Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.09.2016, Síða 43
11.9. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Fæst íapótekum,Krónunni,Fjarðarkaup,
Hagkaup,NettóogGrænheilsa.
Duft í kalt vatn eða boost
Styður:
Efnaskipti og öflugri brennslu
Minni sykurlöngun
Slökun og svefn
Vöðva og taugastarfsemi
Gott á morgnana og kvöldin
1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð
Mikil virkni
Náttúrulegt
Þörungamagnesíum
ENGIN
MAGAÓNOT
Fyrsta bókin sem ég byrjaði að lesa
í þessari lotu heitir Playground og
er eftir Lars Kepler. Lars Kepler er
dulnefni hjóna sem hafa skrifað
glæpasögur um spæj-
arann Joona Linna, en
þessi bók er ekki um
hann heldur er þetta
svolítið undarleg saga
um einhverskonar kín-
verska hafnarborg sem maður fer í
eftir andlát.
Hún var ekkert mjög skemmtileg
og þegar ég var komin miðja vegu
fór ég að lesa bók sem heitir Min
europeiska familj de senaste 54000
åren eftir Karin Bojs, sem má segja
að sé DNA-saga Evr-
ópumannsins. Þetta er
rosa hnullungur og
mjög áhugaverð og
hún verður lesin, en
kannski í skömmtum.
Ég varð síðan mjög spennt að fá
nýja Harry Potter bók, Harry Pot-
ter and the Cursed Child, en ég er
ekki búin með hana,
og veit ekki hvort ég á
að túlka það sem hún
sé ekki nógu skemmti-
leg.
Fjórða bókin sem ég
tók til við að lesa er
The Journalist and the Murderer
eftir Janet Malcolm sem skrifuð er
um fyrsta Serial-podcastið, en það
var gert um heimsfrægt glæpamál.
Guðrún Lára
Pétursdóttir
Guðrún Lára Pétursdóttir er bók-
menntafræðingur og ritstjóri.
mig við rannsóknarvinnunni sem blasti við, en saga Andr-
ée de Jongh heillaði mig og ég gat ekki hætt að hugsa um
hana og þegar ég fór að kynna mér sögu hennar betur
rakst ég á sögur kvenna sem stofnuðu sér í hættu til að
bjarga gyðingabörnum og flugmönnum bandamanna og
sem þurftu margar að gjalda fyrir hetjudáðir sínar með
þjáningum og dauða.“
- Þú hefur sagt í viðtölum að Næturgalinn sé þín uppá-
haldsbók, en er það ekki yfirleitt svo að rithöfundar halda
mest upp á sína nýjustu bók?
„Það er rétt að Næturgalinn er sú bók sem ég held lang-
mest upp á, en það er ekki alltaf svo að nýjasta bók mín sé
sú sem ég hef mest dálæti á. Ég hef mjög ákveðnar skoð-
anir á bókum mínum og er mjög gagnrýnin á margar
þeirra. Fram að því að Næturgalinn kom út fannst mér
Winter Garden vera mín besta bók, en það eru mörg ár (og
margar bækur) síðan hún kom út. Mér finnst líklegt að
Næturgalinn muni vera í uppáhaldi alllengi og hún er líka
sú bóka minna sem ég er stoltust af. Líklega er það vegna
Bandaríska skáldkonan
Kristin Hannah
þess að hún sýnir konur, sögu okkar og hugrekki í svo
sterku ljósi, en saga kvenna gleymist oft eða er ekki sögð.
Mér finnst það mjög mikilvægt að minna fólk á hversu
mikið hugrekki konur um allan heim sýndu á árum heims-
styrjaldarinnar síðari.“
Í stríði gleymast sögur kvenna
„Ég sá sífellt fyrir mér spurningu sem er eins mikilvæg í
dag og hún var fyrir sjötíu árum: Myndi ég, eiginkona og
móðir, hætta lífi mínu og ekki síst lífi barnsins mín til þess
að bjarga einhverjum ókunnugum? Þessi spurning er
þungamiðja Næturgalans. Ástin fær okkur til að átta okk-
ur á hver við vildum vera, í stríði komumst við að því hver
við erum. Kannski viljum við ekki alltaf vita hvað við
myndum gera til að komast af.
Í stríði gleymast sögur kvenna, þær koma heim af víg-
vellinum og segja ekki frá, halda áfram með lífið. Nætur-
galinn er saga þessara kvenna, um þá áhættu sem þær
þurftu að taka til að bjarga börnum sínum.“
BÓKSALA
31. ÁGÚST-31. SEPTEMBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Harry Potter & theCursed Child
J. K. Rowling
2 HættuspilViveca Sten
3 This is IcelandÝmsir höfundar
4 Vefur LúsífersKristina Ohlsson
5 Iceland In a BagÝmsir höfundar
6 NæturgalinnKristin Hannah
7 Sagas Of The Icelanders
8 Almenn líffræði 103Ólafur Halldórsson
9 Enskar málfræðiæfingar CElísabet Gunnarsdóttir
10 Independent PeopleHalldór Laxness
1 DNAYrsa Sigurdardottir
2 Dýr - LífeðlisfræðiGuðfinna B. Steinarsdóttir
3 Þýska húsiðArnaldur Indriðason
4 Ísfólkið 47Margit Sandemo
5 Blóð í snjónumJo Nesbø
6 Ísfólkið 20Margit Sandemo
7 BrakiðYrsa Sigurðardóttir
8 LygiYrsa Sigurðardóttir
9 BrekkukotsannállHalldór Laxness
10 AfturganganJo Nesbø
Allar bækur
Íslenskar kiljur
ÉG ER AÐ LESA
Mestu metsölubækur okkar tíma
eru bækurnar fimm um galdra-
strákinn Harry Potter og glímu
hans við hinn vonda Voldemort.
Þegar sjöunda og síðasta bókin
kom út 2007, og sló öll sölumet, lét
höfundurinn, J.K. Rowling, þau orð
falla að hún myndi ekki skrifa fleiri
bækur um Harry. Hún hefur líka
staðið við það – að mestu leyti, því
nýja Harry Potter-bókin, Harry
Potter and the Cursed Child, sem
kom út fyrir stuttu er ekki eiginleg
Harry Potter-bók, heldur handrit
leikrits sem nú er á fjölunum í Bret-
landi og er strangt til tekið ekki eft-
ir Rowling, þó að það byggist á
smásögu eftir hana.
Hvað sem því líður tóku aðdá-
endur Harry Potter vel við sér því
bókin seldist einkar vel, svo vel
reyndar að hún sló söluhraðavmet í
Bretlandi: af henni seldust 680.000
eintök á þremur dögum og snýtti
hún þannig Fifty Shades of Grey
sem átti metið. Þess má svo geta að
vestan hafs seldust af bókinni tvær
milljónir eintaka fyrstu tvo dagana.
Ef svo fer sem horfir verður Harry Potter and the Cursed Child ekki bara
mest selda bók ársins, heldur líka mest selda leikrit allra tíma.
AFP
Harry Potter slær met
GALDRASTRÁKUR