Morgunblaðið - 29.08.2016, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 2016
Rapparinn Vic Mensa, sem mun
meðal annars hita upp fyrir Justin
Bieber á tónleikum hér á landi í
september, var hent úr flugvél Am-
erican Airlines um helgina. Þetta
var í annað skiptið á þremur mán-
uðum sem tónlistarmanninum er
hent úr flugvél fyrir óspektir en
Mensa var allt annað en sáttur við
framferði flugfélagsins að þessu
sinni. Að hans eigin sögn var honum
hent út úr vélinni eftir að hafa sagt
starfsmanni fyrirtækisins að passa
hvað hann segði við kvenkyns far-
þega en að mati Mensa var kauði
einkar dónalegur við farþegana.
Flugfélagið American Airlines gaf
út tilkynningu þar sem það kveðst
harma atburðinn eftir að rapparinn
hvatti alla sína fylgjendur til að snið-
ganga fyrirtækið.
Það var þó flugfélagið United
Airlines sem henti honum úr flugvél
sinni í fyrra skiptið en Mensa kvaðst
þá hafa verið að tala við þunglyndan
aðdáanda í símann þegar flugvélin
hafði ekki einu sinni tekið á loft.
Starfsmenn flugfélagsins vísuðu
honum úr vélinni fyrir notkun sím-
ans.
Rappari Vic Mensa mun hita upp fyrir Justin Bieber í september.
Vic Mensa vísað úr flugvél
BEN-HUR 8, 10:35
NÍU LÍF 2, 4, 6
HELL OR HIGH WATER 5:50, 8, 10:10
SAUSAGE PARTY 10:30
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 2, 4, 6
LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ENS.TAL 4
JASON BOURNE 8
ÍSÖLD 2D ÍSL.TAL 1:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 2
Lærimeistarinn
í Branding
Staður: Gamla bíó
Tími: Þriðjudagur 20. sept.
kl. 8.30-11.30
Fyrirlesari: Kevin Lane Keller,
Prófessor við
Dartmouth College
Skráning á imark.is
Kevin Lane Keller, prófessor við
Dartmouth College í Bandaríkjunum,
er að koma til landsins á ný í sept–
ember, en hann vakti mikla lukku
hér á landi árið 2010 á fjölsóttum
fyrirlestri um vörumerkjastjórnun.
Keller fjallar á morgunfundi í
Gamla bíói um grundvallaratriði
vörumerkjastjórnunar og skoðar um
leið vörumerkið Ísland.
Keller nýtur virðingar um allan heim
fyrir rannsóknir sínar, þ.á m. vinnu
sína með dr. Philip Kotler.
mbl.is
alltaf - allstaðar
»Rokkhátíð æskunnar var haldin í fyrsta skipti á
Kex hosteli í gær en þar var boðið upp á tónlist-
aratriði, gagnvirka fræðslu og vinnusmiðjur.
Krakkar á ýmsum aldri fengu að leika sér með
hljóðfæri búin til úr ávöxtum, smíða sinn eigin
hljóðnema, gera barmmerki, vinna raftónlist og
fleira. Tónleikarnir fóru fram í bókahorninu og
stigu þar á stokk meðal annars Meistarar dauðans
og Hasar Basar.
Rokkhátíð æskunnar haldin með pompi og prakt á Kex hosteli
Einbeiting Allir aldurshópar fundu eitthvað við sitt hæfi og skein einbeiting af svip stúlknanna.
Tónlistarfólk Hæfileikaríkt fólk steig á stokk á Rokkhátíðinni.
Áhugi Þessir létu ekkert fram hjá sér fara og hlustuðu af fullri athygli.
Morgunblaðið/Golli
Trommuleikur Þessi á framtíðina fyrir sér.