Morgunblaðið - 03.10.2016, Page 13

Morgunblaðið - 03.10.2016, Page 13
fimm til sex tungumál reiprennandi. Þau læra bara öðruvísi á lífið en önnur börn.“ Birta hefur átt kærastann Luc- as í sjö ár og hundinn Gizmo sem er með henni í Finnlandi. „Þetta er sirkushundur sem ferðast og er með sitt vegabréf eins og við hin. Hvert sem hann kemur verður hann leikhúshundurinn, bíður þolin- móður þegar við erum að vinna og er hvers manns yndi,“ segir Birta, sem ákvað strax að hann yrði ekki hafður með í sýningum, fengi bara að hafa gaman. Lucas, kærasti Birtu, er línu- dansari og vinnur mest í Þýska- landi. „Þegar ég er í fríi frá sýn- ingum ferðast ég til hans og núna er hann hjá mér í þrjár næstu vikur í Finnlandi því hann er ekki að vinna. Vanalega þurfum við að ferðast mikið til að geta hist. Við eigum íbúð í Búrgúndíhéraði í litlum bæ sem heitir Joigny og er einn og hálfan tíma suður af París. Ég held að við höfum bara náð að vera þar í þrjár viku á þessu ári.“ Líkaminn er atvinnutækið „Það fer rosalega eftir hverjum og einum hversu lengi hann endist í þessum geira. Ég þekki fólk komið yfir sextugt sem er enn að sýna og er í ótrúlega formi. Líkaminn er at- vinnutækið okkar og maður þarf að hugsa vel um hann. Ég hugsa um allt sem ég borða og hversu lengi ég sef á nóttunni. Ég fer reglulega til lið- skekkjulæknis og hnykkjara, og er mik- ið í jóga sem heldur líkama og sál gang- andi,“ útskýrir Birta. „En þetta er áhættuatvinnugrein og slysin gera ekki boð á undan sér. Ég hef tvisvar lent í vinnuslysi. Í annað skiptið var ég að hoppa heljarstökk sem tókst ekki nógu vel og þríbraut á mér bakið. Ég endaði á spítala í viku og mátti ekki hreyfa mig, og var svo í bakbelti í einn og hálfan mánuði. Sem betur fer er heilbrigðiskerfið í Frakklandi allt öðruvísi en á Íslandi og þetta kostaði mig ekki krónu,“ segir Birta þakklát. „Þar að auki fæ ég lista- mannalaun frá ríkinu. Sýninga- tímabilið er frá apríl og fram í októ- ber, og þá fæ ég borgað fyrir hverja sýningu. En þá mánuði sem við erum ekki að sýna fáum við föst listamannalaun. Ég þarf að sýna 43 sýningar á ári til að uppfylla skil- yrðin fyrir listamannalaunin, en ég rúlla því auðveldlega upp.“ Vill koma með sýningu til Íslands „Mér finnst rosaleg forréttindi að fá að vinna við það sem ég elska mest að gera í heiminum og í þokkabót fá borgað fyrir það,“ segir Birta, sem þrátt fyrir endalaus ferðalög á vegum vinn- unnar reynir að skjót- ast stöku sinnum heim til Íslands. „Síðustu ár hef ég reynt að koma heim allavega í eina viku á sumrin. En síðasta ár hefur Ísland togað rosalega mikið í mig. Ég kom fjórum sinn- um á síðasta ári og þá hjálpa mikið öll lág- gjaldaflugförin sem eru í boði. Ég finn að ég þarf að koma heim til rækta íslenskuna,“ segir hún. „Mér þætti rosalega gaman ef ég gæti einhvern tímann komið með sýningu heim til Íslands. Ég veit að félaga mína í Les P’tits Bras langar afskaplega að koma til Íslands,“ svarar Birta spurð hvort við Íslend- ingar fáum ekki að njóta hæfileika hennar í komandi framtíð. Magnað Birta skemmtir fólki um allan heim með mögnuðum sirkuslistum. Gullöldin Sýning Les P’tits Bras er öll í stíl gullaldartímabils franska sirkussins. „Við erum fimm á sviðinu og einn tæknimað- ur og okkur kem- ur mjög vel sam- an. Enda verðum við að vera vinir eins mikið og við erum saman, meira en með fjölskyldunum.“ Fjölskyldan Litla fjölskyldan Lucas, Gizmo og Birta. Í lausu lofti Birta tekur flugið með félögum sínum í Les P’tits Bras. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2016 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.