Fréttablaðið - 07.07.2016, Page 8

Fréttablaðið - 07.07.2016, Page 8
Bretland John Chilcot lávarður, formaður rannsóknarnefndar sem í sjö ár hefur skoðað aðdraganda, undirbúning og framkvæmd aðildar Bretlands að innrásinni í Írak í mars 2003, er harðorður í garð þáverandi stjórnvalda. Tony Blair, þáverandi forsætis- ráðherra Bretlands, hafi ákveðið að taka þátt í innrásinni með Banda- ríkjunum án fullnægjandi undir- búnings, án þess að hafa hlustað á varnaðarorð og án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum. „Þegar möguleikinn á hernað- araðgerðum kemur til sögunnar, þá eiga stjórnvöld ekki að skuldbinda sig til þess að ná fram ákveðnum pólitískum markmiðum fyrr en ljóst er orðið að hægt verði að ná þeim,“ sagði Chilcot í gær, þegar hann kynnti niðurstöður rannsóknar- innar. „Það er grundvallar atriði að reglulega sé allt endurmetið.“ Chilcot sagði að við upphaf inn- rásarinnar hefðu bresk stjórnvöld búist við því að hernaðaraðgerð- irnar yrðu vel útfærðar undir for- ystu Bandaríkjanna og með heimild frá Sameinuðu þjóðunum, og að aðstæður yrðu ekki mjög hættu- legar. Raunin hafi orðið allt önnur. Þegar rannsóknarnefndin yfir- heyrði Tony Blair hafi hann sagt að fyrirfram hefði engan veginn verið hægt að gera sér grein fyrir þeim erfiðleikum, sem innrásarliðið lenti í eftir að til Íraks var komið. Chilcot segir að Blair hafi þarna rangt fyrir sér: „Fyrir innrásina var greinilega búið að benda á hættuna á innan- landsátökum í Írak, á tilraunum Írana til að ná fram hagsmunum sínum, á óstöðugleika í þessum heimshluta og á aðgerðum al-Kaída í Írak.“ Íraksstríðið vanhugsað hernaðarbrölt Sjö ára rannsókn Chilcots lávarðar leiðir í ljós að Bretar héldu árið 2003 að vanhugsuðu máli og að óþörfu út í stríð í Írak með Banda- ríkjamönnum. Tony Blair biðst afsökunar á afdrifaríkum og sársaukafullum mistökum, en segir allt hafa verið gert í góðri trú. Viðvaranir voru hunsaðar Chilcot lávarður lýsti markmiðum og helstu niðurstöðum rannsóknar- innar í nokkrum orðum, þegar hann kynnti skýrsluna í gærmorgun: „Árið 2003 tók Bretland, í fyrsta skipti frá því í seinni heimsstyrj- öldinni, þátt í innrás og allsherjar hernámi fullvalda ríkis. Það var há alvarleg ákvörðun. Saddam Hussein var tvímælalaust hrotta- fenginn einræðisherra sem réðst á nágrannaríki Íraks, kúgaði og drap marga af íbúum eigin lands, og braut gegn skuldbindingum gagnvart öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. En spurningarnar, sem þessi rann- sókn átti að svara, voru hvort það hafi verið rétt og nauðsynlegt að ráðast inn í Írak í mars árið 2003 og hvort Bretland hefði getað og átt að vera betur búið undir það sem í hönd fór. Við höfum komist að þeirri niður- stöðu að Bretland hafi kosið að ganga til liðs við innrásina í Írak áður en fullreynt var með friðsamlegar leiðir til afvopnunar. Á þeim tíma voru hernaðaraðgerðir ekki síðasta úrræðið. Við höfum einnig komist að þeirri niðurstöðu að mat á alvarleika þeirrar hættu sem stafaði af gjöreyðingarvopnum Íraka hafi verið kynnt af sannfæringu sem ekki átti við rök að styðjast. Þrátt fyrir skýrar viðvaranir voru afleiðingar innrásarinnar vanmetnar. Öll skipulagning og undirbúningur fyrir það sem við tæki í Írak eftir að Saddam Hussein færi frá voru alger- lega ófullnægjandi. Stjórninni tókst ekki að ná fram yfirlýstum mark- miðum sínum.“ Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og George W. Bush Bandaríkjaforseti hittust stuttu fyrir innrásina í Írak til að ræða undirbúninginn. FréTTaBlaðið/EPa Skýrsla Chilcot-nefndarinnar í tólf bindum með 2,6 milljón orðum. NordiCPhoToS/aFP Styttan af Saddam hussein í Bagdad áður en henni var steypt af stalli fáum vikum eftir að innrásin hófst. NordiCPhoToS/aFP Chilcot lávarður kynnir niður- stöður sjö ára rannsóknar á tildrögum, undirbúningi og framkvæmd Írakstríðsins. NordiCPhoToS/aFP Raunveruleikinn kom á óvart Tony Blair sendi í gærmorgun frá sér yfirlýsingu, þar sem hann bregst við skýrslunni með því að segja hana staðfesta að engum blekkingum hafi verið beitt: „Skýrslan ætti að þagga niður í ásökunum um óheilindi, lygar eða blekkingar. Hvort sem fólk er sammála eða ósammála ákvörðun minni um að grípa til hernaðar gegn Saddam Hussein, þá tók ég hana í góðri trú og með hagsmuni þjóðar- innar í huga að því er ég taldi þá.“ Hann ávarpaði síðan fjölmiðla og sagði þá meðal annars: „Ákvörðunin um að fara í stríð í Írak og koma Saddam Hussein frá völdum í bandalagi með meira en 40 löndum undir forystu Bandaríkjanna var erfiðasta, afdrifaríkasta og sársauka- fyllsta ákvörðun sem ég tók á þeim tíu árum sem ég var forsætisráðherra Bretlands. Ég ber fulla ábyrgð á þeirri ákvörðun, án undanbragða og afsakana,“ sagði Blair. Síðan viðurkenndi hann að raunveru- leikinn sem mætti breskum her- mönnum í Írak hafi verið allt annar en stjórnin hefði búist við: „Álitsgerðir leyniþjónustunnar á þeim tíma sem haldið var í stríð, reyndust rangar. Eftirleikurinn varð fjandsamlegri, langdregnari og blóðugri en við höfðum nokkru sinni ímyndað okkur. Bandalags- ríkin bjuggu sig undir ákveðnar grundvallarstaðreyndir en ráku sig á allt aðrar, og þjóðin sem við vildum frelsa og losa undan illsku Saddams varð í staðinn að fórnar- lambi hryðjuverka milli andstæðra hópa. Vegna alls þessa ber ég í brjósti dýpri sorg, iðrun og ósk um fyrirgefningu en þið munið ef til vill nokkurn tímann skilja eða geta trúað.“ Þegar ákveðið var að hefja inn- rásina hafi ekki verið búið að full- reyna allar friðsamlegar leiðir til að afvopna Írak. Hernaðaraðgerðir hafi ekki verið óhjákvæmilegar. „Á einhverjum tímapunkti hefði ef til vill orðið nauðsynlegt að hefja hernað í Írak, en í mars 2003 stafaði engin aðkallandi hætta af Saddam Hussein,“ sagði Chilcot. Blair er meðal annars harðlega gagnrýndur fyrir að láta George W. Bush Bandaríkjaforseta ráða ferð- inni og gefa frá sér allar tilraunir til að fara hægar í sakirnar. Strax í júlí árið 2002, meira en hálfu ári áður en innrásin hófst, hafi hann sent Bush þessi skilaboð: „Ég mun standa með þér, hvað sem á dynur.“ Skýrslan, sem nefndin birti á vef- síðu sinni í gær, er engin smásmíði. Samtals 2,6 milljónir orða í tólf bindum. Samantektin ein er 150 blaðsíður að lengd. Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 7 . j ú l í 2 0 1 6 F I M M t U d a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B l a ð I ð 0 7 -0 7 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 E F -D 6 9 0 1 9 E F -D 5 5 4 1 9 E F -D 4 1 8 1 9 E F -D 2 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.