Morgunblaðið - 29.08.2016, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 242. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Bannar flutning á laginu sínu
2. Anna Lára Orlowska er …
3. Þetta vissir þú ekki um skapahár
4. Einstök reynsla og mjög jákvæð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kristinn E. Hrafnsson býður gest-
um upp á leiðsögn um sýningu sína
í höfuðstöðvum Arion banka í
Borgartúni 19 á morgun kl. 17.15.
Mun hann ganga með gestum um
sýninguna og segja frá helstu verk-
um sínum. Eftir leiðsögnina verður
boðið upp á léttar veitingar og
óformlegt spjall. Áhugasamir þurfa
að skrá komu sína á vef bankans.
Sýningin stendur til 2. september
nk. og er opin gestum og gangandi
alla virka daga kl. 9-16.
Kristinn E. Hrafnsson
verður með leiðsögn
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjórði norræni dansvettvangurinn
Ice Hot Nordic Dance Platform
verður haldinn í Kaupmannahöfn
30. nóvember til 4. desember í ár.
Samstarfsaðilar Ice Hot halda
einnig opinn fund um alþjóðlegt
starf í öllum norrænu höfuðborg-
unum til undirbúnings fyrir dans-
vettvanginn og verður fyrsti fund-
urinn í Reykjavík 29. ágúst í
tengslum við Everybody’s Specta-
cular-hátíðina.
Lene Bang Henn-
ingsen, Bush Harts-
horn og Kirre Arne-
berg tala á fundin-
um og Ása
Richardsdóttir, einn
af skipuleggjendum
fundarins, verður um-
ræðustjóri.
Samtal um hið alþjóð-
lega í Reykjavík
Á þriðjudag Austan og síðan norðaustan 8-15 m/s, hvassast á
Norðvesturlandi. Rigning um allt land og hiti 8 til 13 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag Breytilegar áttir og skúrir.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt og dálítil væta á Norðvestur-
landi um tíma en léttir síðan til fyrir norðan og austan. Vaxandi
austanátt og fer að rigna syðst á landinu. Hiti 6 til 14 stig.
VEÐUR
Íslandsmeistarar FH eru
með sjö stiga forskot á
toppi Pepsi-deildar karla í
knattspyrnu þegar fimm
umferðum er ólokið. FH
hafði betur á móti Víkingi
Ólafsvík í gær. Valur hélt
sigurgöngu sinni áfram með
sigri gegn KR, Skagamenn
eru á bullandi siglingu eftir
sigur á Víkingi Reykjavík
og Fylkismenn fengu á
sig jöfnunarmark í
uppbótartíma. »2-8
Meistararnir eru
í sterkri stöðu
Íslandsmeistarar KR í DHL-deildinni í
körfuknattleik hafa fengið gríðarlega
góðan liðsstyrk fyrir komandi leiktíð
en landsliðsmaðurinn
Jón Arnór Stefáns-
son er kominn
heim. Jón Arnór
samdi til tveggja ára
við Vesturbæjar-
stórveldið. »1
Jón Arnór til Íslands-
meistaranna
Íslandsmeistarar Breiðabliks tryggðu
sér sæti í 32 liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu í knattspyrnu með því
að vinna stórsigur á velska liðinu
Cardiff Metalist, 8:0, í lokaumferð-
inni í riðlakeppninni í Wales í gær.
Blikar höfnuðu í efsta sætinu með sjö
stig úr þremur leikjum og verða í
hattinum þegar dregið verður til 32
liða úrslitanna í vikunni. »1
Blikakonur fóru áfram
í Meistaradeildinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Segja má að líf Bandaríkjamanns-
ins Jennifer Grace Smith hafi tekið
miklum breytingum þegar hún
ákvað skyndilega að flytja til Ísa-
fjarðar, eftir að hafa búið í þéttbýl-
um stórborgum allt sitt líf.
Hún hafði hvergi fest rætur fyrr
en hún hreifst af Vestfjörðum, en
þar tekst henni meðal annars að
svala helsta áhugamáli sínu, rann-
sóknum á matvælakerfum, sér-
staklega aðgangi að ferskum mat,
einkum fiski.
Hefur komið víða við
„Ég kem upprunalega frá stórri
borg í Bandaríkjunum, Chicago, og
stundaði síðar nám og vann í Pek-
ing í Kína,“ segir Jennifer, en þar
áður hafði hún stundað nám í
Frakklandi, í frönskum bókmennt-
um. Þar tók hún einnig námskeið í
kínversku og kínverskum bók-
menntum og fluttist að námi loknu
til Kína, þar sem hún útskrifaðist
með meistaragráðu í alþjóðasam-
skiptum.
Síðan fluttist hún til Georgíu þar
sem hún starfaði við alþjóðasam-
skipti tengd Bandaríkjunum og
Kína.
„Ég hef alltaf haft þessa útþrá og
hafði alltaf hugsað mér að búa í
stórborgum,“ segir hún.
Tekið opnum örmum
á Ísafirði
Þegar Jennifer heimsótti Ísafjörð
árið 2011 sem ferðamaður varð ekki
aftur snúið og fluttist hún þangað
árið 2012.
Á Ísafirði stundaði hún nám við
Háskólasetur Vestfjarða og útskrif-
aðist úr haf- og strandsvæðastjórn-
un, sem hún kennir nú sjálf við Há-
skólasetrið.
Einnig hefur hún starfað í hluta-
starfi sem leiðsögumaður í ferða-
þjónustunni, en sífellt fleiri
skemmtiferðaskip hafa nú viðkomu
á Ísafirði. Tungumálakunnáttan
kemur sér einkar vel þar, að sögn
Jennifer.
Vinnur líka í fiskbúð
Einnig hefur hún í hlutastarfi
staðið vaktina hjá Kára Þór Jó-
hannssyni í Fiskbúð Sjávarfangs.
„Þetta er lítið samfélag, en það
er mikið líf hér. Maður situr aldrei
auðum höndum og fólkið hér býður
alla velkomna, ég hafði ekki upp-
lifað þetta. Ég er hamingjusöm
hérna á Ísafirði,“ segir Jennifer
Grace Smith.
Útþráin leiddi til Ísafjarðar
Unir sér vel fyr-
ir vestan eftir líf í
stórborgunum
Ljósmynd/Úr einkasafni
Ánægð Jennifer Smith á fjallstindi ofan Skutulsfjarðar. Hún starfar nú við Háskólasetur Vestfjarða, þar sem hún
kennir haf- og strandsvæðastjórnun. Hún hefur ferðast um víða veröld, enda alltaf verið haldin útþrá.
Rannsóknir Jennifer Smith hafa einkum snúið að innlendum
fiskmarkaði á Íslandi. „Þegar ég kom hingað varð ég sífellt
áhugasamari um dreifbýl svæði. Þegar ég kom til Ísafjarðar
fannst mér áhugavert að fólk, sérstaklega ferðamenn, átti
erfitt með að nálgast ferskan fisk,“ segir hún. Svonefndir
gjafamarkaðir hafi víða skapast á landsbyggðinni, þar sem
þeir sem eigi skyldmenni sem vinna á sjó hafi góðan aðgang
að fiski. Þeir sem hafi hann ekki, geti síður náð sér í fisk enda víða ekki
fiskbúðir til staðar í smærri plássum. Jennifer skrifaði ritgerð um þessi
mál ásamt Catherine Chambers, sérfræðingi hjá Þekkingarsetri Blöndu-
óss, og gerði þeim einnig skil í meistaraverkefni sínu.
Misjafn aðgangur að fiski
MEISTARAVERKEFNI UM FISKVERSLUN Á VESTFJÖRÐUM