnudagar og rífandi góð laun.
x x x
En hvað mætti gera betur í Eyjum?Víkverja þætti tilvalið að á Bæj-
arbryggjunni svonefndu, austast á
hafnarsvæðinu, væri útimarkaður
með sjávarfangi. Einnig mætti
Strandvegur, neðst í bænum, vera
meira aðlaðandi. Og auðvitað verður
svo í fyllingu tímans. Hvorki Róm né
Eyjar voru byggðar á einum degi.
x x x
Í siglingu til Eyja var pus og Herj-ólfur vaggaði á öldunum. Undir
kvöldið var orðið miklu lygnara svo
skipið vaggaði varla. Víkverji sneri
heim ánægður eftir góðan dag.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Ég skal sýna yður, hvern á að hræðast.
Hræðist þann er hefur vald til að
deyða og að því búnu varpa í helvíti.
Já, ég segi yður, hræðist hann.
(Lúk. 12:5)