Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.09.2016, Blaðsíða 33
Snyrtivöru- og förðunarrisinn Lancôme kynnti nýverið haust-
línu hússins 2016 sem hönnuð var í samstarfi við hönnuðinn So-
niu Rykiel, sem lést þó fyrir rúmum tveimur vikum síðan.
Línan er afskaplega frönsk. Rendur voru eitt af einkennum
hönnuðarins og eru þær áberandi í snyrtivörulínunni.
Línan samanstendur af tveimur augnskuggapallettum, fjór-
um mismundi varalitum í blýantsformi og fjórum litum af nagla-
lökkum. AFP
La Palette Saint-
Germain og Parisian
Spirit eru augn-
skuggapallettur sem inni-
halda einnig augnlínu-
penna. Sérlega mjúkir og
fallegir litir sem auðvelt er
að prófa sig áfram með. Vernis in
Love eru
endingargóð
naglalökk
með þægileg-
um bursta
sem auðveld-
ar ásetningu.
Förðunarlína frá
Soniu Rykiel
Franski fatahönn-
uðurinn Sonia Rykiel.
Parisian Lips Le Crayon er
tvöfaldur varablýantur, fáanlegur
í fjórum litum. Hægt er að nota
þá saman eða sinn í hvoru lagi.
11.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Zara
11.995 kr.
Ofursvalir, bundnir,
támjóir lakkskór.
Geysir
19.800 kr.
Vel sniðinn kjóll frá Ganni.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Ein umtalaðasta lína vetrarins er vetrarlína
tískuhússins Balenciaga 2016-2017. Línan er í
miklu uppáhaldi, vel sniðin, fáguð og byggist
á skemmtilegum andstæðum. Mig dreymir
um rauðu dúnúlpuna...
Netaporter.com
37.240 kr.
Perlur eru að koma sterkar
inn í vetur. Þessi hringur frá
Gucci er ofboðslega fallegur.
Eva
36.995 kr.
Notaleg síð peysa frá gallerí Evu.
Zara
11.995 kr.
Víður gervi-
leðurjakki.
Yves Saint Laurant
8.999 kr.
Mon Paris er glænýr ilmur frá Yves Saint
Laurent. Ilmurinn sem er innblásinn af
París inniheldur hið exótíska Datura blóm
og hvítt musk sem er mun léttara en
hefðbundin musklykt. Dásamlegur, léttur
ilmur sem flestir ættu að kunna við.
Ve
tr
ar
lín
a
B
al
en
ci
ag
a
20
16
-2
01
7.
Rapparinn og fatahönnuðurinnKanye West opnaði tískuvik-una í New York á miðviku-
daginn með sýningunni Yeezy Sea-
son 4. Sýningin gekk ekki áfallalaust
fyrir sig og var stórum hluta helstu
tískublaðamanna misboðið á sýning-
unni og margir sem nýttu sér sam-
félagsmiðla til þess að lýsa yfir van-
þóknun sinni.
Það sem var helst gagnrýnt voru
vinnuaðstæður fyrirsætanna, þá var
bæði gríðarlegur hiti úti þar sem
sýningin var haldin á Roosevelt
Island og áttu fyrirsæturnar erfitt
með að ganga á skónum sem þeim
var úthlutað.
Christene Barberich, stofnandi
Refinery29, skrifaði á Instagram-
síðu sína:
„Mín vanlíðan og kvart var algert
kjaftæði borið saman við þær 100
stúlkur sem stóðu heillengi kyrrar í
steikjandi sólinni. Án vatns.
Nokkrar settust niður til þess að
hvíla sig, ein hrundi niður og komu
þá nokkrar af fyrisætunum og að-
stoðuðu hana þar til vatn barst til
þeirra. Á meðan hugsaði ég hvort
einhver ætti að hringja á sjúkrabíl.“
Stella Bugbee, ritstjóri The Cut,
New York Magazine, var gríðarlega
ósátt og tísti um ömurlegar að-
stæður á sýningunni. Síðasta tístið
hennar hljóðaði þó svona: „Snið-
gangið #YeezySeason4“.
Robin Givhan, tískuritstjóri The
Washington Post, tísti:
„Er þetta sýningin? Að bíða eftir
að fyrirsæturnar hrynji niður ein af
annarri?
#YeezySeason4 #NYFW Er ég
meðsek? Hvað er í gangi!“
Þá er vonandi að Kanye West
hlusti á gagnrýnendur og geri betur
næst.
Instagram/christenebarberich
Tyga, Kylie Jenner, Kendall Jenner, Kim Kardashian, Carine Roitfeld og Pharrell Williams fylgdust með sýningunni.
AFP
AFP
West veldur vonbrigðum
Kanye West virkaði þó
sáttur með útkomuna.
Nýtt