Fréttablaðið - 07.07.2016, Page 8
Bretland John Chilcot lávarður,
formaður rannsóknarnefndar sem
í sjö ár hefur skoðað aðdraganda,
undirbúning og framkvæmd aðildar
Bretlands að innrásinni í Írak í mars
2003, er harðorður í garð þáverandi
stjórnvalda.
Tony Blair, þáverandi forsætis-
ráðherra Bretlands, hafi ákveðið að
taka þátt í innrásinni með Banda-
ríkjunum án fullnægjandi undir-
búnings, án þess að hafa hlustað á
varnaðarorð og án þess að gera sér
grein fyrir afleiðingunum.
„Þegar möguleikinn á hernað-
araðgerðum kemur til sögunnar, þá
eiga stjórnvöld ekki að skuldbinda
sig til þess að ná fram ákveðnum
pólitískum markmiðum fyrr en ljóst
er orðið að hægt verði að ná þeim,“
sagði Chilcot í gær, þegar hann
kynnti niðurstöður rannsóknar-
innar. „Það er grundvallar atriði að
reglulega sé allt endurmetið.“
Chilcot sagði að við upphaf inn-
rásarinnar hefðu bresk stjórnvöld
búist við því að hernaðaraðgerð-
irnar yrðu vel útfærðar undir for-
ystu Bandaríkjanna og með heimild
frá Sameinuðu þjóðunum, og að
aðstæður yrðu ekki mjög hættu-
legar. Raunin hafi orðið allt önnur.
Þegar rannsóknarnefndin yfir-
heyrði Tony Blair hafi hann sagt að
fyrirfram hefði engan veginn verið
hægt að gera sér grein fyrir þeim
erfiðleikum, sem innrásarliðið lenti
í eftir að til Íraks var komið. Chilcot
segir að Blair hafi þarna rangt fyrir
sér: „Fyrir innrásina var greinilega
búið að benda á hættuna á innan-
landsátökum í Írak, á tilraunum Írana
til að ná fram hagsmunum sínum, á
óstöðugleika í þessum heimshluta og
á aðgerðum al-Kaída í Írak.“
Íraksstríðið vanhugsað hernaðarbrölt
Sjö ára rannsókn Chilcots lávarðar leiðir í ljós að Bretar héldu árið 2003 að vanhugsuðu máli og að óþörfu út í stríð í Írak með Banda-
ríkjamönnum. Tony Blair biðst afsökunar á afdrifaríkum og sársaukafullum mistökum, en segir allt hafa verið gert í góðri trú.
Viðvaranir voru hunsaðar
Chilcot lávarður lýsti markmiðum
og helstu niðurstöðum rannsóknar-
innar í nokkrum orðum, þegar hann
kynnti skýrsluna í gærmorgun:
„Árið 2003 tók Bretland, í fyrsta
skipti frá því í seinni heimsstyrj-
öldinni, þátt í innrás og allsherjar
hernámi fullvalda ríkis. Það var
há alvarleg ákvörðun. Saddam
Hussein var tvímælalaust hrotta-
fenginn einræðisherra sem réðst á
nágrannaríki Íraks, kúgaði og drap
marga af íbúum eigin lands, og braut
gegn skuldbindingum gagnvart
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
En spurningarnar, sem þessi rann-
sókn átti að svara, voru hvort það
hafi verið rétt og nauðsynlegt að
ráðast inn í Írak í mars árið 2003 og
hvort Bretland hefði getað og átt
að vera betur búið undir það sem í
hönd fór.
Við höfum komist að þeirri niður-
stöðu að Bretland hafi kosið
að ganga til liðs við innrásina
í Írak áður en fullreynt var
með friðsamlegar leiðir til
afvopnunar. Á þeim tíma voru
hernaðaraðgerðir ekki síðasta
úrræðið.
Við höfum einnig komist
að þeirri niðurstöðu að mat
á alvarleika þeirrar hættu
sem stafaði af gjöreyðingarvopnum
Íraka hafi verið kynnt af sannfæringu
sem ekki átti við rök að styðjast.
Þrátt fyrir skýrar viðvaranir voru
afleiðingar innrásarinnar vanmetnar.
Öll skipulagning og undirbúningur
fyrir það sem við tæki í Írak eftir að
Saddam Hussein færi frá voru alger-
lega ófullnægjandi. Stjórninni tókst
ekki að ná fram yfirlýstum mark-
miðum sínum.“
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og George W. Bush Bandaríkjaforseti hittust
stuttu fyrir innrásina í Írak til að ræða undirbúninginn. FréTTaBlaðið/EPa
Skýrsla Chilcot-nefndarinnar í tólf bindum með 2,6 milljón orðum.
NordiCPhoToS/aFP
Styttan af Saddam hussein í Bagdad áður en henni var steypt af stalli fáum vikum eftir að innrásin hófst. NordiCPhoToS/aFP
Chilcot lávarður kynnir niður-
stöður sjö ára rannsóknar á
tildrögum, undirbúningi og
framkvæmd Írakstríðsins.
NordiCPhoToS/aFP
Raunveruleikinn kom á óvart
Tony Blair sendi í gærmorgun frá sér
yfirlýsingu, þar sem hann bregst við
skýrslunni með því að segja hana
staðfesta að engum blekkingum
hafi verið beitt:
„Skýrslan ætti að þagga niður
í ásökunum um óheilindi, lygar
eða blekkingar. Hvort sem fólk er
sammála eða ósammála ákvörðun
minni um að grípa til hernaðar gegn
Saddam Hussein, þá tók ég hana í
góðri trú og með hagsmuni þjóðar-
innar í huga að því er ég taldi þá.“
Hann ávarpaði síðan fjölmiðla og
sagði þá meðal annars:
„Ákvörðunin um að fara í stríð
í Írak og koma Saddam Hussein
frá völdum í bandalagi með meira
en 40 löndum undir forystu
Bandaríkjanna var erfiðasta,
afdrifaríkasta og sársauka-
fyllsta ákvörðun sem ég tók
á þeim tíu árum sem ég var
forsætisráðherra Bretlands.
Ég ber fulla ábyrgð á
þeirri ákvörðun, án undanbragða
og afsakana,“ sagði Blair. Síðan
viðurkenndi hann að raunveru-
leikinn sem mætti breskum her-
mönnum í Írak hafi verið allt annar
en stjórnin hefði búist við:
„Álitsgerðir leyniþjónustunnar
á þeim tíma sem haldið var í stríð,
reyndust rangar. Eftirleikurinn varð
fjandsamlegri, langdregnari og
blóðugri en við höfðum nokkru
sinni ímyndað okkur. Bandalags-
ríkin bjuggu sig undir ákveðnar
grundvallarstaðreyndir en ráku
sig á allt aðrar, og þjóðin sem við
vildum frelsa og losa undan illsku
Saddams varð í staðinn að fórnar-
lambi hryðjuverka milli andstæðra
hópa.
Vegna alls þessa ber ég í
brjósti dýpri sorg, iðrun og
ósk um fyrirgefningu en þið
munið ef til vill nokkurn
tímann skilja eða geta
trúað.“
Þegar ákveðið var að hefja inn-
rásina hafi ekki verið búið að full-
reyna allar friðsamlegar leiðir til að
afvopna Írak. Hernaðaraðgerðir hafi
ekki verið óhjákvæmilegar.
„Á einhverjum tímapunkti hefði
ef til vill orðið nauðsynlegt að hefja
hernað í Írak, en í mars 2003 stafaði
engin aðkallandi hætta af Saddam
Hussein,“ sagði Chilcot.
Blair er meðal annars harðlega
gagnrýndur fyrir að láta George W.
Bush Bandaríkjaforseta ráða ferð-
inni og gefa frá sér allar tilraunir til
að fara hægar í sakirnar. Strax í júlí
árið 2002, meira en hálfu ári áður en
innrásin hófst, hafi hann sent Bush
þessi skilaboð: „Ég mun standa með
þér, hvað sem á dynur.“
Skýrslan, sem nefndin birti á vef-
síðu sinni í gær, er engin smásmíði.
Samtals 2,6 milljónir orða í tólf
bindum. Samantektin ein er 150
blaðsíður að lengd.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
7 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M t U d a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð
0
7
-0
7
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
E
F
-D
6
9
0
1
9
E
F
-D
5
5
4
1
9
E
F
-D
4
1
8
1
9
E
F
-D
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K