Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.09.2016, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.9. 2016
MATUR Fyrirrennarar Obama,
Hillary Clinton og Laura Bush, studdu
við lífræna ræktun með því að láta eld-
hús Hvíta hússins aðeins kaupa lífrænt
grænmeti. Obama gekk einu skrefi
lengra og lét gera lífrænan mat-
jurtagarð við Hvíta húsið en mat-
jurtagarðurinn var sá fyrsti frá því að
Eleanor Roosevelt var forsetafrú.
Til viðbótar lét hún setja upp bý-
flugnabú á suðurflöt Hvíta hússins.
Lífrænt grænmeti úr garðinum og
heimaframleitt hunang var því á boð-
stólum bæði í stórum veislum á veg-
um forsetaembættisins og á heimili
forsetafjölskyldunnar.
Býflugnabóndinn Charlie Brandts.
Ljósmynd/Hvíta húsið
Býflugur og
lífræn ræktun
Í PRÓFÍL
STJÓRNMÁL Michelle Obama sló rækilega í gegn
með ræðu sinni á síðasta landsþingi Demókrataflokks-
ins. Eftir hana fóru margir að velta því fyrir sér hvort
hún yrði ekki bara frábær forseti. Obama sjálf hefur
hinsvegar lagt áherslu á að hún hlakki til þess að end-
urheimta einkalíf sitt. Ekki má þó búast við því að hún
sitji auðum höndum því hún ætlar að halda áfram að
berjast fyrir aukinni menntun og heilbrigði barna.
Sjálf hefur hún sagt oftar en einu sinni að hún ætli
ekki í framboð. Á South by Southwest í mars sagði hún:
„Nei, nei, ég ætla ekki að gera það“, spurð um fram-
boð. Í apríl var hún aftur spurð að þessu sama á við-
burði í Hvíta húsinu: „Hillary Clinton er flott kona en
ég ætla ekki að gera það sem hún hefur gert. Ég ætla
ekki að bjóða mig fram til forseta.“
Ekki lítur út fyrir að forsetinn ætli að telja henni hug-
hvarf en hann sagði á fundi í Louisiana í janúar að það
væru aðeins þrír hlutir öruggir í lífinu, dauði, skattar og
að kona sín færi ekki í forsetaframboð. Dæmin um að
fólk hafi skipt um skoðun í pólitík eru hinsvegar það
mörg að víst er að fólk mun ekki hætta að spyrja Mic-
helle Obama þessarar spurningar alveg strax. Forsetafrúin sló í gegn á landsþingi Demókrataflokksins.
AFP
Framtíðarforseti?
MICHELLE OBAMA mun skilja eftir sig heilmikla arfleifð sem forsetafrú.
Í janúar segir hún skilið við Hvíta húsið eftir átta ár, aðeins 53 ára gömul.
Hún hefur vissulega verið fjörugari en margir fyrirrennarar hennar. Peter
Slevin, höfundur bókarinnar Michelle Obama: A Life bendir á að það sé
ólíklegt að önnur forsetafrú eigi eftir að stunda húla hopp á grasflöt við
Hvíta húsið, fara í sparkbox í opinberu myndbandi eða dansa opinberlega
við „Uptown Funk“.
Vill bæta mataræði og auka hreyfingu
„Ég er algjörlega tilbúin til að gera sjálfa mig að fífli til að fá börnin okkar
til að hreyfa sig,“ sagði Michelle Obama um verkefnið Let’s Move sem hún
setti af stað fyrir sjö árum. Markmið þess er að bæta mataræði og auka
hreyfingu barna með fjölbreytilegum leiðum með það að markmiði að út-
rýma offitu. Hún hefur sagt að hún ætli að halda áfram að vinna að þessu
takmarki eftir að hún hverfur á brott úr Hvíta húsinu.
Hingað til hefur aldrei verið forsetaherra, aðeins forsetafrúr, þó það geti
nú mögulega breyst í náinni framtíð. Maki ríkjandi forseta fylgir honum í
Hvíta húsið en fær hinsvegar engar opinberar leiðbeiningar um hvað hann
eigi að gera. Að vera forsetafrú er ekki starf og þar af leiðandi fylgja heldur
ekki nein laun. Obama gerði öllum það ljóst frá upphafi að hún ætlaði ekki
að gera eitthvað bara af því að aðrar forsetafrúr hefðu alltaf gert það.
Hún er lögfræðingur að mennt en hefur sem forsetafrú fyrst og fremst
skilgreint sig sem móður og lagt áherslu á góð fjölskyldugildi.
Hún vill bæta heilsu barna og nýjasta átakið hennar, Let Girls
Learn, leggur áherslu á að mennta stelpur. Hún vill breyta því
að 62 milljónir stúlkna á heimsvísu, þar af helmingur táningar,
séu ekki í skóla. Önnur verkefni sem hún hefur leitt eru Reach
Higher, sem hvetur táninga til að mennta sig meira og Joining
Forces, til hjálpar fyrrverandi hermönnum og fjölskyldum
þeirra.
Drottning samfélagsmiðlanna
Forsetafrúr hafa barist fyrir ýmsum gildum, t.d. Lady Bird
Johnson barðist fyrir umhverfinu og Laura Bush lagði áherslu
á læsi. Obama hefur tekist að vekja mikla athygli á sínum hugð-
arefnum því henni hefur tekist að nota samfélagsmiðlana sér til
framdráttar. Henni fer jafn vel að búa til stutt Vine-myndbönd
rétt eins og að halda innblásnar ræður. ingarun@mbl.is
Arfleifð
Michelle Obama
Michelle Obama hefur
orðið að tískutákn-
mynd á árum sínum
sem forsetafrú og þykir
ávallt smekklega klædd.
AFP
AFP
’Obama gerði öllum þaðljóst frá upphafi að húnætlaði ekki að gera eitthvaðbara af því að aðrar forseta-
frúr hefðu alltaf gert það.
Hér tekur Obama á móti Ho Ching, eiginkonu
forsætisráðherra Singapore, í Washington.
ALÞÝÐLEG Michelle Obama er
vissulega alþýðleg og höfðar til
fjöldans og hefur líkast til sjaldan tek-
ist það jafn vel og þegar hún steig inn í
bíl spjallþáttastjórnandans James Cor-
den. Hún söng þar meðal annars lögin
„Signed, Sealed, Delivered“ með Ste-
vie Wonder og þvínæst „Single La-
dies“ með Beyoncé. Síðan mætti
Missy Elliot í bílinn og þau þrjú sungu
saman styrktarlag forsetafrúarinnar,
„This Is For My Girls“. Hún sýndi síð-
an og sannaði að hún gæti rappað þeg-
ar lagið „Get Ur Freak On“ var spilað.
Búið er að horfa á þetta atriði rúm-
lega 40 milljón sinnum á YouTube.
Söng með
Corden
Obama er töff forsetafrú og sló í gegn í The Late Late Show.
Barack Obama,
Michelle Obama
og dæturnar
Malia og Sasha á
leið til baka úr
sumarfríi.
Íslensk hönnun
innblásin af
náttúru Íslands
púðaver, slæður,
fatnaður,
sendum frítt
um allt land
blacksand.is