Fréttablaðið - 07.07.2016, Síða 6

Fréttablaðið - 07.07.2016, Síða 6
heilbrigðismál Læknar hafa áhyggjur af því að nýjar einkareknar heilsugæslustöðvar verði ekki til þess að heimilislæknum fjölgi á höfuð- borgarsvæðinu heldur flytji heimilis- læknar sig úr opinbera geiranum yfir í einkageirann. „Við viljum auðvitað fjölga lækn- unum en ekki bara brjóta þá upp og láta þá fara í eitthvert annað hús,“ segir Óskar Sesar Reykdalsson, settur framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins. Í Fréttablaðinu í gær var greint frá því að Ríkiskaup hygðust ganga til samninga um tvær nýjar einka- reknar heilsugæslustöðvar á höfuð- borgarsvæðinu, aðra við Bíldshöfða í Reykjavík og hina við Urriðahvarf í Kópavogi. Aðeins þrjú tilboð bárust í þær þrjár heilsugæslustöðvar sem auglýst var eftir og var einu tilboðinu hafnað. Í stjórn Heilsugæslunnar Höfða, sem stofnuð var um heilsugæslustöð á Bíldshöfða, eru fimm læknar sem allir koma úr heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu. Gunnlaugur Sigurjónsson, stjórnarformaður félagsins, sem sjálfur starfar sem heimilislæknir í heilsugæslustöðinni í Árbæ, sagði við Fréttablaðið í gær að alls yrðu læknarnir á nýju stöðinni tíu. Einhverjir þeirra kæmu úr námi eða störfum að utan. Hin heilsugæslustöðin sem Ríkis- kaup féllust á að leita samninga við er á vegum aðila sem tengjast Heilsu- vernd sem er fyrir með ýmiss konar læknisþjónustu í Glæsibæ. Þá segir Óskar að tryggja þurfi að nægt fjármagn fylgi breytingunum en samhliða nýjum stöðvum á að taka upp nýtt greiðslukerfi til heilsugæslu- stöðva um næstu áramót. „Flestir sem ég hef heyrt í hafa verið á því að fjármagnið sé af skornum skammti og það sé ein af ástæðunum fyrir því að ekki hafi verið slegist um þetta rekstrarmódel,“ segir hann. Óskar segir flesta heimilislækna mjög jákvæða fyrir því að gera breyt- ingar á greiðslufyrirkomulaginu og fyrir fjölgun heimilislækna en til að það megi vera sé ljóst að ríkið þurfi að setja meira fé í rekstur heilsu- gæslunnar. „Þetta leiðir vonandi til meira framboðs á læknum, ekki bara til þess að læknar taki sig upp af öðrum stöðvum og flytji sig á nýju stöðvarnar heldur að það komi nýir læknar til starfa sem ekki hafa starfað í þessu kerfi,“ segir Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélags Íslands, um breytingarnar á greiðslukerfinu og nýju stöðvarnar. ingvar@frettabladid.is Þetta leiðir vonandi til meira framboðs á læknum, ekki bara til þess að læknar taki sig upp af öðrum stöðvum og flytji sig á nýju stöðvarnar heldur að það komi nýir læknar til starfa sem ekki hafa starfað í þessu kerfi. Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna­ félags Íslands samfélag „Í flestum tilfellum þegar harmleikur verður á Íslandi er um að ræða hundaeigendur sem mis- reikna sig,“ segir Hallgerður Hauks- dóttir, formaður Dýraverndarsam- bands Íslands. Mikil umræða hefur skapast á Facebook-síðunni Hundasamfélag- ið um það að hundaeigendur hér á landi eigi það til að skilja hunda eftir inni í bíl í miklum hita þessa dagana. Hallgerður ítrekar mikilvægi þess að fólk skilji hunda ekki eftir í bíl án þess að skilja eftir opnar rúður þannig að það sé gegnumstreymi og að bílnum sé lagt í skugga. Nýlega hafi hundur fundist mjög illa hald- inn eftir að hafa verið skilinn eftir í bíl en eigendurnir höfðu verið lengur frá bílnum en ætlunin var upphaflega. „Sá hundur kom til en hann varð mjög veikur,“ segir Hallgerður og bætir við að bílar hitni mjög hratt og að fólk geti ekki reiknað út hversu lengi það sé í lagi að skilja hunda eftir miðað við hitastig. „Ef hundar eru lokaðir í bíl í ein- hvern tíma eru góðar líkur á því að það valdi því að dýrinu líði mjög illa eða jafnvel deyr dýrið. Það á að skilja hundinn eftir heima ef það á að fara þangað sem hundar mega ekki koma og ef stoppa á lengur en 10 mínútur eða svo. Bílar eru engir geymslustaðir fyrir hunda.“ Katrín Harðardóttir dýralæknir segir hættulegt að skilja hunda eftir inni í bíl. „Sérstaklega flatnefja hunda. Ég veit sjálf um einn bulldog og einn boxer sem dóu inni í bíl á Íslandi fyrir nokkrum árum,“ segir Kristín og bætir við að séu hundar í heitum bíl geti þeir þornað upp, fengið hitasjokk og svo hjarta- stopp í kjölfarið. Að sögn Katrínar er bannað að skilja hunda eftir í bíl samkvæmt nýrri reglugerð sem fylgir dýraverndarlögunum. – ngy Veikur eftir að hafa verið látinn bíða inni í bíl Læknar úr opinberum störfum á einkastöðvar Nýjar einkareknar heilsugæslustöðvar virðast ekki skila mörgum nýjum læknum á höfuðborgarsvæðið frá öðrum löndum. Læknar sem starfa hér fyrir virðast hins vegar vera að færa sig af opinberum stöðvum yfir á einkareknar. Áhyggjur eru af því að með einkareknum stöðvum fjölgi ekki heilsugæslulæknum heldur flytji þeir sig úr opinbera geiranum í einkageirann. nordicphotos/getty Útför í Bagdad Syrgjendur fylgja ástvini sínum til grafar og ganga fram hjá árásarstaðnum í verslunarhverfi í Bagdad, höfuðborg Íraks, þar sem sjálfsvígsárásar- menn urðu að minnsta kosti tvö hundruð og fimmtíu manns að bana um helgina. nordicphotos/AFp Bannað er að skilja hunda eftir í bíl samkvæmt nýrri reglugerð sem fylgir dýra- verndarlögunum að sögn dýralæknis. nordicphotos/getty UmhVerfi Stefnt er að því að draga úr notkun burðarplastpoka á Íslandi. Markmiðið er að hver ein- staklingur noti aðeins 40 slíka poka árið 2025. Þetta eru tillögur starfs- hóps fulltrúa Umhverfisstofnunar, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka iðnaðar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og umhverf- is- og auðlindaráðuneytisins. Starfshópurinn leggur til að farið verði eftir breytingum sem gerðar verða á EES-samningnum um burðarplastpokanotkun. Talið er að hver Íslendingur noti um 105 burðarplastpoka á ári en það eru um átta pokar á viku fyrir fjögurra manna fjölskyldu, að því er segir á vef Umhverfisstofnunar. – ibs Minni notkun á plastpokum sVÍÞJÓð Eftir Brexit, úrsögn Breta úr Evrópusambandinu, er enn mikilvægara fyrir Svía að gerast aðilar að Atlantshafsbandalaginu, Nató. Þetta er mat Jans Björklund, formanns Frjálslynda flokksins í Svíþjóð. Hann vísar á bug gagnrýni þeirra sem segja að sameiginleg aðild Svía og Finna að Nató muni auka spennuna á Eystrasaltssvæðinu. Björklund segir rök gagnrýnenda hlægileg. Það séu Rússar sem auki spennuna en ekki Svíar. Björklund segir hlutverk Nató í sameiginlegum öryggismálum Vesturlanda verða enn stærra þegar Evrópusambandið veikist. – ibs Vill Svía í Nató í kjölfar Brexit 7 . J ú l Í 2 0 1 6 f i m m T U D a g U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð 0 7 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E F -C 2 D 0 1 9 E F -C 1 9 4 1 9 E F -C 0 5 8 1 9 E F -B F 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.