Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.09.2016, Page 48
SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 2016
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
tímalaus ljós og lampar
Flos 2097
Gini Sarfatti 1958
verð frá 235.000,-
Spunlight T2 – Sebastian Wrong, 2003
verð 169.000,-
Romeo Louis II,
Philippe Starck 2003
verð 259.000,-
Smithfield S
Jasper Morrison, 2009
verð 159.000,-
Taccia
Castiglioni, 1962
verð 349.000,-
Gibigiana
Castiglioni, 1980
verð 68.000,-
Rosy angelis,
Philippe Starck 1994
verð 86.900,-
Ray F
Rodolfo Dordoni, 2006
verð 229.000,-
FLOS 265
Paolo Rizzatto 1973
verð 119.000,-
ARCO Led
Pier Giacomo Castiglioni 1962
verð 349.000,-
Vísindakirkjan er í brennidepli í nýrri mynd úr smiðju
Louis Theroux. Heimildarmyndin My Scientology Movie
er meðal mynda sem sýndar verða á RIFF, Alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík í ár.
Myndin fjallar um Vísindakirkjuna, trúarhreyfingu
sem stofnuð var af vísindaskáldsagnahöfundinum L. Ron
Hubbard árið 1953.
Louis Theroux er einna þekktastur fyrir heimild-
arþættina Louis Theroux’s Weird Weekends þar sem
hann kynnist ýmsum jaðarhópum. Theroux hóf feril sinn
í blaðamennsku og bera verk hans nokkurn keim af því.
Myndinni er leikstýrt af John Dower og er hún skrifuð
af Theroux sem jafnframt er kynnir hennar.
Atvik endursköpuð með leikurum
Theroux hefur lengi hrifist af trúmálum auk þess að hafa
mikla reynslu í að fást við óvenjulega hluti. Hann lét það
ekki stöðva sig að Vísindakirkjan hefði neitað honum að
mynda inni í höfuðstöðvunum en kvikmyndagerð-
armennirnir fengu aðstoð frá fyrrverandi meðlimum Vís-
indakirkjunnar. Theroux notast ennfremur við leikara til
að endurskapa atvik sem fólk lenti í á meðan það til-
heyrði kirkjunni, í þeirri viðleitni að skilja hana betur.
My Scientology Movie verður sýnd í flokki heimild-
armynda á RIFF í ár. Nánar verður fjallað um heimild-
armyndirnar á RIFF á menningarsíðum Morgunblað-
isins á mánudag en hátíðin hefst 29. september.
Myndin er skrifuð af Louis Theroux
sem jafnframt er kynnir hennar.
Trúmál að hætti Theroux
AFP
Vísindakirkjan er sveipuð leyndarhjúpi en Louis Theroux kafar
ofan í kjarna kirkjunnar með hjálp fyrrverandi félaga í henni í
nýrri heimildarmynd sem sýnd verður á RIFF.
Andlegar höfuðstöðvar Vísinda-
kirkjunnar í Clearwater í Flórída.
„Sinfóníuhljómsveitin hefur haf-
ið æfingar“ var fyrirsögn fréttar
í Morgunblaðinu þann 29. mars
árið 1956. Greint var frá því að
fyrir atbeina Bjarna Benedikts-
sonar menntamálaráðherra
hefði ný sinfóníuhljómsveit,
„Sinfóníuhljómsveit Íslands“,
verið stofnuð og væri sjálfstæð
stofnun undir stjórn sérstaks
hljómsveitarráðs. Sveitin hafði
raunar verið til frá árinu 1950
en þarna fékk hún formlegri
umgjörð og aukið rekstrarfé.
„Hljóðfæraleikarar hafa þeg-
ar verið ráðnir og gekk það
bæði fljótt og vel. 28 menn hafa
verið fastráðnir á fullum laun-
um en 40 alls á heilum og hálf-
um launum, auk þess lausa-
menn en alls geta verið 55
menn í hljómsveitinni.“
Fyrstu tónleikar nýrrar sveit-
ar voru engir venjulegir tón-
leikar. „Fyrsta verkefni hljóm-
sveitarinnar, verður að leika á
hátíðatónleikum á vegum For-
seta Íslands í Þjóðleikhúsinu í
tilefni af komu dönsku konungs-
hjónanna. Hljómsveitin mun þá
leika undir stjórn dr. Páls Ísólfs-
sonar Egmont-forleikinn eftir
Beethoven, nýtt verk eftir Jón
Nordal, Passacaglia eftir Pál Ís-
ólfsson. Einnig verður þá flutt
undir stjórn dr. Viktors Urban-
cic Cavaleria rusticana, en ein-
göngu íslenskir söngvarar verða
með hljómsveitinni við það
tækifæri.“
GAMLA FRÉTTIN
Sinfónían
af stað
Páll Ísólfsson stjórnar æfingu sinfóníuhljómsveitarinnar.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Jennifer Garner
leikkona
Margrét Bjarnadóttir
dansari og leikkona
Hildur Björnsdóttir
lögmaður og pistlahöfundur