Fréttablaðið - 07.07.2016, Side 2
Veður
Norðaustlæg átt eða hafgola í dag og
víða sólskin, en fer að rigna við norð-
austurströndina um kvöldið. Svalt úti
við norður- og austurströndina, en
annars ágætis sumarhiti. Sjá Síðu 32
Veðrið hefur leikið við höfuðborgarbúa og nýttu margir tækifærið til að bregða sér í sund eða baða sig á ylströndinni í Nauthólsvík eins og þessir krakkar
gerðu. Áfram er spáð hæglætisveðri og léttskýjuðu í dag en á morgun þykknar upp og gert er ráð fyrir að það rigni næstu daga. Fréttablaðið/anton brink
Samfélag „Það kemur mikið áfall á
eftir en meðan á þessu stóð útilok-
aði ég allt nema bara að ná honum
til baka,“ segir Ásmundur Kristinn
Símonarson einkaþjálfari.
Hann bjargaði lífi manns í World
Class á Seltjarnarnesi á dögunum.
Maðurinn sem er á miðjum aldri
fór í hjartastopp á stigvél í tækja-
salnum en Ásmundur hnoðaði og
blés í hann lífi þar til sjúkrabíll
kom.
„Ég var að þjálfa annan mann og
svo sá ég að maðurinn lá þarna á
gólfinu og hljóp að honum. Hann
var alveg úti og ég byrjaði strax að
hnoða og blása. Ég hélt um stund
að ég myndi ekki ná honum til
baka en hann datt út tvisvar eða
þrisvar,“ segir Ásmundur og bætir
við að hann hafi kallað í tvo starfs-
menn, annan til að hringja í sjúkra-
bíl og hinn til að ná í stuðtæki.
Hann segist vera þakklátur því hve
hratt ungir starfsmenn stöðvarinn-
ar hafi brugðist við.
Ásmundur hnoðaði og blés í
manninn í fimm mínútur áður en
hann fékk stuðtæki í hendurnar.
„Mér leið eins og þetta væri klukku-
tími. Venjulega pumpar einn í sirka
mínútu og svo tekur annar við en
þarna var ég einn allan tímann og
þetta tók mikið á,“ segir Ásmundur
en eftir að sjúkraflutningamenn
skoðuðu atvikið í myndavélum
World Class sögðu þeir honum að
hann hefði brugðist við eins vel
og hægt var. „Þeir voru virkilega
ánægðir með mig.“
Ásmundi, sem hefur lært skyndi-
hjálp, finnst mikilvægt að meiri
áhersla sé lögð á blástur en gert er,
en hann segir mun meiri áherslu
lagða á að kenna hnoð. Í þessu til-
felli hafi það verið blásturinn sem
bjargaði manninum. „Ég myndi
vilja sjá áherslu á hvort tveggja. Það
kom mér á óvart hvað var erfitt að
blása líka.“
Eftir björgunina fór Ásmundur
í göngutúr en hann segir atvikið
hafa haft mikil áhrif á sig þrátt
fyrir að það hafi endað vel. „Ég er
svo heppinn að það er maður sem
vinnur hérna sem hefur líka lent í
svona og við ræðum mikið saman
sem hjálpar.“ nadine@frettabladid.is
Meiri áhersla verði lögð
á blástur í skyndihjálp
Ásmundur Kristinn Símonarson einkaþjálfari bjargaði lífi manns sem fór í
hjartastopp á stigvél. Sjúkrabíll var kominn á staðinn átta mínútum eftir at-
vikið. Ásmundur segir mikilvægt að leggja meiri áherslu á blástur í skyndihjálp.
Maður fór í hjartastopp á stigvél í tækjasalnum en Ásmundur hnoðaði og blés í
hann lífi þar til sjúkrabíll kom. Fréttablaðið/EYÞÓr
Veðurblíðunnar notið á ströndinni
félagSmál Árna Stefáni Árnasyni
lögfræðingi hefur verið bannað að
nota lénið dyraverndarinn.is. Hann
má heldur ekki nota orðmerkið né
heldur myndmerkið Dýraverndarinn,
samkvæmt úrskurði Neytendastofu.
Dýraverndarsamband Íslands
kvartaði til Neytendastofu vegna
notkunar Árna Stefáns á umræddu
léni og myndmerki. Dýraverndarsam-
bandið krafðist þess að Árna Stefáni
yrði bönnuð notkun auðkennanna
þar sem hætta væri á að villst yrði
á starfsemi hans og starfsemi Dýra-
verndarsambandsins.
Neytendastofa taldi að þar sem
báðir aðilar máls láti sig dýravernd
varða og haldi úti vefsvæði sem miði
að dýravernd valdi notkun Árna Stef-
áns ruglingshættu milli aðila, og féllst
því á kröfuna. – jhh
Hætta talin á
ruglingi
Árni Stefán Árna-
son, dýraréttarlög-
fræðingur
HeilbrigðiSmál Verkjalyfjanotkun á
Íslandi hefur farið vaxandi í saman-
burði við aðrar þjóðir. Munar þar
mestu um lyf sem innihalda ópíóða.
Þeim er ávísað gegn svæsnum verkj-
um en valda einnig vímuáhrifum.
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs varð hátt í 20% aukning í ávís-
unum á hvern sjúkling á parkódín
forte og aðrar gerðir ópíóða hafa
einnig sótt á síðustu ár, samkvæmt
grein í nýjasta hefti Læknablaðsins.
Ef litið er til lengri tíma kemur í ljós
að heildarnotkun ópíóða hefur meira
en tvöfaldast á 20 árum.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær kom
fram að hjá landlæknisembættinu
klingi varúðarbjöllur yfir þróuninni,
enda hætt við því að þessi lyf séu mis-
notuð og fíknin er banvæn. – lvp / jhh
Vaxandi notkun
verkjalyfja
Ég var að þjálfa
annan mann og svo
sá ég að maðurinn lá þarna á
gólfinu.
Ásmundur Kristinn Símonarson
atvinna Vinnumálastofnun hefur
fengið sjö milljóna króna framlag frá
velferðarráðuneytinu í verkefni sem
hefur þann tilgang að fjölga starfs-
tækifærum fyrir fólk með fötlun og
auka fjölbreytni starfstilboða. Féð er
veitt á grundvelli framkvæmdaáætl-
unar í málefnum fatlaðs fólks.
Sérstök áhersla verður lögð á
atvinnutækifæri fyrir ungt fatlað fólk
sem lokið hefur námi á starfsbrautum
framhaldsskólanna eða diplómanámi
frá Háskóla Íslands. Stefnt er að því að
hlutaðeigandi fái starf og stuðning til
að sinna því til lengri tíma.
Skipulag og undirbúningur verk-
efnisins hefst 1. september en verk-
lok eru áætluð 1. september 2017.
Stefnt er að því að í lok tímabilsins
hafi orðið til 30 ný störf fyrir fötluð
ungmenni. – jhh
Tryggja fólki
með fötlun störf
7 . j ú l í 2 0 1 6 f i m m t u D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
F
-9
B
5
0
1
9
E
F
-9
A
1
4
1
9
E
F
-9
8
D
8
1
9
E
F
-9
7
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K