Morgunblaðið - 03.10.2016, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 03.10.2016, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2016 Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta. Prent+ er þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja hagræða í rekstri prentumhverfis. Við aðstoðum þig við val á hagkvæmasta prentbúnaði í samræmi við kröfur. www.kjaran.is | sími 510 5520 Kostnaður hvers frambjóðanda í persónukjöri í tengslum við alþing- iskosningarnar má að hámarki nema einni milljón að viðbættu álagi fyrir hvern íbúa kjördæmis. Þetta segir á vef Ríkisendurskoð- unar þar sem frambjóðendur eru minntir á að skila inn yfirlýsingu eða uppgjöri í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að persónukjör þeirra fór fram. Byggist þetta á lög- um um fjármál stjórnmálasamtaka. Hámarkskostnaður frambjóð- enda er því ekki alls staðar sá sami en álag á íbúa er mismunandi eftir fólksfjölda í hverju kjördæmi. Á kjörsvæði með fleiri en 50.000 íbúa, 18 ára og eldri, er álagið 75 kr. fyr- ir hvern íbúa. Á svæði með 40.000- 49.999 íbúa er álagið hins vegar 100 kr. og fer hækkandi eftir því sem færri búa á kjörsvæðinu. Þegar íbú- arnir eru færri en 10.000 er álagið orðið 175 kr. Meira álag ef færri íbúar Frambjóðandi sem bauð sig fram í sameiginlegum Reykjavíkur- kjördæmum, norður og suður, mátti því eyða mestu í sinni baráttu eða samtals 7.435.450 kr. á meðan frambjóðandi í Suðvesturkjördæmi mátti eyða samtals 5.827.600 kr. Byggist þetta á íbúafjölda 18. ágúst síðastliðinn þegar íbúar í Reykja- víkurkjördæmunum voru 85.806 en 64.368 manns bjuggu í Suðvestur- kjördæmi. Minnstur mátti kostnaðurinn vera í Norðvesturkjördæmi eða 3.593.000 en þar búa fæstir eða 20.744 manns. laufey@mbl.is Mestu mátti eyða í Reykjavík Morgunblaðið/Ómar Eyðsla Frambjóðendur í persónukjöri máttu eyða mismiklu í baráttunni.  Frambjóðendum í persónukjöri gert að skila uppgjöri Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, 28 ára stjórn- málafræðingur, var kjörinn for- maður Ungra jafnaðarmanna á 16. landsþingi hreyfingarinnar á laugardaginn. Á landsþinginu var stjórnmála- ályktun samþykkt þar sem menntastefna stjórnvalda er gagnrýnd harðlega, sérstaklega frumvarp menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra náms- manna sem ungir jafnaðarmenn segja vega að jöfnuði í samfélag- inu og draga úr menntunartæki- færum. „Frumvarpið hyglir þeim efnameiri á kostnað þeirra efna- minni og stuðlar að auknum ójöfn- uði í samfélaginu. Slíkt frumvarp hefur ekki hagsmuni allra náms- manna að leiðarljósi,“ segir í ályktuninni. Nýr formaður Ungra jafn- aðarmanna Þórarinn Snorri Sigurgeirsson Preben Péturs- son mjólkurfræð- ingur leiðir lista Bjartrar fram- tíðar í Norðaust- urkjördæmi. Listinn var lagð- ur fram á föstu- daginn og þar með hefur Björt framtíð birt fram- boðslista sína í öllum sex kjördæmunum. Í öðru sæti listans er Dagný Rut Haraldsdóttir, lögfræðingur og for- maður Félags einstæðra foreldra, og þriðja sætið skipar Arngrímur Viðar Ásgeirsson, hótelstjóri, íþróttakenn- ari og verkefnastjóri. Haukur Logi Jóhannsson verkefnastjóri er í 4. sæti og í því fimmta er Jónas Björg- vin Sigurbergsson, nemi og íþrótta- maður. Í neðsta sæti listans, heiðurssæt- inu, er Brynhildur Pétursdóttir al- þingismaður sem ákvað að gefa ekki kost á sér. Preben leið- ir BF í NA- kjördæmi Preben Pétursson Um helgina urðu stjórnarskipti hjá Kiwanisumdæminu Ísland- Færeyjar. Nýr umdæmisstjóri er Haukur Sveinbjörnsson, Kiwanis- klúbbnum Ósi á Hornafirði. Hver umdæmisstjórn starfar í eitt ár og hefur Kiwanishreyfingin starfað í rúmlega fimmtíu ár á Ís- landi. Kjörorð nýs umdæmisstjóra eru: „Styrkjum innra starf, verum sýnileg.“ Ný umdæmisstjórn hjá Kiwanis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.